Íslendingaþættir Tímans - 06.07.1974, Síða 3

Íslendingaþættir Tímans - 06.07.1974, Síða 3
Jónína Magnúsdóttir Lokið var langri og reynslurikri ævi, þar sem Jónina Magnúsdóttir kvaddi þennan heim á átttugasta og fimmta aldursári, hinn 18. april siðastliðinn. Hún fæddist 10. júli 1889 að Innri-Ás- láksstöðum á Vatnsleysuströnd, en þar bjuggu þá foreldrar hennar, Magnús Magnússon og Ingibjörg Jóns- dóttir. Olst Jónina upp i foreldrahús- um, ásamt sex systkinum sinum. Eru nú þrjú þeirra eftir á lifi, Vilborg, Magnús og Guðrún, öll búsett i Reykjavik. Fljótt eftir fermingaraldur, eða jafnvel fyrr, fór Jónina að vinna utan foreldrahúsa, og þá með þvi fyrsta hjá þeim hjónum Elinu og Bjarna Stefáns- syni á Stóru-Vatnsleysu. Þar og þá mun hún fyrst hafa kynnzt mannsefni sinu, Helga Jónassyni, . gæða- og mannakostamanni, sem heima átti að Nýjabæ , þarna á Vatnsleysutorfunni. Þau Helgi og Jónina giftust svo 30. nóv. 1912 og áttu heima i Nýjabæ sin ing, slikt ævistarf er gott að eiga og vissulega veit ég af eigin raun hve sveitastörfin eru tilbreytingarik og þroskandi á margan hátt. Hann var maður vel greindur og ihugull, hugsaði og ræddi ýmis mál og gerði sér far um að krytja þau til mergjar. Hann var áhugamaður um landsmál, einlægur samvinnumaður og framsóknarmaður alla tið en fordómalaus i annarra garð, m.a. gladdist hann mjög yfir þeirri vinstri samvinnu, sem nú hefur rikt að undanförnu og áleit þar rétt að staðið hjá sinum flokki. Trúnaðarstörfum gegndi hann ýmsum, sat m.a. I hreppsnefnd eitt kjörtimabil, var ákveðinn án óbilgirni, sveigjanlegur án hringlandaháttar. Margvisleg kynni okkar Baldurs leiddu til þess, að ég mat manninn mikils og tel sjónar- svipti að honum i okkar fámenna sveitarfélagi. Greiðasemi var honum i blóð borin, af henni hafði hann yndi og ánægju, skapgerð hans öll var eins og maðurinn sjálfur i sjón, traust og ákveðin, en jafnframt hlý og einlæg ef þvi var að skipta. Baldur var fæddur að Bárðarstöðum i Loðmundarfirði 28. nóv. 1916, sonur hjónanna Þóreyjar Sigurðardóttur og Einars Sölvasonar bónda þar. I Loðmundarfirði. Atti átti Baldur svo heimili sitt allt til ársins 1953, að samvistarár. Þau eignuðust tvö börn, son, Magnús f. 2. apríl 1914, og dóttur, Ólöfu f. 17. sept. 1915. En skammvinn varð sambúð ungu hjónanna i Nýjabæ, þvi að Helgi drukknaði, er vélbáturinn Hermann frá Vatnsleysu fórst i aftaka veðri með allri áhöfn, 24. marz 1916. Varð það sjóslys þungt áfall fyrir Vatnsleysubæina og olli óhjákvæmi- lega djúpum sorgarsárum. Þar fórust þeir bræður Helgi og Jón Jónassynir og mágur þeirra Sigurður Lárusson, sem var formaður á bátnum. Það fólk, sem þarna hafði mest misst, var Ingi- björg Jónsdóttir, mann sinn frá þrem börnum og tvo bræður, aldraðir foreldrar, Jónas og Ólöf, tvo syni og tengdason og Jónina mann sinn frá tveim ungum börnum. Ekki lét hún þó bugast, fremur en þetta sorgmædda fólk, en varð það efst i huga að reyna nú af fremsta megni að sjá sér og börnum sinum borgið.Um haustið 1916 flyzt hún til Hafnarfjarðar hann fluttist að Sléttu I Reyðarfirði og bjó þar til dauðadags. 1937 útskrifaðist hann frá Bænda- skólanum á Hvanneyri og reyndist bú- fræðinámið honum haldgott vegar- nesti varðandi ævistarfið, þvl bóndi var hann ágætur. Hinn 22. nóv. 1940 gekk hann að eiga eftirlifandi eigin- konu slna, Guðbjörgu Sigurjónsdóttur frá Borgarfirði eystra, sérstaka dugn- aðarkonu, glaðlynda og greinda, sem ævinlega er jafngott að hitta. Börn þeirra hjóna eru 5: Sólveig húsmóðir I Reykjavik, Þórey húsmóð- ir á Reyðarfirði og ljósmóðir þar, Sigurður bóndi á Sléttu, Einar skóla- stjóri I Tunguholti, Fáskrúðsfirði (Sigurður og Einar eru tviburar) og Sigurjón loftskeytamaöur i Neskaup- stað. 011 eru þau systkini mannkosta- fólk hið mesta og barnalán þeirra hjóna mikið. Lifssaga Baldurs varð alltof stutt, en hún var i hvivetna ágæt, minning góðs drengs, greinds dugnaðarmanns mun áfram lifa. Ég færi honum hugheilar þakkir fyrir kynningu og samstarf og sendi öllum hans aöstandendum, einkum konu og börnum innilegar samúðar- kveðjur. Helgi Seljan. og er þar busiyia uja ukcuíuuí sinum, Magnúsi og Sigurði, næstu sex árin. Eftir það býr hún ein með börnum sinum, og ræðst þá oft til starfa i sveit á sumrum, en stundar annars vinnu heima i Hafnarfirði, svo mikið sem unnt er og vinnu er að fá. En ekkert uppgripakaup var hjá konum, þá, er enn rikti það hefðbundna óréttlæti, að greiða þeim litið meira en hálft kaup, við það sem karlmenn fengu. Jónina þurfti vissulega mikið að vinna, og var orðlagður dugnaður hennar, starfsþrek og skyldurækni. Aftur sótti sorgin Jóninu heim, er einkasonur hennar dó, þá orðinn 17 ára, mesti efnispiltur. En ekki lét hún þó bugast. Enn átti hún dótturina, Ólöfu, og hjá henni og tengdasyninum, Simoni, dvaldist hún siðasta áratug ævi sinnar. Þá var starfsþrek hennar farið mjög að bila. Auk þess ágerðist sjóndepra með hverju árinu sem leið. En á dótturheimilinu hefur henni ekki hvað sizt verið dýrmæt samvistin við dótturbörnin, er verið hafa ömmunni sem sólargeislar i áfallandi húmi ævi- kvöldsins. Og á dótturheimilinu munu lengi lifa hugljúfar minningar um ást- rika móður og ömmu, sem svo mikið átti af innilegri guðstrú, góðleik og hjartahlýju. Allir þessir nánustu ástvinir, syst- kini hennar og systrabörn, kveðja hana með innilegri ósk um eilifa bless- un á landi lifenda. Allir, sem Jóninu þekktu bezt, kveðja hana með virðingu og þökk. J.H. 3 islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.