Íslendingaþættir Tímans - 18.10.1968, Síða 3

Íslendingaþættir Tímans - 18.10.1968, Síða 3
Á lieimili Jónasar 1913. Jónas við skrifborðið og frú Guðrún nveð Auði dóttir þeirra, fimm vikna. Jónas sem laugafi við skírn barns dóttursonar síns, Sigurðar Stein- þórssonar. Myndin er tekin 1967 og auk hans eru á lienni séra Jón Thorarensen og Helga Þórarinsdóttir, kona Sigurðar, með barnið. asti, fjöllhæfasti og afkaistamesti blaSamaöuir þjóSarinnar. Hann kunni betur en nokkur 'annar aS minna á og endurtaka þaS, sem ívann áleit, að ekki mætti niður falla, en jafnhliSa því aS vera stöSugt að brjóta upp á einhverju nýju. Áhugi hans var ekki tak- imarkaður við neitt eitt svið þjóð- málanna, þótt menntamálin og félagsmálin væru honum hug- leiknust, héldur við þau öll. Hann lét ekkert sér óviðkomandi og átti þáð sinn þátt í því, að mönn- um fannst stundum, að hann væri afskiptásamur og ráðríkur um of. Jón Sigurðsson og Jónas Jóns son eru vafalítið þeir stjórnmála menn íslenzkir, sem haf.a haift mesta yfirsýn um öll svið þjóð- málanna og reynt að láta sem víð- ast til sín taka. Það var Jónasi Jónssyni ómetan- legur styrkur í blaðaskrifum hans, að hann hafði kynni af fleiri mönnum en nokkur annar íslenzk ur stjórnmálamað'ur, sem var hon um samtíma. Hann stóð í persónu legum bréfaskriftum við hundruð manna víðsvegar um land. Hann talaði daglega við fjölda manna, þvi að menn komu víða að til að leita ráða hans og leiðsagnar. Hann notaði flestum meira sím- ann til að tala við menn, sem voru fróðir, hugmyndaríkir og áhuga samir um þau málefni, sem hann bar fyrir brjósti. Þannig fylgdist hann ekki aðeins vel með því, sem var að gerast, heldur fékk margar hugmyndir, sem hann studdist síð an við í blaðaskrifum sínum. Þegar menn fletta árgöngum Tímans frá þessum tíma, munu sennilega fái-r trúa því, að öll skrif Jónasar í þágu Tímans, voru unnin sem hjáverk og hann tók aldrei neina borgun fyrir þau. Af þessu má bezt ráða hve einstakur afkastamaður hann var. Hann var á þessum árum ýmist ráðherra eða skólastjóri og rækti bæði þessi störf af mikilli skyldurækni. Iíann þurfti flesta daga að mæta á fleiri eða færri fundum og mik ill tími fór í viðræður við menn og bréfaskriftir. Oft hafði Jónas ekki annan tíma til að skrifa grein ar sínar en nóttina. Eg minnist þess, þegar ég vann með Jónasi við Nýja dagblaðið og Tímann, að hann hringdi oft til mín fyrir klukkan átta að morgni eða áður en hann fór í skólann og hafði hann þá lokið að skrifa grein, sem \ átti að birtast næsta dag. Iðulega varð hann að skrifa greinar sínar á hlaupum, ef svo mætti segja. Hann hafði skrifað upphafið heima hjá sér um morguninn, framhald ið skrifaði hann svo undir um- ræðum á Alþingi og niðurlágið í prentsmiðunni, þegar hann fór heim um kvöldið. Sjaldan sáust þess merki á slikum greinum, að þær hefðu verið skrifaðar þann ig í áföngum, og höfundurinn þurft að hugsa um önnur verkefni samtímis. Brautryðjendastarf og urnbóta- barátta Jónasar Jónssonar gerði hann að umdeildasta stjórnmála- manni þjóðarinnar um langt skeið. En stjórnmálagreinar Jónasar áttu og drjúgan þátt í þessu. Jón as sótti hart að andstæðingum sín um og sveið því meira undan greinum hans, sem þær voru snjatl ari og markvissari öðrum blaða- skrifum. En óvægilegar var líka vegið að Jónasi en nokkrum öðr- um hérlendum stjórnmálamanni, svo að hann átti andstæðingunum grátt að gjalda og sparaði það ekki heldur. Margir eldri menn sakna þessara hjaðningavíga, og finnst stjórnmálaskrif blaðanna nú lit- lausari og svipminni en áður var. En þótt Jónas ætti oft í miklum ÍSLENDINGAÞÆTTIR 3

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.