Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Side 3

Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Side 3
samræmi við þær hugsjónir. Þegar fagurt mannlif er metið er vant að greina sundur hvað sé áunnið og hvað i blóð borið. Óbrigðul háttvisi og nær- gætni var óla eðlislæg, umhyggja og hugulsemi við samferðafólk. Honum var eðlilegt að vera ævinlega veitandi, viö sem þekktum hann fundum, að við vorum einlægt þiggjendur, hvort sem hann miðlaði af geði sinu eða þvi sem jarðneskir fjármunir fá keypt. En þá hluti sem mölur og ryð fá grandað mat Óli harla litils. Yndi hans var að gefa og gleðja aðra, það segir sina sögu að þegar hann fluttist heim eftir áratuga starf i góðri stöðu erlendis hafði hann ekki hirt um að eignast rúm til að sofa íhvað þá aðra veraldlega hluti. En þvi rlkari var hann hið innra. Og þess nutu allir sem kynntust honum. Öli kvæntist ekki en það hygg ég að sé ekki ofmælt að mörgu ungu fólki reyndist hann sem umhyggjusamur faðir, fólki sem minnist hans ætið. Tryggð hans og vin- festi var með eindæmum og brást aldrei hvernig sem aðstæður voru og hver sem átti hlut að máli. Óhjá- kvæmilega hlýtur slikur maður að skilja eftir sig spor i ævi samferða- manna. Óli var manna hæverskastur og frá- bitinn þvi að tala um sjálfan sig. Hann vandaði allt dagfar sitt til orðs og æðis og þoldi illa hyskni og slóðaskap hvort sem var i orði eða verki. Óli var mjög skemmtinn maður og hinn mesti gleðivaki. Hann hafði næma kimnigáfu eða húmor og skop- legar hliðar mannlifsins fóru sannar- lega ekki framhjá honum. Hann haföi viða farið og margt séö og heyrt. Jafn- framt var hann með afbrigðum þjóð- rækinn, og sýndi lika átthögum sinum og frændum slika tryggð að það mætti kalla hann þingeyzkan heimsborgara. Æskudrauma um langskólamenntun sem aðstæður hindruðu lét hann rætast i ævilöngu sjálfsnámi. Hann var allra manna fróðastur og minni hans með mestu ólikindum. Hann hafði margs- konar kveðskap og skemmtisögur á hraðbergi og kom á óvart með nýjum og nýjum sögum fram á hinzta dag. Hann kunni vel að segja frá þannig, að varð iðulega i senn skemmtun og hug- vekja. Óli Vilhjálmsson er kvaddur með kærleika og söknuði. Hver hann var verður ekki með orðum sagt en kynni af honum verða ævilangt vegarnesti þeim sem nutu þeirrar gæfu að þekkja hann. Margrét Indriðadóttir. f Þaö orkar ekki tvimælis, að þjóðhá- tiðin 1874, er íslendingar minntust 1000 islendingaþættir ára afmælis byggðar I landinu, mark- aði merkileg timamót I sögu þjóðar- innar. Var sem hún vaknaði af löngum dvala og hófust með þjóðhátiðinni ýmsar þær breytingar og umbætur sem skiptu sköpum I atvinnuháttum og menningarlifi þjóðarinnar. Þjóðhátiöarárið olli gagngerum þáttaskilum I sjálfstæðisbaráttunni við Dani, þvi að þá hlaut Alþingi lög- gjafarvald með endurbættri stjórnar- skrá, en til þess tima hafði Alþingi aðeins farið með ráðgjafarvald og var allt úrslitavald um islenzk málefni I höndum Dana. Upp frá þessu gat þing- ið fært út starfsemina á mörgum svið- um, meðal annars lagt á skatta og veitt fé til margháttaöra framfara- mála, þótt ekki væri um stórar upp- hæöir að ræða fyrst framan af. Þegar leið á siðustu áratugi 19. aldar fór ýmsum félagsmálahreyfingum á mörgum stöðum á landinu að vaxa fiskur um hrygg. Komið var á fót ýms- um félögum, sem beittu sér fyrir framförum I landbúnaði og urðu visir m.a. að Búnaðarfélagi Islands og öðr- um þjóðþrifafyrirtækjum. Fyrsta samvinnufélagið var stofnsett 1882 og mörg fylgdu i kjölfariö úr þvi til alda- móta. Þá urðu allmiklar framfarir I útgerð og fiskveiðitækni landsmanna, Þegar leið að aldamótum með tilkomu skútualdarog siðar útgerð