Íslendingaþættir Tímans - 08.03.1975, Page 10

Íslendingaþættir Tímans - 08.03.1975, Page 10
MINNING Bjami Fanndal Finnbogason héraðsráðunautur Búðardal Fæddur 27. febrúar 1918 Dáinn 11. janúar 1975. Laugardaginn 18. jan. s.l. var gerö frá Fossvogskapellu i Reykjavik útför Bjarna F. Finnbogasonar. Samkvæmt ósk fór kveðjuathöfnin fram i kyrrþey að viðstöddum vinum og nánustu ættingjum. Þó nú sé nokkuð liðið siðan vinur okkar Bjarni ráðunautur var kvaddur, þá viljum við er þekktum hann bezt, engu að siöur, fá leyfi til að minnast hans meö nokkrum línum að leiðarlok- um, þó fátæklegt verði. tslendingum er tiðrætt um tiðarfar- ið, sem er eitt aðal áhyggjuefni bónd and hér og reyndar stéttarbræðra hans um viða veröld eða þeirra er löngum hafa leitazt við að yrkja frjóa mold, beizla orku sólar við jarövegs- efni þeirrar jaröar er forsjónin svo kallaða hefur fengið okkur til varð- veizlu og ávöxtunar þannig aö lifs- brautin þokist sina mótuðu hringrás I „aldanna skaut”. Veðrátta siöasta skammdegis með öllum sinum rysjum, dimmum stór- hriðum, og óbætanlegum áföllum fá- mennrar þjóðar, kemur upp i hugann, þegar minnzt er horfins vinar, sem unni og vann sitt lifsskeiö islenzkum landbúnaði til handa. En náttúruhamfarirnar eru margslungnar og margbrotnar, ekki minnst hér á norðlægari slóöum hins byggða hluta þessa heims, er við köll- um jörð mannkynsins. Það má segja að „veðurguðirnir” séu hið óútrciknanlega náttúrulögmál, og svo mun verða um aldir fram enn, þrátt fyrir „rafeindafræði”, og svo til ótakmarkaða tækni nútimans og kom- andi tima. Hver er þá skýringin, að ég gerist 5vo fjöloröur, einmitt nú um hiö erfiða tiðarfar fyrir, um og eftir ára- mótin 1974 til 1975? Jú, — mér finnst slæmt tiðarfar minna átakanlega mik- iö á erfitt heilsufar. 1 báðum tilfellum fer margt saman, að minnsta kosti sálrænt séð, margt sem á sinn þátt i að móta einstaklinginn og heimilisanda hans og hans nánustu. Bjartsýnin, orkan, athafnir i hinu daglega lifi fjölskyldunnar fá ekki not- 10 ið sin sem skyldi ef heilsufarsleg „ótiö” er það mikil að geislar vonar og bjartsýni ná ekki valdi á sál og likama okkar. Þetta er engin kenning. Þetta er hið óskráða lögmál hjá hverri kyn- slóð. Bjarni F. Finnbogason, fór ekki var- hluta af „ótið” — heilsunnar, en hann var hógvær I orði og æði svo við vitum ógjörla hvað strið hans var langdreg- ið. Við vitum þó að strax i ársbyrjun 1971 syrti alvarlega i álinn, þó hægt virtist i fyrstu og bjartar vonir fjöl- skyldu og vina voru þær að hér væri aöeins timabundiö él á ferð. Reyndin varð þó önnur og alvarlegri þvi fyrsta sjúkrahúsrannsóknin á heilsufari Bjarna að þessu sinni fór einmittfram hér I Reykjavik rúmum 3 vikum eftir útför elzta sonar hans, Birgis Fanndals, sem gerð var frá Akureyri 6. jan. 1971, eftir að hann haföi látizt I bifreiðaslysi 29. des. 1970. Birgir heitinn var mikill harmdauði alira er til hans þekktu, enda efnispilt- ur, sem lokið hafði framhaldanámi i mjólkurfræði og var nýtekinn við starfi sem slikur i fæðingarbæ sinum, Akureyri. Hann lét eftir sig unnustu. Bjarni F. Finnbogason giftist á Akureyri, eftirlifandi konu sinni, Sigurlaugu Indriðadóttur, þann 10. janúar 1947, en þar var heimili hans lengst af eftir að hann kom frá fram- haldsnámi i búfræði frá Noregi árið 1940 og þar til hann gerðist ráðunautur Búnaðarsambands Dalamanna árið 1957. Börn þeirra hjóna eru fjögur er upp komust sem fyrr greinir, Birgir, fædd- ur 10. nóv. 1948, Bergljót f. 27. des. 1950 gift Jónasi Samúelssyni, bústjóra á Tilraunastöðinni að Reykhólum i Barðastrandarsýslu. Þá Bryndis, húsmæðrakennari, fædd 27. des. 1953, heitbundin Agústi Jónssyni, rafvirkja frá Stykkishólmi. Og yngstur er Bjarni, fæddur 10. ágúst 1955. Hann er nú að ljúka rafvirkjanámi og dvelur ásamt Bryndísi hjá móður sinni á heimili þeirra að Hátúni 8 i Reykjavik. Foreldrar Bjarna eru bæði á lifi og hafa.verið búsett á Akureyri nær 40 ár, en þau eru Finnbogi Bjarnason og kona hans Sigrún Eiriksdóttir, og dvöldu þau i Skagafirði fyrstu búskaparárin eða meira en 15 ár, enda þar fædd og uppalin. Fjóra syni eign- uðust þau hjón og var Bjarni þeirra elztur. Þá Valgarð er lézt um tvitugs- aldur. Þriðji sonurinn er Eirikur Hreinn forstöðumaður Borgarbóka- safns Reykjavíkur. Og yngstur er Stefán Yngvi, tannlæknir i Reykjavik. Þá ólu þau hjón upp eina fósturdóttur, Margréti Kristjánsdóttur, sem býr ásamt fjölskyldu sinni hér i borg. Börn og tengdabörn Bjarna og Sigurlaugar eru efnisfólk, námfús og starfsöm. En barnalánið hefur löngum verið taliö styrkasta stoðin i framvindu kynslóöa- skiptanna, ekki sizt á erfiöum stund- um og i langvarandi heilsufarserfið- leikum, eins og hér var raunin á hin síðustu ár. Þá hefur hógvært og vinnusamt æskufólk gefið heimili sinu ómetanleg- an stuðning með styrkleika húsmóöur- innar sem þeir einir vita er bezt til þekkja, hve rikur er i fari hennar og framkomu, þegar á reynir. Mér er kunnugt um að fyrrv. húsbóndi Bjarna og skólafélagi okkar íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.