Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Side 2

Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Side 2
aB gera viðskiptin viö Þýzkalands. Það munu einkum hafa verið tvær ástæður fyrir þvi að skrifstofan i Hamborg var lögð niður og Þýzkalandsviðskiptin færð undir Hafnarskrifstofu. Annars vegar hið alvarlega kreppuástand, sem þá hafði skapazt i heimlnum og virkaði lamandi á alþjóðleg viðskipti og hins vegar valdataka nazista i Þýzkalandi, en þeir bönnuðu starfsemi samvinnufélaga, auk þess sem þeir gerðu miklar breytingar á utanrikis- verzlun landsins, þar sem umsjá rikis- ins var stóraukin en viðskiptafrelsi minnkað að skapi. Oddur Rafnar framkvæmdastjóri Kaupmannahafnarskrifstofu andaðist árið 1937 og var Öli þá sjálfkjörinn eftirmaður hans, enda búinn að fá mikla reynslu i alþjóðaviðskiptum og öllum hnútum kunnugur hvað varðaði rekstur skrifstofunnar og þær kröfur sem til hennar voru gerðar af Sam- bandinu og kaupfélögunum. Framkvæmdastjórastarfi Kaup- mannahafnarskrifstofu Sambandsins gegndi öli siðan til ársins 1953 er hann við 65 ára aldur ákvað að láta af störf- um. Hann hafði þá starfað fyrir Sam- bandið i 34 ár og gegnt framkvæmda- stjórastörfum um 20 ára skeið við mik- inn og góðan orðstir. Hann naut mikils traustshjá Islenzkum samvinnumönn- um og viðskiptamönnum skrifstofunn- ar erlendis, enda óvenjumiklum mannkostum búinn. Það kom i hlut Óla að gæta hagsmuna Sambandsins I Danmörkuog nálægum löndum á tim- um seinni heimsstyrjaldarinnar, en frá árinu 1940, er Þjóðverjar hertóku Danmörku og til striðsloka 1945 lá starfsemi skrifstofunnar niðri. Óli dvaldist i Danmörku á þessum árum og fékk þá ýms islenzk mál til þess að ráða fram úr m.a. i Sviþjóð. Eftir að Óli lét af störfum 1953, dvaldist hann áfram i Danmörku næstu árin. Hann notaði þá timann nokkuð til ferðalaga, ferðaðist m.a. til Norður-Ameriku og Suður-Evrópu- landa. Ferðafélagi Óla var þá oft Jón Guðbrandsson, er áður veitti forstöðu skrifstofu Eimskipafélags Islands I höfn. Óli og hann voru miklir vinir. Þá var Egill heitinn Thorarensen, kaupfélagsstjóri á Selfossi, stundum með þeim félögum á ferðalögum. Óli áttimargar góðar endurminningar frá þessum ferðum. Hann naut þess að ferðast, en meðan hann var i starfi gaf hann sér sjaldan tima til orlofs. Arið 1965 flytur Óli alfarinn heim til íslands. Komin voru þá skörð i vina- hópinn I Kaupmannahöfn. Jón Guð- brandsson vinur hans hafði látist 2 nokkru áður. 1 Reykjavik fékk Óli bú- setu á Hrafnistu við Laugarás. Við bú- staðaskiptin verður mikil breyting á högum hans. Þegar hér er komið sögu hafði hann búið erlendis um 44ra ára skeið, lengst af i Kaupmannahöfn. Það var þvi margs að sakna frá heims- borginni. Það kom þó annað I staðinn, Islenzkt samfélag en ættjarðarbönd Óla voru alla tið mjög sterk, þrátt fyrir dvölina erlendis. En það sem skipti þó mestu máli fyrir Óla var það, að hann var kominn heim til ættingja og vina. Hjá bróðurbörnum og þeirra fjölskyld- um og hjá öðrum ættingjum og vinum naut óli gestrisni og vinarþels. Hann var ætið aufúsugestur á heimilum ætt- ingja sinna og vina. Mér er kunnugt um, að Óli var sérlega þakklátur bróð- urbörnum sinum og þeirra fjölskyld- um fyrir þá vinsemd, sem þau sýndu frænda sinum I orði og á borði. Var ó- metanlegt fyrir hann að geta hlakkað til þessara vinafunda. Þá skal ekki látið hjá liða að minnast þeirrar umhyggju, sem óli sýndi Mariu systur sinni, sem um árabil dvaldist á sjúkrahúsi á Húsavik. Sið- ustu árin sem hún lifði heimsótti Óli hana