Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Page 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
Laugardagur 8. febrúar 1975 — 4. tbl. 8. árg. Nr. 195. TIMAIMS
Óli Vilhjálmsson
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Fæddur 1. september 1888.
Dáinn 10. janúar 1975.
Aö kvöldi föstudagsins 10. janúar s.l.
andaöist á Borgarspitalanum Óli Vil-
hjálmsson fyrrv. framkvæmdastjóri
Sambandsisl. samvinnufélaga i Ham-
borg og Kaupmannahöfn. Hann var á
87. aldursári er hann lést.
Andlát Ola bar brátt aö, — dagsdvöl
á Borgarspitalanum. Banamein hans
var kransæöastifla.
Vinir Óla áttu ekki von á þessu svona
snöggt. Þrátt fyrir háan aldur var
hann hinn hressasti og fagnaöi nýju ári
á nýársdagskvöldi i hópi vina. En kall-
iö kom snöggt og minnti reyndar á
vissa eiginleika Óla, — þá aö foröast
tvinón i athöfnum.
Meö Óla Vilhjálmssyni er genginn
mikill sómamaður, mannkostamaður,
sem gott var aö kynnast og eiga að
vini.
Óli Vilhjálmsson fæddist 1. septem-
ber áriö 1888 aö Brettingsstööum i
Flateyjardal. Hann var af þingeysku
bregi brotinn, ættir hans úr Suöur- og
Noröur-Þingeyjarsýslu. Faöir hans
var Vilhjálmur Guömundsson, Jóna-
tanssonar frá Hofi, Hallssonar. Guð-
mundur föðurafi Óla var kvæntur
Steinunni Þorkelsdóttur frá Brettings-
stööum. — Móöir Óla var Ólöf Isaks-
dóttir frá Auðbjargarstöðum I Keldu-
hverfi, Sigurðssonar. Hún var af hinni
þekktu Vikingavatnsætt, en af þeirri
ætt eru margir merkismenn og lands-
kunnir komnir. Óli átti tvö hálfsystkin,
Guömund Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóra hjá Sambandinu i New
York og Leith, og sfðar eöa frá 1930
framkvæmdastjóra Eimskipafélags
Islands til ársins 1962. Guömundur lést
1965. Hálfsystir Óla var María Vil-
hjálmsdóttir búsett á Húsavik. Hún
andaöist árið 1970. Náið samband og
kærleiksrikt var milli þeirra systkina,
en Óli var þeirra elstur.
Óli fluttist til Húsavikur innan við
fermingaraldur. Hann stundaöi þar
nám í unglingaskóla Benedikts
Björnssonar, en af skóla þessum fór
gott orö.
Áriö 1904, þegar óli er 16 ára, byrjar
hann störf við verzlun bræöranna
Aöalsteins og Páls Kristjánssona á
Húsavik. Þar starfaði hann samfleytt
til ársins 1919, ef frá er skilin 8 mánaða
námsdvöl I Kaupmannahöfn 1916—’17.
Arið 1919 réöst Óli til Kaupfélags
Þingeyinga og siðar á þvi ári byrjar
hann störf hjá Sambandi islenskra
samvinnufélaga i Reykjavik. Þaö er
einmitt á þessu ári, að mikil þáttaskil
veröa i starfsemi Sambandsins. Tekin
var þá upp deildaskipting á aðlskrif-
stofu, útflutningsdeild og innflutnings-
deild, og voru sérstakir framkvæmda-
stjórar ráönir fyrir deildirnar, Jón
Arnason fyrir útflutningsdeild og
Aöalsteinn Kristinsson fyrir innflutn-
ingsdeild, en forstjóri var Hallgrimur
Kristinsson. Áriö 1919 var mikið veltu-
ár fyrir íslendinga, verðlag útflutn-
ingsafurða hagstætt. Starfsemi Sam-
bandsins jókst mikið á þessu ári og Óli
Vilhjálmsson hefur þvi i nýju starfi
komist I snertingu viö mikil umsvif.
Eftir tveggja ára starf á aðalskrif-
stofu Sambandsins i Reykjavik, flytzt
Oli til Kaupmannahafnar árið 1921 og
tekur við fulltrúastarfi á skrifstofu
Sambandsins þar, en skrifstofunni
veitti þá forstöðu Oddur Rafnar.
Kaupmannahafnarskrifstofa gegndi
mjög þýðingarmiklu hlutverki fyrir
Sambandið á þessum árum. Viðskipti
voru mikil viö Danmörku og fyrsta
skrifstofa Sambandsins var einmitt
sett á stofn i Kaupmannahöfn árið 1915
og var til húsa i Nybrogade 28. Skrif-
stofan gegndi tviþættu hlutverki. Ann-
ars vegar að selja islenzkar afurðir og
hins vegar að annast innkaup fyrir
Sambandið og kaupfélögin. Viðskipti
skrifstofunnar voru ekki aðeins tak-
mörkuð við Danmörku og þegar kom
fram á þriðja áratug aldarinnar fóru
viðskipti við Þýzkaland vaxandi og is-
lenzk kaupskip hófu beinar siglingar
til Hamborgar.
Til þess að nýta sem bezt viðskipta-
möguleikana i Þýzkalandi ákvað Sam-
bandið að setja á fót skrifstofu i Ham-
borg. Skrifstofan tók til starfa árið
1927 og var Óli Vilhjálmsson ráðinn til
þess að veita henni forstöðu. Sýndi það
vel hvers álits Óli naut hjá forráða-
mönnum Sambandsins.
Hamborgarskrifstofa starfaði siðan
til ársins 1932, er hún var lögð niður og
Óli flutti til Hafnar og tók þar við fyrri
störfum en hafði þó sérstaklega með