Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Blaðsíða 10

Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Blaðsíða 10
Jónína K. H. Biering í hundrað ára minningu. F. 4. des. 1874. D. 21. ág. 1958. Á gröf þinni ris hvorki mösur né marmaraturn. Nú muna þig fáir,enóskhyggja vekur þá spurn, hvort Drottinn á blöð sin ei merki við mannkosti þá, sem mönnunum láðist að festa á einkunnaskrá. Akureyri, 4. des. 1974. Gisli Konráðsson. Halldór Þorvaldsson fyrrum bóndi að Kroppsstöðum, Önundarfirði F. 25. sept. 1895. D. 24. jan. 1975. Halldór borvaldsson fæddist aö Hól- um i Dýrafirði, 25. sept. 1895, foreldrar hans voru hjónin Kristin Halldórsdótt- ir og Þorvaldur Þorvaldsson, en þegar Halldór var um það bil ársgamall fluttust foreldrar hans til önundar- fjarðar og hófu búskap að Vivilsmýr- um þar i sveit og bjuggu þar i nokkur ár, en fluttust siðan að Efstabóli i sömu sveit og bjuggu þar til ársins 1920, en þá byrjar Halldór búskap á Kroppsstööum og fluttust þá foreldrar hans til hans. Halldór ólst upp við algeng störf til ijávar og sveita eins og þá var algengt — A þeim tima var ekki auðvelt að afla sér menntunar og allra sizt þar sem peningar voru oft að skornum 10 skammti, þótt ekki vantaði viljann. Þó komst Halldór i Búnaðarskólann aö Hólum i Hjaltadal og stundaði þar nám i einn vetur. 7. júni árið 1931 gekk Halldór að eiga föðursystur mina. Ágústu Páis- dóttur, er fædd var 22. ágúst 1903, og bjuggu þau i góðu nábýli við foreldra mina, þar til aö Agústa lézt 8. april 1946. Börn þeirra hjóna eru: Páll Skúli, búsettur i Reykjavik, Kristin Lilja, bú- sett á' Fáskrúðsfirði og Aðalheiður, búsett i Reykjavik. Eftir lát Agústu konu sinnar, festi Halldór ekki yndi i önundarfiröi og fluttist búferlum haustið 1947 til Reykjavikur. Halldór var tvikvæntur, og er eftir- lifandi kona hans Ingibjörg, systir fyrri konu hans, og bjó hún Halldóri og börnum hans gott heimili og áttu þau síðast beimili aö Stigahlið 18, hér i borg, eða frá árinu 1959. Ég sem rita þessar linur, var svo lánsamur aö búa á heimili þeirra hjóna og njota þeirrar sérstöku góð- vildar, sem þar ríkti. Halldór var maður, eins og maður segir, með hjartað á réttum stað, aldrei mátti hann aumt sjá, þá var hann boðinn og búinn til að gera allt, sem hann var fær um til hjálpar. Halldór var hagmæltur vel og naut sin vel meðal vina og ótaldar eru vis- urnar, sem hann orti til vina og kunn- ingja. < Þungur harmur er kveðinn af eftir- lifandi eiginkonu hans, sem nú liggur á sjúkrahúsi og má nú sjá af ástrikum eiginmanni sinum, megi Guð styrkja islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.