Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 21.06.1973, Qupperneq 1

Íslendingaþættir Tímans - 21.06.1973, Qupperneq 1
ÍSLENDINGAÞJETTIR Fimmtudagur 21. júní 37. tbl. 6. árg. Nr. 122 TIMANS Kristján Karl Júlíusson kennari f. 17. júni 1913, d. 6. júni 1973. Örfá kveðjuorð ER MÉR að morgni þess 7. þ.m. barst sú sorgarfregn, að vinur minn og fyrr- verandi samstarfsmaður Kristján Karl Júliusson, kennari i Bolungarvik væri látinn, setti mig hljóðan. Það er eins og dauðinn komi manni alltaf jafnmikið á óvart, þó er hann sá, sem við öll eigum visan, og getum svo að segja við hvert fótmál átt von á. Kristján Júliusson var fæddur á Hóli i Bolungarvik 17. júni 1913. Foreldrar hans voru Július Hjaltason og Guðrún Guðmundsdóttir. Kristján stundaði nám i unglinga- skóla Bolungarvikur 1931-1933. Kennaraprofi frá Kennaraskóla Islands lauk hann 1939. Kristján kenndi á mörgum stöðum næstu árin. Hann var skólastjóri við barnaskólann á Finnbogastöðum i Arneshreppi og barnaskólann á Flúðum i Hrunamannahreppi, en lengst af kenndi hann i fæðingarhéraði sinu, Bolungarvik, eða frá 1947 og til dauðadags. Hann kvæntist árið 1941 eftirlifandi konu sinni, Ketilriði Jakobsdóttur, ættaðri frá Reykjafirði á Ströndum. Þessi þurra upptalning um störf, nám og æviatriði segir fátt um manninn sjálfan, gerð hans og lifsvið- horf, en það er þó það eina, sem skiptir máli. Fjörutiu ár er langur timi, miðað við hina skammvinnu mannsævi. Eftir þvi sem við eldumst finnst okkur timinn fljótari að liða. Það eru nú nákvæm- lega 40 ár siðan fundum okkar Kristjáns bar fyrst saman. Það var i Kennaraskólanum. Þótt margt hafi breytzt, þá finnst mér, er ég lit til baka, þetta vera aðeins örstuttur timi, — eins og eitt svipstundarfiug. Og nú er hann allur. Kynni okkar Kristjáns urðu allnáin. Við vorum sambýlismenn um tima,og i átta ár vorum við samkennarar við barna- skólann i Bolungarvik. Við fáa sam- starfsmenn mina hefur mér likað betur en Kristján, og ber margt til, en þó einkum hreinlyndi hans, brennandi áhugi góðvild og bjartsýni. Saga hans var svo sannarlega bar- áttu- og hetjusaga. Hann var i minum augum framúrskarandi karlmenni. Ungur að árum veiktist hann mjög alvarlega og lá rúmfastur svo árum skipti. Lækning tókst að nokkru, — en örkumlamaður varð hann þó ævilangt. 1 raun og veru var hann ófær til erfiðisvinnu, þótt hann yrði oft, vegna þröngs efnahags að stunda hana. Það hefðu ekki margir gert i hans sporum. Kristjáni var og ljóst, að hann yrði að leita sér annarra úrræða, ef hann ætti að geta séð sér farborða. En hér var við mikla örðugleika að etja. Föður sinn hafði Kristján misst ungur og skyldfólk hans var ekki svo efnum búið, að það gæti stutt hann til náms, enda ástand i atvinnumálum eitt hið erfiðasta, sem um getur hér á landi — heimskreppan i algleymingi. En óbugandi karlmennska og bjartsýni voru dýrmætustu eiginleikar Kristjáns. Svo að segja allslaus brauzt hann áfram til náms. Ég held að Kristján hafi valið sér heppilegt ævistarf. Hann var góður kennari. Hann hafði svo einstaklega gott vald á nemendunum, einbeittur, ákveðinn, en hlýr. Þótt Kristján væri alla tið snauður af veraldlegum fjármunum og ætti við mikla örðugleika að striða, var hann þó að ýmsum leyti mikill gæfumaður. Hann naut virðingar i starfi og hlýju sinna mörgu nemenda — en mesta gæfa hans i lifinu var hans góða kona, sem reyndist honum ætið dásamlegur lifsförunautur. Hann eignaðist einnig mörg börn, sem öll eru manndóms- fólk. Siðast er ég kom til Bolungarvikur hafði hann einmitt orð á þvi við mig, hve mikill gæfumaður hann væri að þessu leyti. Mér finnst, að nú verði ekki eins gaman að koma til Bolungarvikur er Kristján vinur minn er horfinn, en um þetta þýðir ekki að sakast, þetta er leiðin okkar allra. Ég votta Ketilriði og börnunum mina dýpstu samúð. Ég kveð þig með söknuði Kristján minn. —- Agúst Vigfússon f

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.