Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1973, Side 5

Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1973, Side 5
Jóhann Bjarnason Fæddur 18. okt. 1902 Dáinn 14. des. 1972 Jóhann Bjarnason var fæddur að Leiðólfsstöðum Laxárdalshrepp Dal. Foreldrar Margrét Guðmundsdóttir húsfrú og Bjarni Hallgrimsson bóndi Leiðólfsstöðum. Jóhann frændi dáinn, get vart trúar, en dauðinn flýr enginn, við sem eftir lifum, eigum stundum allerfitt með að sætta okkur við þegar vinir og vandafólk er kvatt i burtu, stundum fyrirvaralaust. Eins er það nú, þegar einn af okkar góðu samferða- félögum er kallaður burtu, finnum við sárt til, að þurfa að kveðja fyrir fullt og allt, góðan og elskurikan félaga. Hæfileika og mannkostamaður var hann, hans leiðarstjarna og takmark, var að láta gott af sér leiða, miðla öðrum , og greiða götu samferðafólks- ins með sinu hugljúfa og milda geði, gerði hann öðrum götuna bjartari framundan, og tilveruna léttari, þvi var öðru fremur gott i hans návist að vera. Mér er og verður alltaf i minni min fyrstu kynni við Jóhann, þegar hann var barnakennari hér i sveitinni veturinn 1923, var ég byrjandi á skóla- bekk, hæfileikar hans sem barna- kennara hafa eflaust verið til staðar, þótt ég kynni ekki að meta það þá, en fundið það æ betur eftir þvi sem árin hafa liðið, að þarna var á ferðinni af- burða barnakennari, hann var óþreyt- andi á að skýra fyrir okkur, tilgang til- veru okkar, skýrði það á þann hátt, að unglingurinn skildi það. Ungur fór hann i skóla, eða strax eftir að barnaskóla lauk, var einn vetur i Hjarðarholtsskóla, og áfram stundaði hann nám i þvi augnamiði að verða barnakennari, sem og hann .stundaði i nokkur ár, en hvarf frá þvi, og réðist til Kaupfélags Hvamms- fjarðar Búðardal árið 1925, og vann þar i 28 ár samfleytt, eða til ársins 1953. Fluttist þá til Reykjavikur og réðist til Sambands islenzkra sam- vinnufélaga, starfaði á vegum þess til dauðadags, frá árinu 1959 gerðist hann framkvæmdastjóri Bréfaskóla S.I.S. Mikill starfsmaður var hann og greindur i bezta lagi, hafði yndi af lestri góðra bóka, og kynnti sér bók- menntir eftir föngum, átti sjálfur gott islendingaþættir bókasafn, stundaði og hafði á hendi i sveit sinni hreppsbókasafnið um ára bil, dafnaði safnið vel i höndum hans. 011 þau störf sem honum voru falin á hendur, leysti hann af hendi með alúð og samvizkusemi, skrifaði afbragðs rithönd svo að af bar. Skrifstofustörf stundaði hann lengi hjá kaupfélaginu, mun þvi rithönd hans stllhrein og fögur geymast lengi. Mikill hugsjóna- maður og listfengur i bezta lagi, átti gott með að koma skoðunum sinum i góðan búning, ræðumaður góður, og þeir sem minna máttu sin, áttu góðan málsvara, þar sem hann var Snemma gekk hann i ungmennafélagið „Ólafur pá” vann i þvi félagi um þrjátiu ár, formaður þess um árabil, eða sam- fleitt i stjórn yfir tuttugu ár. Ung- mennafélaginu unni hann af heilum hugy undir hans handleiðslu óx það og dafnaði og einmitt i hans formannstið eignaðist félagið samkomuhús, og var það mikil lyftistöng fyrir félagsstarfið, var það ekki hvað sizt að þakka dugn- aði og ósérhlifni Jóhanns. Leikstarfssemi stóð með miklum blóma innan vébanda félagsins á þeim árum, og munu margir minnast með óblandinni ánægju þeirra stunda, er Jóhann skemmti á sviði. Leiklistar- hæfileika hafði hann i rikum mæli, raunar sama hvað hann tók sér fyrir hendur, allt virtist svo leikandi létt, fagurt og gott. Um skeið var hann formaður Ung- mennasambands Dalamanna, auk þess sem honum voru falin ýmis trúnaðar störf fyrir sveit sina, sem hann leysti af hendi, með alúð og trú- mennsku, sem hann hafði i svo rikum mæli. Giftur var Jóhann Þuriði Skúla- dóttur frá Gillastöðum, Laxárdals- hreppi, Lifir hún mann sinn, mikilhæf mannkostakona, var hún manni sinum samhent i öllu, skapaði þeim og börnum þeirra, myndarlegt, gott og elskulegt heimili, gestkvæmt var oft á heimili þeirra, alltaf góður beini veittur, hverjum sem að garði bar. Með þakklæti i huga minnist ég margra gleði og ánægjustunda á heim- ili þeirra hjóna. Barnaláni áttu þau hjón að fagna i rikum mæli, hafa börnin og barnabörnin veitt þeim marga ánægju og gleðistundina frá fyrstu stundum þeirra hér i veröld. Börn þeirr eru: Bjarni Hliðkvist framkvæmdarstj. Borgarnesi giftur Guðnýju Þorgeirs- dóttur, Una Svanborg húsfrú, Búðar- dal gift Boga Steingrimssyni (hann látinn). Skúli Hliðkvist, trésmiöur, Búðardal giftur Guðrúnu Mariu Björnsdóttur, ómar Hliðkvist, Reykjavik giftur Sesseliu Hauks- dóttur. Að lokum þetta, viö ung- mennafélagar i „Ólafi pá” þökkum þér, Jóhann, fyrir mikil og vel unnin störf i þágu félagsins, undir kjörorðinu „Island allt”, og munum geyma og varðveita minninguna um góðan og skyldurækinn félaga, meðan aldur entist, hafðu þökk fyrir allt og allt. Vertu sæll, frændi minn. Við sendum Þuriði Skúladóttur og fjölskyldunni allri okkar fyllstu sam- úðarkveðjur. 29. janúar 1973 Benedikt Jóhannesson 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.