Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 21.06.1973, Qupperneq 2

Íslendingaþættir Tímans - 21.06.1973, Qupperneq 2
Hann lézt 6. júni s.l., sama dag og hann kom heim til sin af sjúkrahúsi i Reykjavik. Um það bil einum mánuði áður veiktist hann snögglega og var þá fluttur i Fjóröungssjúkrahúsið á Isa- firði og nokkru siðar á sjúkrahús i Reykjavik. Kristján var fæddur á Hóli i Bolungarvik 17. júni 1913, og var þvi að verða sextugur. Foreldrar hans voru þau hjónin Guðrún Sigriður Guð- mundsdóttir frá Bæ i Arneshreppi Strandasýslu og Július Jón Hjaltason, sjómaður i Bolungarvik, en hann var ættaður frá Nauteyri á Langadals- strönd N-ls. Kristján stundaði nám i unglingaskólanum i Bolungarvik á árunum 1931-33, en kennaraprófi frá Kennaraskóla Islands lauk hann 1939. Hann var kennari i Grunnavikur- hreppi 1939-41 og i Bolungarvik 1941-43. Skólastjóri barnaskólans á Finnboga- stöðum i Arneshreppi var hann 1943-46 og á Flúðum i Hrunamannahreppi árin 1946-48. 1 Hnifsdal var hann kennari 1948-49 og frá 1949 var hann kennari við Barnaskóla Bolungarvikur, nema hvað hann kenndi ekki siðast liðinn vetur. Hann var fjölhæfur, samvizku- samur og ágætur kennari, sem lét sér mjög annt um velferð nemenda sinna. A þeim tima sem kennsla stóð ekki yfir vann Kristján jafnan að ýmsum störfum, svo sem skrifstofustörfum eða smiöum. Hann var hinn mesti starfs- og hagleiks maður. Um almenn félagsleg málefni var Kristján mjög áhugasamur, og mál- efni stéttar sinnar lét hann sig alltaf miklu varða. Að málefnum Sjálfsbjarg ar vann hann mjög mikiö. Hann var einn af aðalhvatamönnum að stofnun Sjálfsbjargar-félagsins i Bolungarvik og lengi formaður þess. A unglings- árum sinum átti hann sjálfur við lang- varandi veikindi að striða og skildi þvi mæta vel.hve störf Sjálfsbjargar eru mikils virði fyrir hina sjúku og þjóð- félagiö i heild. Hann var mikill unn- andi tónlistar og átti veigamikinn þátt 1 þvi að efla kirkjukórinn i Bolungar- vik á sinum tima. Gagnkunnugur maöur segir,að Kristján hafi veriö jafn hraölæs á nótur sem venjulegt prent- letur. Sjálfur lék hann á fiðlu, sjálfum sér og kunningjum sinum til hugar- hægöar og uppörvunar. Um skeið átti hann sæti i hreppsnefnd Hólshrepps. Kristján var einlægur félagshyggju- og samvinnumaöur og hugsaði miklu meira um þau mál en almennt gerist. Kristján var einn af forustumönnum Framsóknarflokksins i sinu byggðar- lagi og vann vel og lengi að málefnum flokksins. I mörg ár var hann formað- ur Framsóknarfélags Bolungarvikur. Hann var oft fulltrúi á flokksþingum 2 og miöstjórnarfundum, m.a. á siðasta miðstjórnarfundi, sem haldinn var i vor. Hann sat mörg kjördæmisþing Framsóknarmanna i Vestfjarðakjör- dæmi, og tók þá alltaf mikinn þátt i af- greiðslu mála. I blaðstjórn ísfirðings var hann lengi og skrifaði oft greinar i blaöiö. Hann var fréttaritari Timans i Bolungarvik um árabil. Eftirlifandi eiginkona Kristjáns er Ketilriður Jakobsdóttir, frá Reykjar- firði i Grunnavikurhr. hin mætasta kona. Þau giftust 23. des. 1941. Börn þeirra eru: Guðrún Hólmfriöur, Björg, Aöalsteinn, Jakob Hallgrimur, Bene- dikt Ketill, Július Hraunberg og Guð- mundur Magnús. Þá ólu þau upp einn fósturson, Kristmund Sæmundsson. 011 eru börnin myndarleg, vel gefin og dugmikil. Kristján Karl Júliusson haföi næmt auga fyrir fjölbreytni og fegurð lands sins,og hann kunni vel að meta og njóta samvista við hina óspilltu is- lenzku náttúru. Ar og veiðivötn heill- uðu hann mjög og hann hefur skrifað skemmtilega þætti, bæði i Isfirðingi. og önnur blöð, af fangbrögðum sinum við laxinn. 