Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Page 6

Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Page 6
Jóna Hlaðhamri fædd S/10 1888 dáin 29/10 1974 Þann 9. nóvember s.l. var ég staddur nor&ur i Hrútafiröi ásamt nokkrum öörum burtfluttum Hrútfirðingum og fjölda fólks úr sveitinni. Viö vorum þangaö komin til þess aö vera viö jaröarför aldraörar grannkonu minnar Jónu Jónsdóttur á Hlaöhamri, er fara átti fram frá Prestbakkakirkju þennan dag. Veörið var eins og bezt varö á kosiö á þessum tima árs, iogn og bjartviöri. Sólin hellti geislum sin- um yfir láö og lög og speglaöi sig i sjávarfletinum. Mikil litadýrö var i lofti. Mér flaug i hug, aö þetta væri táknræn mynd af lifi og starfi þeirrar góöu konu, er viö vorum komin til aö kveöja. Minningunum skaut upp einni af annarri. Ég minntist litils drengsnáöa, 8-10 ára er oft var sendur aö Hlaöharmi ýmissa erinda. Þá var enginn simi. Eg minntist mjúkrar handar, er stundum strauk um koll hans, og ég tninntist þess er hún sagöi: „Ósköp ertu sveittur, nú hefuröu hlaupiö”. Stundum sagöi drengur: „Nú má ég ekkert stanza, mér var sagt aö flýta mér” — og var þotinn. Brátt heyröi drengur, aö kallaö var á eftir honum. Hann stanzaöi og sá hvar Jóna kom hlaupandi meö eitthvaö gott I bréfpoka til að gefa honum. Þannig var Jóna. hún gat ekki hugsaö sér, aö neinn færi frá heimili hennar án þess aö þiggja góögeröir, allra sizt ef um börn var að ræöa. Yfir lffi hennar var mikii heiðrikja, þaö var alltaf bjartur og léttur blær yfir öllu i kringum hana. Hún var að eölisfari lifsglöð og kát. Jóna fæddist aö Stóru-Hvalsá i Hrútafirði þann 5. okt. 1888. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi þar og kona hans Sigriður Kristjánsdóttir. Þau bjuggu á nokkrum stöðum i sveitinni, lengst á Valdasteinsstöðum og voru kennd við þann stað. Jóna var aöeins 12 ára að aldri, er faöir hennar lézt, og var hún eftir þaö i skjóli móður sinnar á ymsum stööum I sveitinni, lengst af i Bæ i Hrútafirði. Hinn 17. april 1915 giftist Jóna Ólafi Þorsteinssyni á Hlaðharmi, og hófu 6 Jónsdóttir þau búskap þar sama ár, i fyrstu á móti Þorsteini, föður ólafs, en fáum árum siöar lét hann af búskap og tóku þau þá viö jöröinni allri og bjuggu þar slöan, nú seinni árin i sambýli viö einn sona sinna, er reisti nýbýli i landi jaröarinnar. Mann sinn ólaf missti Jóna fyrir tveim árum, og stóö þá elzti sonur þeirra, sem alltaf haföi verið hjá þeim, fyrir búinu með möður sinni. Þau hjón Jóna og Olafur voru bæöi bjartsýn og framfaramanneskjur, sem trúöu á landiö og bjarta framtið, og ég er á þeirri skoöun, aö þeim hafi oröið að trú sinni. Hvaö getur veriö ánægjulegra eða veitt meiri hamingju I sambandi viö búskap en aö sjá mörg strá vaxa, þar sem áöur óx eitt, og sjá tööuvöllinn stækka frá ári til árs, sjá gömlu torfhúsin hverfa en þess i stað risa ný hús, er buöu upp á meiri þægindi og varanleik, en áður þekktist almennt? Sjá börn sin vaxa upp, öll sjö, og strax og þau höfðu þroska til, taka þátt I uppbyggingarstarfi, er alls staðar var veriö að vinna, annað hvort heima eða annars staöar. Fylgjast vel meö og styöja þau er þau stofnuðu sin eigin hvort semþað var i heimasveit þeirra eöa annars staðar. ömmu-og afabörnin voru mörg, og vel var fylgzt með þroska þeirra, og sum þeirra voru oft i sumardvöl hjá ömmu og afa. Eitt dótturbarn þeirra ólst þar upp að fermingaraldri og var þvi eins og sólargeisli á heimilinu, einkum þar sem börn þeirra voru orðin fullorðin og mörg þeirra farin að heiman. Þau Hlaöhamarshjón náðu bæöi nokkuð háum aldri, þeim auðnaðist þvi aö lifa þaö aö sjá ævistarfið bera rikulegan ávöxt. Ég held, að þau hafi verið hamingjusöm. Jóna var lagleg kona og vel vaxin, hugljúf og létt I viömóti og bauð af sér mjög góöan þokka. Yfir Hlaðhamars- heimilinu hvildi alltaf léttur og ferskur blær, og voru þau hjón samhent i þvi aö skapa þann heimilisanda. Vett- vangur Jónu var heimiliö, og þvi helgaöi hún alla krafta sina. Hún var „bara húsmóðir”, eins og svo oft heyrist sagt nú til dags, en i þessu hug- taki felst meira, ef dýpra er skoðað. Eins og áður er minnzt á, eignuðust þau hjón sjö börn. Það hefur þvi verið ærin vinna að annast uppeidi þeirra I þeim húsakynnum, er þá voru algeng- ust, baðstofubyggingu með mjög tak- mörkuðum þægindum. Gestkvæmt var á heimili þeirra hjóna og gestrisni mikil, og þvi mikið starf oft og tiöum á þeim vettvangi. öllum þurfti að gera gott, og einnig að gera þeim dvölina sem ánægjulegasta meö glaðværum viöræöum. Ýmislegt gat borið á góma, og voru viðræður oft léttar og skemmtilegar. Þaö var einkennandi fyrir Jónu, að hún mátti aldrei heyra neinum hallmælt eöa hnjóðsyrði til nokkurs manns. Þá var hún strax á veröi og vildi eyða sliku tali, eða hún bar I bætifiáka fyrir þann, er ihlut átti, og sýnir þetta glöggt, hversu grandvör hún var i allri framkomu. Þegar börn hennar voru að vaxa islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.