Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 18.10.1968, Qupperneq 23

Íslendingaþættir Tímans - 18.10.1968, Qupperneq 23
í Harðangri í Noregi upp úr 1920. Frá vinstri: Gerður, frú Guðrún, Jónas og Auður. voru alla ævi að leita að fólki og leiða það til starfa, nánast á öilum sviðum þjóðlífsins, og sá hópur er orðinn stór, sem þeim hefur tekizt að koma til starfa við sitt hæfi í þjóðfélaginu. Eftir að kona Jónasar andaðist 15. janúar 1963, hefur Jónas ekki verið nema skuggi af sjálfum sér, þau hjónin voru svo samgróin í starfi sínu og sambúð, að þau Voru í rauninni óaðskiljanleg, og fjöiskylda Jónasar og heimilislíf var miklu nánara heldnr en al- mennt gerist. Þau hjón áttu tvær dætur, Auði og Gerði, sem báðar eru á lífi, og þau hjónin mynduðu nánast eina heild svo náið var sam starfið og samfélagið innan fjöL^ skyldunnar. Miklar iþakkir á þjóðin Guðrúnu konu Jónasar að gjalda, fyrir að hafa búið Jónasi það heimili, sem veitti honum skjól og hvíld og gerði honum kleift að vinna hin margvíslegu þjóðmálaafrek sín og það hlutverk tóku dæturnar upp að móður sinni látinni. Nokkrir vinir Jónasar fengu hinn þjóðkunna snilling, Ríkharð Jóns- son fyrir nokkrum árum til þess að gera líkneski af Jónasi Jónssyni og hefur Rikharður lokið frum- myndinni, en á eftir að breyta myndinni til fullrar stærðar og er þess vænzt, að honum takist að Ijúka því verki á þessu ári, og Verður þá likneskjan steypt í var- anlegt efni og henni valinn fram- tíðarstaður. Eftir að Jónas Jónsson lét af þingmennsku minnkuðu afskipti hans af flokksmálum Framsóknar- flokksins og Jónas sneri sér meira að þjóðmálum á breiðari grund- velli en flokkssjónarmið rúma, en þó varð Framsóknarflokkurinn aldrei frá Jónasi skilinn eða Jónas skilinn frá flokknum, og kom þetta glöggt í ljós er Framsóknarflokk- urinn minntist hálfrar aldar af- mælis síns, þegar Jónas gekk i sal- inn, þar sem afmælis þessa var minnzf, þá var eins og fagnaðar- bylgja færi um hinn mikia fjöida, sem þar var sa'mankominn og mað ut sagði við mann: Jónas er kom- inn. Byggðir landsins bera varanleg merki starfa Jónasar frá Hriflu. Alþýðuskólar, brýr og vegir og sjálfri Reykjavík væri sjónarsvipt- ir, ef áhrif Jónasar á borgina hyrfu, má þar nefna Þjóðleikhús- ið Háskólabygginguna, Sundhöll- ina, Arnarhvol og Haligrímskirkju svo stiklað sé á stóru. Við andlát Jónasar frá Hriflu, setur menn hljóða og þakkiátar minningar fylla hugi manna, og fólkið finnur, að þjóðin á á bak miklum foringja að sjá En bjarminn er hinn sami yfir brúnum fjalla á brúðkaupsdegi og við jarðarför, og nú er það þjóðar- innar allrar og þá ekki sízt ungu kynslóðanna, sem landið erfa að varðveita og ávaxta þann hugsjóna arf sem Jónas frá Hriflu lætur eft- ir sig. Dauðinn er þýðingarlítill atburð ur í lífi Jónasar Jónssonar. Andi hans lifir í verkum hans og arf- leifð þeirri, sem hann skilur þjóð- inni eftir og andlát Jónasar bar að með peim hætti, sem Matthías kvað endur fyrir löngu: Dæm svo mildan dauða, Drottinn þínu barni. eins og léttu laufi lvfti blær frá hjarni, eins og lítill lækur Ijúki sínu hjali, þar sem lygn í leyni liggur mar- i)ín svali. En skáldjöfurinn, Einar Bene- diktsson spannaði með þessum orð um: En innsta hræring hugar míns, hún hverfa mun til upphafs síns sem báran endurheimt í hafið. Helgi Benediktsson. □ ÍSLENDINGAÞÆTTIR 23

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.