Íslendingaþættir Tímans - 06.07.1974, Blaðsíða 7

Íslendingaþættir Tímans - 06.07.1974, Blaðsíða 7
® Þórður prestakalli þann vetur, vegna fjarveru séra Guðmundar Helgasonar, sem var þá að taka við forstöðu Búnaðarfélags Islands úr hendi Þórhalls Bjarnarson- ar, siðar biskups. Við stöldruðum nokkuð að messunni lokinni, og kom þar tali okkar, að Þórður segir við bróður sinn : „Eigum við ekki að nefna það við hann?” og benti til min, og játti Jóhannes þvi. En málefnið, sem þeim var nú efst i huga, var stofnun ungmennafélags i sveit- inni okkar, en félögin voru þá að hefja göngu sina. U.M.F. Akureyrar var stofnað 1906 og U .M .F. Reykjavikur og Iðunn 1907, tekin til starfa. Ég tók máli þeirra bræðra af fegin- leik, enda hafði ég verið með það i huga um stund hér i Reykjavik. Hann sagði mér frá U.M.F. Akureyrar og störfum þess nánar en ég hafði séð af blöðum. Hafði Runólfur kynnzt þvi og orðið hrifinn af anda og stefnu þess. Hann varð siðar bóndi á Kornsá og for- ystumaður i félagsmálum Húnvetn- inga, og þjóðkunnur hæfileikamaður. Af samtölum við hann hreifst ég af ungmennafélagshugsjónunum og fannst, að mér bæri að kynnast þeim meir, anda þeirra, stefnu og starfi. — Frá þessu samtali okkar fjögurra i Reykholti þennan dag var það eitt að segja til viðbótar, að við bundum það fastmæium að hefja þá þegar undir- búning að stofnun sliks félags. hafa not af hjálpartækjum,sem hafa fullkomnast með árunum. Svo ekki verður annað sagt en að mikið hafi birt upp i þeim ranni. En þrátt fyrir erfiða ævi verða sól- skinsdagarnir fleiri. Fyrir allnokkrum árum kynntust þau Elias Bernburg og Inga, og var það mikil gæfa fyrir hana að eignast heimili og finna umhyggju hans, sem var frábær, ekki sizt i henn- ar mikla sjúkdómsstriði. Giftu þau sig nú fýrir stuttu til að innsigla þá miklu ást og virðingu, sem þau báru hvort til annars. Séfstöku þakklæti er mér ljúft að koma á framfæri frá vinafólki sem tregar nú góðan vin. Stórt skarð er höggvið i þann litla hóp, þegar vinur hverfur úr þessu jarðlifi, ekki sizt i fámennum hóp, sem stundum virðist vera litill heimur i okkar stóra jarðlifi. Þar verða kynnin meiri innbyrðis, hjálpsemi og samúð meiri ef eitthvað skyggir á. Við hjónin vottum eiginmanni, móð- ur, syni, öðrum ættingjum og vinum innilega samúð okkar. Guðmundur Egilsson. islendingaþættir Við notuðum siðan tækifærin, sem gáfust til samtala við unga fólkið i sveitinni um félagsstofnun, og fengum vinsamlegar undirtektir hvarvetna. Undirbúningur þokaðist áfram og var loks fullráðið að boða til stofnfundar á sumardaginn fyrsta, sem þá var 23. dagur aprilmánaðar. Var fundarins beðið með óþreyju, en mikilli tilhlökk- un. Sumardagurinn fyrsti þótti vel val- inn, enda var hann þá ekki siður en nú uppáhaldsdagur i huga margra og þjóðlegur hátiðisdagur, þótt ekki væri hann lögskipaður helgidagur þá, frem- ur en nú er, og loks rann hann upp, að vlsu með kuldagjósti af norðri eins og oft hefur gerzt á landi okkar. „Það sumrar svo seint á stundum, þótt sólin hækki sinn gang”. En ekki dró veðrið úr fundarsókn né áformum. Unga fólk- ið safnaðist á fundarstð með fagnandi huga og þeim ásteningi að verða sveit- inni okkar að liði, fyrst og fremst vit- andi það, að við vorum að taka hönd- um saman við fjölda annarra æsku- manna viðs vegar um