1 viðkynningu allri og við- ræðu var Kristján hinn skemmtileg- asti maður, glaðvær jafnan, og hann kunni vel að haga svo máli sinu aö eftir væri tekið. Hann verður samferða- mönnum sinum eftirminnilegur sök- um mannkosta sinna og góðvildar. Jón A. Jóhannsson t Minir vinir fara fjöld feigðin þessa heimtar köld ég kem eftir kannski i kvöld með klofinn hjálm og rofinn skjöld brynju slitna sundrað sverð og syndagjöld. H.J. Þann 6. þessa mánaðar lézt á leið- inni frá heimili sinu á sjúkrahúsiö á tsafirði, Kristján Karl Júliusson, kennari i Bolungarvik. Þann sama dag haföi hann komið heim eftir nokkra sjúkrahúsvist, fyrst á Isafirði og siöar á Landsspitalanum i Reykjavik. Heimferðin gekk að óskum, heim þráði hann að fara og þangað var hann nú kominn glaður og léttur i skapi eins og hann átti jafnan vanda til, viö eðli- legar aðstæður, þvi „römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til”. En skjótt skipast veður i lofti, nokkru eftir miðjan dag var hann allur, og má þar meö sanni segja að enginn ræður sin- um næturstað. En þrátt fyrir alltheim var hann kominn á æskustöðvarnar þangað, sem hann hafði eytt að mestu starfskröftum sinum s.l. 24 ár. Kristján var fæddur að Hóli i Bolungarvik 17. júni 1913 og skorti þvi aðeins 11 daga til aö fylla sjötta ára- tuginn þegar hann lézt. Ýmsir atburðir verða til þess að leiðir okkar mann- anna liggi saman. Það mun hafa verið haustið 1939ioktóber-mánuði að góöan gest bar að garði. Nýr farkennari kom i Grunnavikurhrepp, sem var og alltitt þar i þá daga á meðan öll býli voru þar i byggð. Þessi kærkomni gestur var Kristján Karl, þá nýútskrifaður úr Kennaraskólanum og var það i fyrsta skipti , sem ég sá þennan siunga lifs- glaða mann fullan af áhuga og lifs- þrótti, og fús til að miðla öllum af þekkingu sinni, eldri sem yngri, eftir þvi sem efni stóðu til, þvi maðurinn var fróðleiksfús og gat átt skemmti- lega kýmnigáfu.ef þvi var aö skipta og hrókur alls fagnaðar i vina-og kunn- ingjahópi. Þetta ár byrjuðu okkar fyrstu kynni, sem hafa haldizt óslitið siðan fram á þennan dag og aukizt jafnan eftir þvi sem árin liöu. Siðustu 22 árin höfum við verið nábýlismenn og átt mörg sameiginleg hugðarefni, sem við unnum að bæði i tómstundum og utan þeirra. Eitt var það þó, sem einkenndi þennan vin minn ööru frem- ur, það var hans hálpfýsi og greiða- semi. Hygg ég.að sú rausn hafi jafnvel stundum gengið lengra en efni leyfðu, en það var hans veika hlið að láta ei nokkurn bónleiðan frá sér fara. Þann- ig var hans gerð. Kristján Karl gekk lengst af ævinni ekki heill til skógar sjúkdómur herjaði á hann strax i barnæsku og á tólfta aldursári veröur hann að fara á sjúkrahús og dvelja þar samfellt á sjötta ár. Þar fékk hann sina barnafræðslu og þar staðfesti hann skirnarsáttmála sinn 1927. Geng- ur siðan undir stóra skurðaðgerð hjá Vilmundi Jónssyni, siðar landlækni, sem mun hafa heppnazt vel og fer siðan út af sjúkrahúsinu i sept. ’30. Þessi dvöl mun hafa veriö þungur reynsluskóli fyrir ungling, sem er að mótast og ganga fyrstu sporin út i lifið, en þrátt fyrir það leit hann alltaf björt- um augum til framtiöarinnar. En áfram varbrotizt fyrst tvo vetur i ung- lingaskóla þvi næst Kennaraskólann eins og áður er sagt. Aðalævistarf hans var aö visu barnakennsla þó innti hann af hendi önnur störf, sem á hann hlóð- ust. Um árabil var hann útsölumaður dagblaðsins Timans og fréttamaður hans nú hin siðari ár. Aö söngmálum starfaði hann allmikið fyrir sitt byggöarlag og formaður Kirkjukórs Hólssóknar.þá er hann lézt. Sönggyðj- an var svo rik i eðli hans,að hún var hans annar heimur og ekki er mér islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.