Lesbók Morgunblaðsins - 10.07.2004, Page 15

Lesbók Morgunblaðsins - 10.07.2004, Page 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 10. júlí 2004 | 15 Kvikmyndir Borgarbíó, Akureyri: Spider-Man 2  (SV) Háskólabíó Around The World in 80 Days  (HJ) The Chronicles of Riddick (SV) Harry Potter & The Pris- oner…  (HL) The Ladykillers  (HJ) Mors Elling  (SV) Some Kind of Monster  (HJ) Laugarásbíó Spider-Man 2  (SV) Godsend  (HJ) Regnboginn Spider-Man 2  (SV) Eternal Sunshine …  (HL) The Day After Tomorrow  (SV) Sambíóin Around The World in 80 Days  (HJ) Spider-Man 2  (SV) The Chronicles of Riddick  (SV) Harry Potter & The Prison- er…  (HL) Mean Girls  (HJ) Troy  (SV) Eurotrip  (HJ) Smárabíó Spider-Man 2  (SV) Walking Tall  (SV) Suddenly 30  (HL) The Punisher  (SV) The Day After Tomorrow  (SV) Peter Pan  (HL) Myndlist 101 gallery, Hverfisgötu 18: Hulda Hákon. Til 31. júlí. Ár- bæjarsafn: Þjóðbúningar og nærfatnaður kvenna frá fyrri hluta 20. aldar. Til 31. ágúst. Gallerí Sævars Karls: Sig- ríður Bachman Egilsson. Til 22. júlí. Gerðarsafn: Ný aðföng. Til 8. ágúst. Hallgrímskirkja: Steinunn Þórarinsdóttir. Til 1. sept. Handverk og hönnun, Að- alstræti 12: Sumarsýningin. Til 5. sept. Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi: Kynjaverur, ný leirlist frá Noregi. Til 1. ágúst. i8, Klapparstíg 33: Jeanine Cohen. Til 21. ágúst. Íslensk grafík, Hafnarhúsi: Frank Hammershøj. Til 18. júlí. Kling og Bang gallerí, Laugavegi: Paul McCarthy og Jason Rhoades. Til 29. ágúst. „McCarthy og Rhoad- es eru listamenn sem ögra viðteknum gildum.“ J.B.K. Ransu. KlinK & BanK, Brautarholti 1: Þrjár sýn- ingar; Sýnd & hljóð, Afleidd/ Afleitt og Sonic Pictures. Einnig er sýning nemenda úr LHÍ. Til 18. júlí. Listasafn ASÍ: Hafsteinn Austmann. Til 15. ágúst. Listasafnið á Akureyri: Hagvirkni. Til 22. ágúst. Listasafn Árnesinga: Krist- ján Guðmundsson. Til 11. júlí. Listasafn Ísafjarðar: Spessi. Til 1. ágúst. Listasafn Íslands: Umhverfi og náttúra – íslensk mynd- list á 20. öld. Til 29. ágúst. Listasafn Einars Jóns- sonar: Opið alla daga, nema mánudaga, kl. 14–17. Til 15. sept. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn: Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning. Til 2006. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Þorvaldur Þor- steinsson. Til 8. ágúst. Ný safnsýning á verkum Errós. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir: Francesco Clemente. Roni Horn. Til 22. ágúst. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Listaverk Sig- urjóns í alfaraleið. Til 5. sept. Opið alla daga, nema mánudaga, kl. 14–17. Til 1. okt. Listasafn Reykjanesbæjar: Erró – Fólk og frásagnir. Til 29. ágúst. Ljósmyndasafn Reykjavík- ur, Grófarhúsi: Finnsk sam- tímaljósmyndun. Til 29. ágúst. Norræna húsið: Samsýn- ingin 7 – Sýn úr norðri. Til 29. ágúst. Safnasafnið, Svalbarðs- strönd: 11 nýjar sýningar. Safn – Laugavegi 37: Opið mið.–sun. kl. 14–18. Sum- arsýning úr safnaeign. Leið- sögn alla laugardaga. Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar. Skaftfell, Seyðisfirði: Að- alheiður S. Eysteinsdóttir. Til 8. ágúst. Hanna Christel Sigurkarlsdóttir. Til 21. júlí. Þjóðmenningarhúsið: Handritin. Heimastjórn 1904. Þjóðminjasafnið – svona var það. Eddukvæði. Til 1. sept. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn: Hand- band á Íslandi 1584–2004. Kvennahreyfingar – inn- blástur, íhlutun, irringar. Söguleg útgáfa Guð- brandsbiblíu 1584 til vorra daga. Til 31. ágúst. Leiklist Vetrargarðurinn, Smára- lind: Fame, lau., fim. fös. „Dansar þeirra Björnsdætra eru flottir og vel leystir af leikhópnum.