á hverju ári og stytti henni stund- ir. Nú þegar óli Vilhjálmsson er allur, verður eftir i hugum vina hans minn- ing um óvenju heilsteyptan persónu- leika. Starfsmaðurinn Óli var afkasta- mikill, samvizkusamur, heiðarlegur og reglusamur svo af bar. Hann gerði miklar kröfur til sjálfs sin i störfum. Hann gat verið harður samningamað- ur, en ávann sér traust og virðingu viðsemjenda, vegna þess, hve áreið- anlegur hann reyndist. Sem starfs- maður Sambandsins gætti hann hags- muna þess af framúrskarandi sam- vizkusemi, en hugsaði minna um sinn eiginn hag. Hann sóttist ekki eftir met- orðum I lifinu og hefur eflauust fundið fremur lifshamingju i þroska og fágun sins innra manns. Óli var myndarlegur að vallarsýn, friður ásýndum, fastið létt og óþvingað og snyrtimennska var honum i blóð borin. Hann var heimsborgari i um- gengni, gestgjafi góður og þá aldrei til sparað. Þeir eru ótaldir Islendingarnir eru nutu gestrisni og fyrirgreiðslu Óla Vilhjálmssonar i Kaupmannahöfn. Óli var hrókur alls fagnaðar i vinahópi, hafði mætur á söng og tónlist og unni góðum bókmenntum, enda vel lesinn. Óla varö gott til vina, enda eftirsóttur til vinafunda, fólki leið vel i návist hans. Það var i ágústmánuði árið 1947, að fundum okkar Óla bar fyrst saman. Ég var staddur i Kaupmannahöfn á leið til Stokkhólms I erindum Samvinnu- trygginga, en þær höfðu verið stofnað- ar árið áður. Mér eru minnisstæð fyrstu kynnin — gestgjafinn, heims- borgarinn, hrókur fagnaðar. Það var eitthvað svo þægilegt að vera i návist hans. Með þessum fyrstu kynnum var stofnað til vináttu, sem stóð i 27 ár. Eftir að Óli flutti heim til Islands var hann oft gestur á heimili okkar hjóna. Hann var sannur heimilisvinur. Hann kom með gleði i bæinn og hann flutti með sér birtu, sem hann miðlaði öðr- um. Minningarnar um samverustundir með Óla s.l. 27 ár eru margar og allar eru þær sérstaklega hugljúfar. Ég minnist sólbjartra júlidaga austur i Landbroti s.l. sumar og ferðar I Hornafjörð. 85 ára öldungurinn Óli var þá að vanda glaður og hress. Mér þótti vænt um, að Óli fékk að sjá þennan hluta af íslandi, koma I guðshús Jóns Steingrimssonar, lita Skaftafellssýsl- ur I ljóma sólar og birtu. Það var á- nægjulegt hve vel hann naut þessarar ferðar. Og nú er komið á leiðarenda. Siðasta ferðin hér i heimi hefur verið farin, lifsins hringferð er lokið. En þá hefst önnur ferð i nýjum heimkynnum æðra heims. Ég er viss um, að Óli er vel undir þá ferð búinn og það verður án efa tekið vel á móti honum þar. Að leiðarlokum vil ég þakka Óla vini mlnum fyrir samfylgdina. Við hjónin þökkum honum vináltuna og við erum þakklát fyrir að hafa kynnzt mannin- um óla Vilhjálmssyni. í slikri kynn- ingu er fólgið margt til eftirbreytni. Fyrir hönd Sambandsins og sam- vinnuhreyfingarinnar flyt ég Óla þakkir fyrir mikil og farsæl störf. Ég óska honum guðs blessunar I heimi ljóssins. Erlendur Einarsson. f Integer vitae, segir Horatius. Það mun vera kallað á Islenzku að vera vammi firrtur. Ég veit ekki hvern þetta ætti fremur við en óla Vil- hjálmsson, sem nú er kvaddur. Ein- stöku maður lifir lifi sinu þannig að til fyrirmyndar ætti að verða öðrum mönnum. óli varð 86 ára og svo vand- aði hann allt sitt far, að þeir sem bezt þekkja vita engan blett á hans breytni heldur er hann þeim imynd góðs drengs og vammlauss manns. Óli óx upp úr þingeyskum jarðvegi og tók i arf þær hugsjónir, sem hafa verið kenndar við aldamótamennina og geröi alla ævi kröfur til sjálfs sin i Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.