Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Qupperneq 5

Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Qupperneq 5
hér á Höfn og starfaði þar til ársins 1972, en eftir það var hans aðalstarf hótelstjórn Hótels Hafnar. Arið 1965 réðust þeir Þórhallur Dan og Árni Stefánsson skólastjóri í það stórvirki aö reisa gistihús hér á Höfn.sem hlaut nafnið Hótel Höfn, það ber vott um stórhug þeirra íélaga og trú þeirra á framtið þessa staðar, og viljann til að gera hlut hans sem mestan, enda er Hótel Höfn vegsauki fyrir byggðar- lagið og gegnir hér nauðsynlegu þjónustuhlutverki. Arið 1958 11. júni var Þórhallur Dan ráðinn slökkviliðsstjóri í Hafnar- hreppi. Það kom þvi að verulegu leyti I hans hlut að móta slökkviliðið og gera tillögur um nauðsynlegan tækjabúnað t þess. 1 þessu starfi sem öðrum var Þórhallur Dan vel metinn, bæði hér heima og i Landssambandi slökkvi- liðsmanna og hann átti sæti i stjórn þess. Þórhallur Dan var félagslega sinnaður og starfaði i mörgum félögum, m.a. ungmennafélögin Hvöt i Lóni, siðar i ungmennafélaginu Sindra á Höfn, Leikfélagi Hornafjarðar, Lionsklúbbi Hornafjarðar, þar sem hann fyrir stuttu gegndi starfi formanns með góðum árangri, var einn af söngfélögum karlakórsins Jökuls. A leiksviðinu sýndi Þórhallur Dan hve góðum leikhæfileikum hann bjó yfir, einnig var hann vel liðtækur skemmtikraftur við ýms tækifæri. Honum var létt um að túlka mismun- andi hlutverk, þó sérstaklega að fara með gamanmál, enda hafði hann góða söngrödd, sem hann kunni vel með að fara. Þórhallur Dan hafði óbilandi trú á framtíð okkar byggðarlags og vildi veg þess sem mestan. Hann var kosinn I sveitarstjórn Hafnarhrepps árið 1970 og f annaö sinn á siðastliðnu vori. Sveitarstjórnarmál lét hann mjög til sin taka.bæði með því að flytja mál og veita lið málum, sem hann taldi til hagsbóta fyrir byggðarlagið. Mér er það minnisstætt, þegar I nóvember- mánuði síðastliönum — við Sigurður Hjaltason sveitarstjóri litum inn til hans á sjúkrastofuna, þrek hans og brennandi áhugi fyrir þeim veigamiklu málum, sem verið er aö vinna að i Hafnarhreppi og langt út fyrir þau mörk, svo sem málefni er alþjóð varða. Þórhallur Dan var þrekmaður bæði andlega og likam- lega, hafði sérlega létta lund, honum var eiginlegt hlýtt, hressandi og aðlaðandi viðmót. Kista Þórhalls Dan var flutt með áætlunarflugvél frá Flugfélagi tslands frá Reykjavik til Hornafjarðar. Fyrir utan nánustu aðstandendur vottuðu slökkviliðsmenn úr slökkviliði Horna- fjarðar og félagar úr Lionsklúbbi Hornafjarðar hinum látna virðingu og þökk með þvi að vera viðstaddir og báru slökkviliðsmenn kistuna úr flugvél á bil og Lionsfélagar af bil I Hafnarkirkju. Útför Þórhalls Dan fór fram frá Hafnarkirkju 15. janúar s.l., að viöstöddu fjölmenni. Séra Fjalar Sigurjónsson flutti útfararræðuna, en séra Gylfi Jónsson jarðsöng. Kirkju- kór Hafnarkirkju söng undir stjórn Eyjólfs Stefánssonar organista. Til heiöurs hinum látna söng Karlakórinn Jökull þjóðsönginn undir stjórn Sig- jóns Bjarnasonar söngstjóra. Sveitarstjóri og sveitarstjórnarmenn báru kistuna úr kirkju og nánustu aöstandendur i kirkjugarð. Athöfnin var öll hin virðulegasta. Ég þakka Þórhalli Dan vel unnin störf I þágu Hafnarhrepps, Lionsklúbbs Horna- fjarðar svo og önnur margháttuð störf, sem hér verða ekki talin. Persónulega þakka ég og min fjölskylda honum margra ára vináttu og vottum eiginkonu hans, ólöfu