“ Þ.T. Austurbær: Hárið, lau., fim., fös. Iðnó: Light Nights, mán., fös. MARKVISS innkaup listaverka hófust í Kópavogi árið 1965 með stofnun Lista- og menningarsjóðs. Tólf árum síðar færðu erfingjar Gerðar Helgadóttur bænum 1.400 verk eftir listakonuna að gjöf og varð sú gjöf hvatinn að stofnun Listasafns Kópavogs, Gerðarsafni sem var opnað 1994. Nú tíu árum síðar sýnir safnið hluta af aðföng- um sínum þennan áratug sem lið- inn er frá opnun þess. Gerðarsafn er rekið af Kópavogsbæ án rík- isstyrkja og hefur um 3–4 miljónir til innkaupa á ári. Gert er ráð fyr- ir því að safnið leitist við eftir megni að festa kaup á þeim verk- um eftir Gerði Helgadóttur sem koma á markaðinn, sem og eftir Barböru Árnason en Kópavogsbæ var gefin vegleg gjöf með verkum hennar árið 1983, um 300 verk. Eðlilegt er að gera ráð fyrir að verð samtímalistaverka sé frá um hálfri milljón til einnar eða meira svo varla er hægt að gera ráð fyr- ir því að safnið geti endurspeglað íslenska samtímalist á raunsæjan hátt með innkaupum sínum. Á sýningunni nú má sjá verk eftir 33 listamenn, 48 verk af þeim 168 sem safninu hafa áskotnast þenn- an áratug. Það kemur ekki á óvart þar sem Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðukona safnsins, á í hlut, en það er engu að síður ánægjulegt hversu kynjahlutfallið er jafnt á sýningunni og án þess að hafa ná- kvæmar upplýsingar um það þori ég að fullyrða að án efa er hlutfall verka eftir konur í innkaupum hjá Gerðarsafni hærra en hjá öðrum söfnum landsins og er þó engin hætta á að safnið slái af í gæða- kröfum sínum. Það er einmitt stefna Guðbjargar sem hefur kom- ið safninu á kortið sem einum eft- irsóttasta sýningarstað íslenskra listamanna, framsýni hennar og dugnaður hefur komið mörgum listamanninum áfram á ferli sínum en sýningarstefna safnsins ein- kennist af fordómalausri og ein- lægri ást á myndlistinni, jafnt samtímans sem fyrri tíma. Verkin sem nú eru sýnd fylla þrjá sali safnsins. Það er mikil kúnst að raða saman ólíkum verkum eftir marga myndlistarmenn og mögu- leikarnir á samspili milli verka eru óþrjótandi, það sýnir sig líka hér. Þegar gengið er inn í austursalinn ríkir þar jafnvægi og kyrrð, þema verka er náttúra landsins sem birtist gjarnan á óhlutbundinn hátt og litir eins og rautt, appels- ínugult, hvítt og svart eru ríkjandi. Í vestursalnum ægir meira öllu saman, reyndar er óhjá- kvæmilegt annað þegar um sýn- ingu af þessum toga er að ræða. Stundum skapast skemmtilegar tengingar eins og milli abstrakt verks Bjarna Sigurbjörnssonar af yngri kynslóðinni og málverks eft- ir Þorvald Skúlason. Síður lyndir saman málverki Hallgríms Helga- sonar og Eggerts Péturssonar en það verk æpir á meira rými. Kjall- arinn í Gerðarsafni er leið- indasalur og erfitt að gera þar eitthvað skemmtilegt og hér njóta verk Þórs Vigfússonar sín ekki vel. Mér virðist vera leitast við að skapa næstum því dulúðuga stemningu líkt og annars heims en verk Þórs byggja á mínu mati á speglunarsamspili við umhverfi sitt og koma best fram í mikilli birtu. En í heildina er sýningin fjölbreytt og skemmtileg og þó hún geti ekki gefið mynd af öllu því sem verið er að gera í mynd- list í dag sjáum við þarna verk eft- ir marga okkar helstu listamenn síðustu áratuga sem og verk eftir eldri listamenn. Það er sér- staklega gaman að sjá eldri verk eftir eldri listamenn í bland við yngri í góðum samhljómi. Það væri bara óskandi að safnið hefði meira fé milli handanna í inn- kaupum sínum og kannski verður það á komandi árum. Ragna Sigurðardóttir Íslensk náttúra í verki Birgis Andréssonar í Gerðarsafni. MYNDLIST Gerðarsafn NÝ AÐFÖNG, ÝMSIR LISTAMENN Til 8. ágúst. Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Í góðum samhljómi ÞAU Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari héldu tónleika í Listasafni Sigurjóns á þriðjudagskvöldið. Á efnis- skránni voru verk úr ýmsum átt- um og ólíkum tímabilum og hóf- ust tónleikarnir á Sónötu II op. 2 nr. 2 eftir Vivaldi. Eins og annað eftir tónskáldið er þetta létt og lífleg tónlist og var úthugsuð túlkun þeirra Laufeyjar og Páls einkar sannfærandi. Öll helstu megineinkenni verksins skiluðu sér; það var helst að tæknilega hliðin á leik Laufeyjar hafi stundum ekki verið alveg eins og best verður á kosið. Inntónun var örlítið bjöguð, en sem betur fer gerðist það ekki oft. Hins vegar var Páll með allt sitt á hreinu og studdi fiðluleikarann út í ystu æsar. Sömu sögu er að segja um tvær sónatínur (nr. 4 og nr. 1) eftir Paganini, en öllu síðri þóttu mér tvö smáverk eftir Chopin, vals op. 34 nr. 2 og Næturljóð (op. Posth ef ég man rétt). Vals- inn var í útsetningu Sarasates en Næturljóðið hafði Nathan Mil- stein umskrifað; Páll hafði svo útsett píanópartinn fyrir gítar. Útsetningarnar voru í sjálfu sér ágætlega unnar en fiðluleikur Laufeyjar var full stirður; of mikið um að hún renndi sér á milli tónanna og virkaði það til- gerðarlegt og á köflum beinlínis óeðlilegt. Miklu betri voru tónsmíðarnar sem á eftir komu; „NADN“ eftir Færeyinginn Kristian Blak var í það heila fallega leikið af Lauf- eyju þrátt fyrir tæknilega hnökra hér og þar. Tangó eftir Zenamon var sömuleiðis túlkaður af viðeigandi tilþrifum. Hér sem annars staðar var Páll öruggur á sínu og einkennd- ist leikur hans af tæknilegu ör- yggi, skýru fingraspili og þéttum hljómi og fylgdi hann Laufeyju af nákvæmni og festu. Almennt talað voru þetta ekki slæmir tónleikar og vissulega er hljóðfærasamsetningin sjaldgæf hér á landi; alltaf er gaman að smá tilbreytingu! Jónas Sen TÓNLIST Listasafn Sigurjóns Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari fluttu verk eftir Vivaldi, Paganini, Chopin, Blak og Zenamon. Þriðjudagur 6. júlí. Í HÖFUÐSTÖÐVUM Orkuveitu Reykjavíkur, anddyri og hliðarsal, sýnir íslensk listakona sem kallar sig SwanHildur og er búsett á Bretlands- eyjum. SwanHildur vinnur hefðbund- inn skúlptúr í brons og marmara. Er um sömu áherslur að ræða og tíðk- uðust í tíð Arp og Ásmundar. Báðir voru Arp og Ásmundur þó talsmenn framvindu og hefur margt gerst í skúlptúr síðan í þá daga. Ekki síst hvað varðar hugsun okkar um rýmið sem hefur skipt sköpun fyrir þróun myndlistar síðustu 50 árin eða svo. Kvikmyndagagnrýnandi nokkur ritaði um kvikmyndina Ronin með Robert de Niro í aðalhlutverki, að hún hefði sennilega hlotið Ósk- arsverðlaun árið 1970 ef hún hefði verið gerð það árið, en 20 árum síðar er hún úr takti við tímann. Hið sama finnst mér um skúlptúra eins og SwanHildur sýnir. Þeir væru skráðir á spjöld sögunnar ef þeir hefðu verið gerðir fyrir um 85 árum, en í dag eru þeir íhaldssamir, bæði í formi og framsetningu. Þetta eru samt ágæt- lega gerðir gripir, vinnubrögðin vönd- uð, og sóma sér væntanlega vel á stofuborði þeirra sem hafa smekk fyr- ir massífum lögulegum hlutum og gera ekki meiri kröfur til myndlistar en það. Rósa. Eitt verka SwanHildar á sýningunni. MYNDLIST Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur Opið á skrifstofutíma. Sýningu lýkur 13. ágúst. HÖGGMYNDIR SVANHILDUR SIGURÐARDÓTTIR (SWANHILDUR) Jón B.K. Ransu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.