landið. Félagið var stofnað þennan dag og fékk heitið: Ungmennafélag Reykdæla. Sam- þykktir fyrir það voru settar og stjórn kosin. Um félagið verður ekki nánar rætt hér, en það var fyrsta ungmenna- félagið i Borgarfirði og gerðist þá þeg- ar og hefur verið eitt af forgöngufélög- um þar, og á nú sextiuogsex ára starf að baki. Að Erlendi á Sturlureykjum látnum, tók Jóhannes, sonur hans, sem var elztur bræðranna, við jörð og búi, sem hann rak af dugnaði og ágætri forsjá til æviloka, ásamt konu sinni, Jórunni, dóttur Kristleifs á Stóra-Kroppi, er var manni sinum samhent og ágætum hæfileikum búin. Fyrstu árin eftir lát föður sins var Þórður á Sturlureykjum og Deildar- tungu og stundaði smiðar, einkum húsasmiðar, allt slikt lék i höndum hans og var áhugi hans fyrir starfinu og dugnaðurinn eins og bezt getur ver- ið. A vordögum 1924 festir hann ráð sitt og kvænist Björgu Sveinsdóttur en hún var Húnvetningur, frá Hólabæ i Langadal, en hafði um skeið verið hjá þeim heiðurshjónum, Ingibjörgu Guð- mundsdóttur og Andrési Eyjólfssyni i Siöumúla i Hvítársiðu. Sama vor, þ.e. 1924, reistu þau bú að Skógum i Flóka- dal og ráku það i þrjá tugi ára, en flutt- ust þá til Akraness, en sonur þeirra tók við Skógum. Frá þeim tima var heimili þeirra á Akranesi, og stundaði Þórður þar smiðar meðan heilsa leyfði, enda slik verkefni þar mikil fyrir slikan hagleiks- og dugnaðar- manna sem Þórður var. Bú sitt i Skógum ráku þau af dugnaði og fyrirhyggju, gerðu þar miklar húsabætur, reistu meðal annars nýtt ibúðarhús og bættu jörðina stórlega með aukinni ræktun, en jafnframt bú- rekstrinum stundaði Þórður smiðar hjá öðrum, enda eftirsóttur til allra starfa. Bústjórn heima fyrir hefur þvi oft verið i höndum húsfreyjunnar og siðar sona þeirra, er þeir höfðu aldur til. Synir þeirra voru þrir. Sveinn elzt- ur, býr á Akranesi og stundar húsa- smiði, kvæntur Björgu Loftsdóttur. Guðmundur er næstur að aldri, var bóndi i Skógum nokkur ár, en rekur siðan vélsmiðju i Reykholti og bif- reiðaviðgerðir. Hann er kvæntur Sigurrósu Arnadóttur. Yngsti sonur- inn, Andrés, er búsettur á Akranesi, og er kona hans Auður Þorkelsdóttir. Þórður hefur innt af hendi mikil og gagnleg störf á langri ævi og margir notið þeirra. Hann var maður, sem kunni vel til verka, og gæddur miklum áhuga um allt það, er hann tók að sér eða þurfti að sinna, enda naut hann trausts og góðvildar þeirra, er kynnt- ust honum, ætið glaður og hress i framkomu og hafði þvi holl áhrif á alla þá, er með honum störfuðu. Kona hans var honum samhent, góð- um hæfileikum búin og var heimili þeirra þvi með miklum myndarbrag, aðlaðandi og vinsamlegt. Mér auðnað- ist að heimsækja þau á Akranesi næst- siðasta sumarið, sem Þórður lifði, var mér það mikil ánægja. Hann var þá enn við allgóða heilsu, en að sjálfsögðu tekinn að þreytast og aldurinn tekinn að minna á sig, en samfunda okkar þá minnist ég með mikilli ánægju eins og allra þeirra, er við áttum heima i sveitinni okkar, á Sturlureykjum og annars staðar. Margt rifjaðist upp frá æskudögunum og æskustöðvunum, þótt samveran væri skammvinn, og verði ekki i letur fært. Ég þakka Þórði innilega öll hin gömlu kynni og óska eftirlifandi konu hans og niðjum þeirra farsældar og blessunar. JónIvarsson L 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.