Íslendingaþættir Tímans - 14.09.1974, Blaðsíða 4

Íslendingaþættir Tímans - 14.09.1974, Blaðsíða 4
Guðbrandur Magnússon fyrrverandi kaupfélagsstjóri og forstjóri Guðbrandur Magnússon, fyrrv. kaupfélagsstjóri og forstjóri Afengis- verzlunar rikisins, andaðist 13. júli s.l., 87 ára. I minningargreinum ágætum um Guðbrand hefur ekki verið ritað eins itarlega og ég hefði kosið um árin sem hann var kaupfélagsstjóri i Hallgeirs- ey. En þá er á það að lita, að nú eru þeir flestir horfnir til feðra sinna sem voru félagsmenn Kaupfélags Hallgeirseyjar i tið Guðbrands fyrir um það bil hálfri öld, og hefðu þar kunnað bezt um að fjalla. Landeyjar voru all einangraðar sveitir á fyrstu áratugum þessarar aldar: stórár, stundum ófærar, voru útverðir sveitanna Og við vorum i þá daga eiginlega með annan fótinn i fornöldinni. Búnaðarhættir alda- gamlir, helztu lifsbjargartækin orfið, hrifan og árin. Flutningatækin klyfja- hestarnir og vagninn. Frá þessum árum man ég eftir einni sláttuvél i A- Landeyjum — sem ryðgaði úti i mýri. Það var likast sem timinn stæði i stað. Vordagarnir, næstum óendan- legir, minna enn á fuglasinfóniuna i mýrinni, hlýjuna i loftinu og gróður- ilminn. Þetta voru góðir dagar, en það gerð- ist fátt sögulegt. En ungir menn vilja hafa nokkra tilbreytingu, jafnvel ævintýri — eitth vað þarf að gerast sem markar spor. Landeyingar voru — og eru reyndar enn — traustir menn: þeim brá litt við váleg tiðindi, en þeir urðu ekki heldur uppnæmir fyrir nýjungum. Mér fannst Guðbrandur koma eins og storm- sveipur inn i þessa hljóðlátu sveit. Hann hafði mikil umsvif á þessum frumbýlingsárum Kaupfélags Hallgeirseyjar. Hann var mikill hug- maður, sem kallað er, og hreif furðu marga með sér. Það leyndi sér ekki hver var á ferð þegar maður kom rið- andi sunnan Affallsbakka á harða- spretti. Þar fór Guðbrandur á Skjóna sinum. Guðbrandur kom stundum heim að Úlfsstöðum á þessum ferðum sinum og var mikill aufúsugestur, sem hvar- vetna i sveitinni. Hann sópaði burt deyfö og drunga. Ég held, að orð séra 4 Sveins Vikings um Magnús, föður Guöbrands hafi ekki siður átt við um hann sjálfan: „Magnús var svo bjart- sýnn, svo eldfjörugur og kvikur og svo brennandi af ákafa og umbrotahug, að ég hygg að til eindæma megi telja.” Kaupfélagið hleypti nýjum og ferskum straumum i mannlifið i Land- eyjum. Aðdrættir höfðu um aldir verið erfiðir. Bændur verzluðu i Eyjum, gátu haft 50 — 100 kg. i fari sinu. Þurfti þvi að fara margar ferðir á hverju vori. Sumir sóttu nauðsynjar sinar út á Eyrarbakka, viku lestarferð. Nú varð sú breyting á, að kaup- félagsskip komu á vorin til Vest- mannaeyja, þar sem vörunum var umskipað og siðan fluttar i vélbátum til lands. Þetta reyndist mjög kostnaðarsamt. Siðar komst sú skipan á aö fá skip frá Kaupmannahöfn með vörurnar upp að Söndunum. Það var stór viðburður i lágsveitunum þegar „siglingin kom.” A vorin varð þvi fjaran leikvangur okkar strákanna, sem vorum látnir „færa i sandinn.” Það var ævintýri að fá aðfara um borð i mótorbátana, sem sumir kölluðu nótora, hvað þá stóru skipin frá útlandinu. Við lékum okkur lika að þvi að stökkva upp á tundur- duflið fyrir ofan flæðarmálið, sem sumir brúkuðu sem hestastein. Allir voru vissir um að það væri óvirkt. En svo komu dátar af dönsku herskipi og sprengdu þetta leikfang okkar. Þá var mikill hvellur. Þá er við höfðum aldur til var farið i uppskipun.Við bárum kornvörupokana upp á kampinn fyrir 90 aura til krónu á timann, jafnt nótt sem dag. Þetta var þrælavinna. Feginn varð ég er Guð- brandur sagði mér að fara út I skip og vinna i lestinni: það fengu færri en vildu. Kaupfélagsverzlunin hófst i Hall- geirsey vorið 1920, i hlöðu sem var inn- réttuð sem sölubúð, en skrifstofan hafði áður verið lambhús. Þetta var verzlun sem fólkið átti sameiginlega. Eftir langvarandi skort á margri vöru — jafnvel nauðsynja- vöru — þurftu margir að bæta sér i búi. Þetta var mannlegt — kannski mann- legur veikleiki. En þarna svignuðu hillur undir finustu kramvöru, gnægð var af kaffi og sykri osf. en langt til áramóta — skuldadaganna. En þeir komu, og urðu mörgum erfiðir. Það gekk illa að láta innleggið hrökkva fyrir skuldinni, og árferðið misgott. En þessir timar hlutu lika að vera Guðbrandi kaupfélagsstjóra erfiðir. Annarsvegar knýjandi þörf viðskipta- manna, hinsvegar kröfur lánardrottna um skuldaskil. Og árið 1926 var svo komið að allhart varð að ganga eftir greiðslum. Bændur þurftu að setja veð og skrifa undir skuldbindingar um skil á settum gjalddaga. Sú saga var sögð, að þá er Guðbrand bar að garði eins félagsmanns og bað hann skrifa undir sem aðra, hafi veriö skotið á einskonar heimilisráðstefnu. Þótti ekki verða undan vikizt að verða við ósk kaupfélagsstjórans. En áður þótti rétt að kalla til yngsta son bónda sem sat inni i bæ og las Is- lendingasögur, en i þá daga lásum við unglingar mjög þær bókmenntir og börðumst þess á milli. Piltur segir: Eigi hræðumst vér hótanir yðvarr, Guðbrandur, og munum vér hvergi skrifa undir. Jón R. Hjálmarsson skólastjóri islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.