togara. Var þá sköpuð forsenda fyrir mun fjöl- breyttari atvinnuháttum, en áður höföu tiökazt. Þó bar öll þessi viðleitni landsmanna litinn árangur fyrst i stað, þvi að við ærna erfiðleika var að etja á nær öllum sviðum þjóðlifsins. Stjórn- málabaráttunni við Dani var haldið áfram en jafnframt áttu sér stað mikl- ar innbyrðis deilur meðal islenzkra stjórnmaálamanna um, hvernig hald- ið skyldi á málum gagnvart Dönum og ollu þær þvi, að Alþingi gat siður beitt sér fyrir viðreisn atvinnuveganna og ööru þvi, sem varðaði innanlandsmál- in. Þá urðu harðindin, sem gengu yfir frá þvi um 1880 og fram til aldamót- anna, landsmönnum þung I skauti. Fjöldi manns fluttist úr landi á þessu áraskeiði og fækkaði fólki um nær 2000 manns á áratugnum 1880-1890. Tvennt var það sem einkum auð- kenndi tvo síðustu áratugi 19. aldar- innar. Annarsvegar var það öflug við- leitni manna til að bæta lifskjörin. Samtök voru mynduð til að rækta landið meir og betur en áður var hægt og til að vinna að auknum fiskveiðum. Þá reyndu menn eftir megni að losna úr viðjum þrúgandi kaupmannavalds ög aö efla ýms menningarmál. Hins- vegar flúði fólk unnvörpum landið og illt árferöi og önnur óáran olli mörgum þungum búsifjum, svo að til landauðn- ar horfði, ef ekki létti innan tiðar. í hlut þess fólks sem hófst til starfa um aldamótin féll mikil eldraun, sem krafðist ótakmarkaðrar bjartsýni og trúar á gögn og gæði landsins og trausts á eigin getu og þrótt. Upp úr þessum jarðvegi óx svo alda- mótakynslóðin svonefnda, sem átti eftir á fyrri hluta þessarar aldar að skapa og móta að verulegu leyti þá þjóölifsmynd, sem við okkur blasir I dag. Þar var að verki margt óvenju- lega vel gert fólk, dugmiki.0, þraut- seigtog hugsjónarikt. Það var ákveðið i aö gera ísland að betra landi en það var og hóf nýtt landnám i sögu þjóðar- innar. Góður fulltrúi þessa fólks, var Óli Vilhjálmsson, sem nú er nýlátinn i Reykjavik á 87. aldursári. Óli Vilhjálmsson fæddist 1. septem- ber 1888 á Brettingsstöðum á Flateyj- ardal I Suður-Þingeyjarsýslu. Faðir hans var Vilhjálmur Guðmundsson, Jónatanssonar frá Hofi Hallssonar. Kona Guðmundar Jónatanssonar var Steinunn Þorkelsdóttir frá Brettings- stööum. Móðir Óla var ólöf Isaksdótt- ir, frá Auðbjargarstöðum I Keldu- hverfi Sigurðssonar, af Vikingavatns- ætt, sem margt þekkt fólk er komið af, Óli átti tvö hálfsystkin, Guðmund Vil- hjálmsson, sem um langt árabil var starfsmaður Sambandsins á tslandi, New York og Leith og framkvæmda- stjóri þess þar ytra i rúman áratug og frá 1930—1962 forstjóri Eimskipafé- lags íslands. Guðmundur lézt 1965. Hálfsystir Óla var Maria Vilhjálms- dóttir, sem lengst af var búsett á Húsavik, látin 1970. Óli átti til mikils atorku og gáfufólks aö telja i báðar ættir og frændaliö hans fjölmennt i Þingeyjarsýslu og viðar. Var jafnan mikið kærleikssamband meö Óla og systkinum hans og þeir bræður einstaklega umhyggjusamir systurinni i langvarandi veikindum hennar. Óli flutti til Húsavikur um aldamót- in og stóð hugur hans til nokkurra mennta. Gekk hann þar i unglinga- skóla hjá Benedikti Björnssyni og naut þar ágætrar undirbúningsmenntunar. Nokkrum árum siðar gekk hann i þjónustu Aðalsteins og Páls Kristjáns- sona, sem þar ráku verzlun og starfaði hjá þeim að mestu til 1919 Óli hleypti heimdraganum 1916 og dvaldist i Kaupmannahöfn til 1917 til ferkara náms i málum og bókhaldi. Arið 1919 gekk hann i þjónustu Kaupfélags Þing- eyinga á Húsavik. Þar hafði hann orð- iö fyrir miklum áhrifum frá þeim mönnum, sem ruddu samvinnustefn- unni braut, og hugsjónir þeirra áttu greiðan aðgang að huga hans. Sam- 3

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.