Íslendingaþættir Tímans - 08.03.1975, Blaðsíða 5
htin mikill augasteinn afa sins.
Ég hef verið beðinn um fyrir hönd
starfsfólks Iðnaðardeildarinnar að
skila hinztu kveðjum og láta i ljós
þakklæti fyrir að hafa fengið að kynn-
ast og starfa með svo ágætum heiðurs-
manni sem Harry var.
Að leiðarlokum þakka ég Harry
góöa samvinnu og vináttu við mig og
mitt fólk, og við hjónin sendum konu
hans, börnum og öðru venzlafólki okk-
ar innilegustu samtiðarkveðjur og
biöjum góðan Guö að styrkja þau á
sorgarstundu.
Steinar Magntisson.
t
Kveðja frá félögum i fram-
kvæmdastjórn Sambands
isl. samvinnufélaga.
Vinur okkar og samherji, Harry 0.
Fredriksen er hniginn að velli, mitt i
önn dagsins.
Miðvikudaginn 29. janúar sat hann
með okkur fund i framkvæmdastjórn-
inni, glaður og reifur. begar við hitt-
umst næst, réttri viku siðar, var sæti
hans autt. Hins vegar á blaðið, þar
sem hann hafði sjálfur ritað fundar-
gerð siðasta fundar, var nú færö til
bókar hinsta kveðja okkar til látins
félaga og vinar.
Engum okkar duldist, að hér var
flett blaði i tviþættri merkingu þeirra
orða. Um leið og Harry Frederiksen
skrifaöi nafn sitt undir siðustu fundar-
gerðina, sem hann færði i letur sem
ritari framkvæmdastjórnar Sam-
bandsins, var á enda runninn starfs-
ferill, sem var ekki aðeins óvenjulang-
ur, heldur og gæddur óvenjulegri far-
sæld. Hann gekk ungur i þjónustu
Sambandsins og vann þvi siöan til
hinsta dags af fágætri trúmennsku.
Merku framlagi hans i þágu islenzkra
samvinnufélaga og islensks atvinnu-
lifs munu gerð skil á öörum vettvangi.
Handan við fátæklegan btining þess-
ara kveöjuorða leynast hugsanir og
tilfinningar sem slungnar eru mörgum
þáttum. Hinn gildasti þeirra er tengd-
ur endurminningum um persónuleg
samskipti okkar við Harry Frederik-
sen. Hvar sem spor hans lágu, gat ekki
hjá þvi farið, að ljtifmennska hans og
fáguð framkoma gæddu umhverfiö hið
næsta honum sérstakri hlýju. begar
hann nú eP horfinn af sjónarsviöinu,
erum við allir að fátækari. Hafi hann
að leiðarlokum heila þökk okkar allra
fyrir langa og farsæla samfylgd.
Eiginkonu hans, börnum og öðrum
íslendingaþættir
ættingjum vottum við dýpstusamúð. A
þessum sorgarinnar degi biðjum við
þau að minnast þess, að
„minningin lifir,
þótt maöur deyi
björt eins og sól
á sumarvegi.”
Agnar Tryggvason,
Guðjón B. Ólafsson,
Hjalti Pálsson,
Hjörtur Hjartar.
Jón bór Jóhannsson.
Sigurður Marktisson.
t
Fréttin um hið skyndilega fráfall
Harry Frederiksen framkvæmda-
stjóra, kom sem reiðarslag fyrir sam-
starfsmenn hans i Vinnumálasam-
bandi samvinnufélaganna.
Harry Frederiksen sat f stjórn
Vinnumálasambandsins frá upphafi,
eöa frá árinu 1951. Var hann varafor-
maður fyrstu árin, en tók við for-
mennsku af Vilhjálmi bór, fyrrver-
andi forstjóra S.l.S. árið 1955. Starfaði
hann sem stjórnarformaöur, utan 2 ár
vegna starfa hans erlendis, allt til
ársins 1972, að hann sagði af sér for-
mennsku. Hafði hann þá starfað i
stjórninni i 21 ár, og þar af 15 ár sem
formaður.
Síöustu árin og allt til dauðadags sat
hann i stjórn Vinnumálasambandsins,
sem varaformaður fyrir sérstaka
beiðni meöstjórnarmanna sinna, sem
óskuðu eftir þvi að samtökin fengju
enn um sinn að njóta mikillar reynslu
hans á vinnumálasviðinu.
í starfi sinu sem formaður Vinnu-
málasambands Samvinnufélaganna
ávann Harry Frederiksen sér sérstakt
traust og virðingu hvort sem var
meöal félaga Vinnumálasambandsins
eða hinna ýmsu forystumanna verka-
lýösfélaganna. 1 langvinnum og
erfiðum samningsgerðum á vinnu-
markaöinum vann hann mikið og
óeigingjarnt starf fyrir samtök sin og
ófáar eru þær vökunæturnar, sem
hann þannig bætti við annars sinn
langa vinnudag, sem framkvæmda-
stjóri Iönaðardeildar S.I.S. Stendur
Vinnumálasambandið i þakkarskuld
viö hann fyrir trausta forystu og vel
unnin störf.
Við, sem störfuðum með Harry
Frederiksen í Vinnumálasambandinu
minnumst hans fyrst og fremst sem
góös drengs, sem mannbætandi er að
hafa átt samleiö með. Við kveðjum
hann hinztu kveöju með virðingu og
þökk og sendum eiginkonu hans og
fjölskyldu okkar innilegustu samúöar-
kveöjur.
Stjórn og framkvæmdastjóri
Vinnumálasambands samvinnu-
félaganna.
Kveðja frá
Aldisi Lárusdóttur og
Richard bórólfssyni.
Harry O. Frederiksen,
framkvæmdastjóri.
Fæddur 15. marz 1913.
Dáinn 2. febrtiar 1975.
Horfinn er vinur, heiður, mildur dagur
hulinn af rökkurtjöldum þungra skýja.
Minningar vakna — þinn var ferill fagur,
fylgir þér bæn og einlæg þakkarhlýja.
Heil var þin hyggja —sönn i sorg og i gleði.
Sumarið brosti, hvar sem spor þin lágu.
Góðhugur sannur gerðum þinum réði
gekkstu um samur, hjá þeim lágu og háu.
Kveðju viö flytjum og þökk við þáttaskilin,
þökk fyrir að þti reyndist drengja beztur.
Kveiktir þti ljós og glæddir arinylinn
alls staðar þar, er birtist þti sem gestur.
Færra nti verður um á vinamótum
var þér æ tamt að skapa félagsanda.
I þinum sporum skutu rósir rótum
— rúmið er autt — en merki þitt mun standa.
Vormanni sæmir vist i ljóssins löndum,
ljúf er þin mynd og skýrt i vitund grafin.
Drifhvitu fleyi siglt er seglum þöndum.
— Særinn er blár og ströndin geislum vafin