Sverrisdóttur, börnum, tengdabörnum og öðrum ættingjum okkar dýpstu samúð. Óskar Helgason t Miðvikudaginn 16. janúar 1975 fór fram frá Hafnarkirkju útför Þórhalls Dan Kristjánssonar, hótelstjóra á Höfn i Hornafirði. Fádæma fjölmenni var við athöfn þessa, sem haföi yfir sér viröulegan blæ, þrátt fyrir hin þunga undirtón trega og mikillar sorgar. Hinn mikli fjöldi fólks af Höfn, úr nágranna- byggðum i Austur-Skaftafellssýslu, svo og aðrir, sem lengra voru að komnir, urðu nú að játa staðreyndir og reyna aö sætta sig viö hinn grimma örlag^dóm. Þórhallur Dan var allur, maður á bezta aldri, aöeins 48 ára. Lifsljós þessa glaðværa, góða drengs var slokknað. óbætanlegur skaði steðjaði að ástvinum, ættingjum og óvenju stórum vinahópi, og Höfn var svipt einum sinum ötulasta og heiöar- legasta félagsmálamanni. Við vorum öll svo miklu fátækari. Þrátt fyrir tiltölulega stutt, en all- náin kynni, tel ég mig hafa kynnzt Þórhalli Dan nægilega til þess að sjá og heyra að þar fór enginn miðlungsmaður. Hann var sistarfandi, en hafði þó ávallt nægan tima til að ræða alvörumál eða bregða á glens. Greiðvikni hans og velvild til náungans var einstök. Allt var fært og sjálfsagt að gera, þó aldrei látið að þvi liggja, að þetta væri svo sem nokkur skapaður hlutur og ekkert að þakka. Þó mátti öllum vera ljóst, er nánar kynntust Þo’rhalli, að hann var mála- fylgjumaður og lét hlut sinn hvergi, og trúi ég þvi, að hann hafi ávallt fylgt sannfæringu sinni. 1 hópi sveitarstjo”rnarmanna hér um slóðir var Þórhallur i sérflokki. Hann vildi i raun vinna fyrir almenning, það var honum eðlislægt. Sjaldgæf blanda af góðum samvinnumanni, i fullri sátt og samstarfi við einkaframtakið. Þeir voru ekki margir þættirnir I félags- og menningarmálum Hafnar og ná- grennis, sem Þórhallur lét sig ekki varða. Hann átti um árabil sæti i hreppsnefnd Hafnarhrepps, svo og ýmsum nefndum á hennar vegum. Virtur þátttakandi i pólitisku starfi, ávallt sjálfum sé trúr og samkvæmur. Hann vann að málefnum leikfélags, karlakórs, slökkviliðs, og margt fleira mætti telja. En það, sem mestu máli skipti — hann var ávallt hið drifandi afl, varpaði hvorki ábyrgð né vinnu á annarra herðar. Þannig kom Þör- hallur Dan mér fyrir sjónir og þannig fræddist ég um hann af fjölmörgum. Þegar ég kom hingað fyrir liðlega einu ári, húsnæðislaus og nær öllum ókunnugur, fékk ég dvöl á Hótel Höfn um 5 mánaða skeið. Mér fannst ég þó aldrei i raun búa þennan vetur á hóteli, ópersónulegri stofnun. Þakka ég það viömóti þeirra félaga, og eigenda hótelsins, Þórhalli Dan og Árna Stefánssyni, svo og lipru starfsliði. Að leiöarlokum þakka ég Þórhalli kynnin og persónulega velvild. Ef mér leyfist svo að taka til orða, fannst mér, sem ég ætti um flest samleiö með þessum jákvæða félagsmanni. Megi hans for- dæmi og lifsskoðun lifa og blómgast. Hann sáði af trúmennsku og heiðar- leika, slikt hlýtur að bera ávöxt. Um leið og ég bið þeim, sem um sárast eiga að binda, liknar i þraut, votta ég hinum látna dýpstu virðingu mina. Höfn I Hornafirði, 16. janúar 1975. Friðjón Guðröðarson. Leiðrétting í íslendingaþáttum 1. tbl. þessa árs eru tvær prentvillur i minningargrein um Guðmund Hermannsson. Þar er sagt að fyrri kona hans, Vilborg hafi dáið 1915, á að vera 1913. Sagt er og að maður Vilborgar á Núpi heiti Gaukur. Hann heitir Haukur Kristinsson. Þetta leiðréttist hérmeð. islendingaþættir 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.