Íslendingaþættir Tímans - 14.09.1974, Side 6

Íslendingaþættir Tímans - 14.09.1974, Side 6
Asmundur Gunnar Sveinsson Oft ber það við er maður fréttir skyndilegt fráfall góðs vinar, að manni bregður óþægilega. Svo fór fyrir mér, þegar ég kom frá vinnu einn daginn, er konan mín sagði mér, að hann Gunnar væri dáinn. Mér brá svo að ég svaf lítið næstu nótt. Gunnar hafði um nokkurt skeið kennt lasleika, þótt hann ynni til sið- asta dags, er honum versnaði svo skyndilega að hann var innan fárra stunda liðið lik. Ásmundur Gunnar Sveinsson hét hann fullu nafni þótt hann væri i dag- legu tali kailaður Gunnar. Hann var fæddur i ölafsvik 15. október 1927, andaðist i Borgarsjúkrahúsinu 16. ágúst 1974. útför hans fór fram frá Garðakirkju 23. s.m. að viðstöddu miklu fjölmenni. Gunnar var frekar lágur maður vexti en þéttur á velli og svipurinn góðmannlegur. Foreldrar hans voru sæmdarhjónin Sveinn Árnason og Guðný Jóna Asmundsdóttir. Þau hjón eignuðust sex börn sem uppkomust. Á. þeim árum var lifsbaráttan oft hörð, það þurfti þvi samhent átak til að koma svo stórum barnahópi vel til manns. En með sérstökum dugnaði, ástundun og hagsýni tókst þeim hjón- um það með prýði. Þau eru nú bæði dáin fyrir allmörgum árum. Börn þeirra eru öil gift. Þau eru auk Gunnars, Þórkatla, húsfrú i Reykja- vik, Björgvin, bifreiöastjóri i Hafnar- firði, Kristrún húsfrú i Garðahreppi, Arni rafvirki i Grindavik og Kristþór leigubilstjóri i Hafnarfirði. öll sæmdar- og myndarfólk. Þau sjá nú á bak heittelskuðum bróður. Þegar Gunnar var drengur innan við fermingu, var hann hjá mér sem vika- drengur i fjögur sumur. Ég get sagt þaö alveg skrumlaust, að betra barni hefi ég ekki kynnzt. Öll verk hans sem hann vann voru svo vel unnin að á betra varö ekki kosið, þar sem fylgdi frábær dugnaður og ástundum. Ég vil nefna hér dæmi um vinnusemi hans og vandvirkni. Fyrsta sumarið sem Gunnar var hjá mér unnum við faðir minn aö þvi að rifa hlöðu og byggja hana upp á öðrum stað. Við unnum af kappi við hlöðusmíðina, ég fór þá að taka eftir þvi að drengurinn sat skammt frá okkur, alltaf á sama stað og var alltaf að berja i sama kubbinn. Ég fór þá að athuga að þvi hvað hann 6 væri að gera, hann hafði þá tínt saman alla þá nagla, sem við faðir minn höfðum dregið úr hlöðuviðnum og var búinn að rétta þá svo vel að varla var hægt að sjá annað en þetta væru nýir naglar. Svona vann Gunnar öll sin verk. Ég þurfti aldrei að kalla hann til verks. Hann fylgdi mér svo, að óðar er hann sá að ég gekk til verks, þá var hann kominn. Hann kaus heldur að fylgja mér, en vera að leik með börn- um, sem voru mörg i nágrenninu og hans góðir vinir. Vinnan virtist vera honum allt. Hann var svo prúður og háttvis, að frá honum heyrðist ekki nokkurt orð sem óþægilegt gat verið fyrir einn eða neinn. Svona var Gunnar á öllum sviðum, það er þvi ekki að furða þó hlýja vaknaöi hjá manni við nálægö sliks barns, enda var það svo aö börnin okkar elskuðu hann sem bezta bróður og við hjónin og tengdamóðir min unn- um honum sem okkar börnum. Fyrir samveruna þessi fjögur sumur, viljum við hjónin og börnin þakka þér með hrærðum huga, ástkæri vinur. Þegar Gunnar var innan tvitugs aldurs, fluttist hann hingað suður með foreldrum sinum og settust þau að i Silfurtúni. Stuttu eftir komu sina suður geröist hann leigubilstjóri frá Hafnar- firði og stundaði þá vinnu til dauða- dags. Hann var einn af stofnendum bílastöðvar þar. Og er ég þess fullviss að Gunnar hefur eignazt þar marga góða vini sem færari væru mér að minnast þessa mæta drengs. Gunnar giftist 3. október 1952, eftir- lifandi eiginkonu önnu Kristjönu Þor- láksdóttur frá Álfsnesi á Kjalarnesi. Hún reyndist honum hinn traustasti lifsförunautur sem aldrei brást, enda unni hann henni og virti af alhug. Eftir giftinguna hófst Gunnar handa um að koma upp húsi. Fyrst byggði hann húsið að Asgarði 4, siðan húsið að Stekkjarflöt 2, bæði húsin með eigin höndum og fyrir eigið fé, Þau hjónin komu sér þar upp mjög fallegu heimili sem ber þeim ljósast vitni um dugnað þeirra, smekkvisi og vandvirkni. Þau eignuðust 2 börn, Guðnýju Jónu, f. 8. október 1950 og Þorlák, f. 5. febrú- ar 1957. Gunnar reyndist börnum sin- um ástrikur faðir, sivakandi yfir vel- ferð þeirra. Börnin eru sérlega mannvænleg og myndarleg. Þá var það dótturbarn hans, Anna f. 16. april 1969. Yndi og eftirlæti afa sins. Astkæri vinur nú ert þú horfinn yfir móöuna miklu meira að starfa Guðs um geim. Skyldi maður ekki mega vænta þess að sagt hafi verið við heim- komuna: Þú góði dyggi þjónn yfir iitlu varst þú trúr yfir mikið mun ég setja þig Gakk inn til fagnaðar herra þins. Þegar ég svo kom að leiðarlokum, skyldi ég þá ekki mega vænta þess, að þú standir við vegamótin og takir á móti mér með faðminum þinum mjúka og hlýja eins og svo oft áður. Far þú i friði, friður Guðs þig blessi, haföu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Að siöustu sendum við hjónin og börnin, öllum vinum og venzlamönn- um hins látna, okkar hjartfólgnustu samúöarkveðjur, þó sérstaklega til eiginkonu, barna og dótturdóttur hans, þar er missirinn mestur. Guð j*efi ykkur styrk i ykkar sáru sorg. Kristinn Sigmundsson. islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.