Íslendingaþættir Tímans - 14.09.1974, Page 7

Íslendingaþættir Tímans - 14.09.1974, Page 7
Sigmundur Helgason bóndi Núpum, Fljótshverfi. f. 26.4.1912-d. 15.8.1974. Sigmundur á Núpum er dáinn. Hér i heimi finnum við ekki aftur þétta handtakið hans og sjáum ekki áftur i hlýju og skæru augun, sem alltaf horfðu vingjarnlega en ákveðið móti gestinum,er kvatt var dyra á Núpum, landnámsjörðinni i Fljótshverfi. Hann varð bráðkvaddur að heimili sinu þann 15. ágúst s.l. Kallið kom og þvi varð að sinna, að visu ekki alveg óvænt, en við sem fjær stóðum, en þó i nálægð, höfðum vonað að þess væri enn langt að biða. Bóndinn á Núpum sinnti þvi kalli og hefur vissulega verið þess betur viðbúinn en margir aðrir. En mörgum köllum hafði hann áður sinnt frá sveitungum sinum og samtið, þvi að oft var til hans leitað. Til hans var lika gott að leita, hvort heldur leysa þurfti félagsleg vandamál eða sinna þurfti þeim með högum höndum. Allt var gert sem mögulegt var af sömu ljúfmennskunni. Sigmundur Helgason fæddist á Núpum 26. april 1912, sonur hjónanna Helga Bjarnasonar og Agnesar Sigmundsdóttur er bjuggu þar. Á Núpum átti hann heima frá vöggu til grafar, þar lék hann sér barn, þar lifði hann og starfaði öll sin beztu ár og þar féll hann að móður jörð i fullu starfi. Og á Núpum tókst honum að vinna ótrúlega mikið landnámsstarf á undra stuttum tima, en sannarlega fór þar saman hugur og hönd. Þótt Núpar séu landnámsjörð var hún ekki þeim kostum búin sem æskilegt þykir i dag, en með aðstoð Þórdisar Ölafsdóttur frá Blómsturvöllum sem búið hefur með Sigmundi i mörg-ár og veitt hefur honum ómetanl. aðstoð tókst honum að byggja upp öll útihús og ibúarhús ásamt ræktun jarðar og bústofns svo aö nú eru Núpar bæði snoturt og þægilegt býli. En þótt búskapur hafi orðið ævistarf Sigmundar að stærstum hluta,hygg ég þó að áhugamál hans hafi legið á öðrum sviðum. Hann var smiður ágætur og heyrt hefi ég að faðir hans hafi látið svo um mælt að senni- lega mundi hann geta smiðað allt það sem hann vildi ef hann hefði það áður augum litið og skorti ekki til þess verkfæri. Þessara hæfileika lét hann einnig sveitunga sina njóta, þvi að á mörgum bæjum hér i sveit sjást merki um hagar hendur hans. Hér vil ég minnast eins, en það sýnir vel hug Sigmundar til framfara og framtiðar i búskap jafnframt þvi sem það lýsir einnig félags- og samvinnuhugsjón hans, en hann var alla tið eindreginn og ákveðinn samvinnumaður. Eins og viða i sveitum færðist hér aukiö lif i starfsemi Búnaðarfélags- skaparins með bættri afkomu bænda um miðja þessa öld. Félögin höfðu meiri fjárráð og mörg þeirra réðust i kaup á ýmsum tækjum sem þau siðan leigðu félagsmönnum sinum gegn vægu gjaldi. Hér i sveit, þar sem sunn- lenski rosinn ræður oft rikjum marga daga um sláttinn var ráðizt i að kaupa mót til þess að steypa við votheys- gryfjur. Hvort Sigmundur hefur verið tillögumaður að þvi skal ég ekki um segja, en þáttur hans i að reisa þær byggingar er ekki smár, þvi áð hann sá um byggingu þeirra flestra oft án mikilla launa, enda mun það aldrei hafa verið ætlun hans að auðga sjálfan sig á kostnað sinna stéttarbræðra og nágranna. Hitt mun fremur hafa vyrir honum vakað að styðja þá til þess að verða betur viðbúnir að mæta mis- jafnri verðráttu um bjargræðistima islenzkra bænda. Hitt er svo önnur saga, sem ég hygg að hafi orðið honum nokkur vonbrigði að nú, hálfum örðum áratug siðar standa þessar hlöður margar tómar þótt i fullu notagildi séu. Svo var ekki á Núpum og i sólskininu i júli i sumar hafði hann eitt sinn orð á þvi við þann er þetta ritar, að nú væri gott að eiga nógar votheyshlöður svo að ekkert þyrfti að þurrka, hvað þá þegar verr viðrar. Eins og fyrr segir var Sigmundur alla tið ákveðinn félags- og samvinnu- maður. Hann var viðlesinn og fróður vel um hag og sögu lands og þjóðar og kunni vel að meta vel gerð skáldverk, hvort heldur var I lausu eða bundnu máli enda mun það löngum hafa verið tómstundagaman hans að lesa góða bók, sem þó var jafnan of litill timi til að sinna. Hann hafði ákveðnar og sjálfstæðar skoðanir á mönnum og málefnum og var fljótur að átta sig á aðalatriðum hvers máls. Hann sóttist ekki eftir forystu i félagsmálum, en rækti vel þau störf sem honum voru falin. Á fundum var hann tillögugóður og ábendingar hans og ráð reyndust jafnan hollráð. Og nú er sæti hans autt, i dag verður hann jarðsettur að Kálfafelli. Sveitin hefur misst góðan dreng, við þökkum samfylgdina og biðjum honum blessunar á nýjum ævivegum. Hollvættir og huldufólk Núpsins drjúpa höfði, þau sjá nú ekki bóndann opna bæ sinn að morgni og horfa upp til fjallsins, þau hafa einnig misst. En mestur og þyngstur er þó missir þeirra sem næst standa. Þórdisi Ölafsdóttur, systrum hins látna svo og öðrum vandamönnum votta ég mina dýpstu samúð. Teygingalæk, 27. 8.1974. Ólafur J. Jónsson. Islendingaþættir 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.