Íslendingaþættir Tímans - 19.06.1976, Page 15

Íslendingaþættir Tímans - 19.06.1976, Page 15
Sjötugur Jón Arnason r bóndi, Stóra-Armóti Jón Arnason bóndi á Stóra-Armóti i Hraungeröishreppi varö sjötugur 29. mais.l,, en hann er tæddur á Stóra-Ar- móti 29. mai 1906, sonur Arna bónda Þar ísleiíssonar frá Kanastööum 1 Landeyjum, Magnússonar bónda á Kanastööum, Magnússonar bónda i Nópakoti, Einarssonar eldra á Leir- um, Oddssonar bónda i Steinum, Ein- arssonar bónda i Efstakoti, Oddsson- ar. Móöir Isleifs var Guörún ísleifsdótt ir bónda á Seljalandi, Gissurarsonar. Móöir Arna á Stóra-Armóti og amma Jóns var Sigriöur Arnadóttir bónda á Stóra-Armóti. Var Arni hreppstjóri og danebrogsmaöur, og samhliöa þvi aö vera stórbóndi þá var hann einnig formaöur fyrir vertiöar- skipi f jölda ára i Þorlákshöfn, en þar haföi hann álizt upp hjá fööur sinum Magnúsi bónda og skipasmiö, Bein- ieinssonar rika, Ingimundarsonar hónda i Holti og Hólum í Stokkseyrar- hreppi, Bergssonar 1 Brattsholti. Er Jón þannig sjöundi maöur frá Bergi, sem hin fjölmenna Bergsætt er viö kennd. Kona Arna Isleifssonar og móöir Jóns var Guöbjörg Jónsdóttir bónda i Eystri-Sólheimum i Mýrdal, Þor- steinssonar bónda á Sólheimum, Þor- steinssonar. Má af þessari stuttu ætt- rakningu sjá, aö traustar og kunnar ættir um Suöurland standa aö Jóni. Poreldrar Jóns bjuggu lengi á Stóra-Armóti og höföu þar rausnarbú. Guðbjörg dó 1930, en Arni hélt áfram búskap meö börnum sinum þrem, sem UPP komust, þeim Sigriöi, Ingileifu og Jóni. Er fram liöu stundir tóku þau svo viö jörö og búi, og hafa haldiö i heiöri gömlum og góöum ættar- og heimilis- venjum þar sem bæöi gestum og heimamönnum er jafnan veittur góöur beini og gott viömót. Margir unglingar hafa átt þar sumardvöl og siðan haldiö vináttu viö þau systkin upp frá þvl. Sigriöur hefur nú um margra ára skeiö oröiö aö dvelja á Sjúkrahúsi Sel- foss vegna heilsubilunar. Hugur henn- ar mun jafnan dvelja á Stóra-Armóti hjá systkinum sinum og hún fylgist þar meö öllum störfum eirra á hinni fögru og góöu jörö, sem þau hafa allar stundir fórnaö kröftum sinum til aö hæta og prýöa. Þar hafa þau ræktaö stórt tún og byggt ibúöarhús og önnur jaröarhús i nútimastll. Þegar Jón var ungur, þá stóö hugur hans mjög til þess ab verað listiönað- armaöur á sviöi tréskuröar og skraut- ritunar. Fór hann þá á námskeið i tré- skuröarlist hjá Rikharði Jónssyni myndhöggvara og kom þá I ljós, sem áöur var vitað, aö hann haföi mjög góða hæfileika á þvi sviöi. En jörðin og búsannir heimtuöu hins vegar krafta Jóns óskipta til að rækja skyldur bónd ans og þeirri köllun hlýddi hann. Oft greip Jón þó einkum fyrr á árum til hugöarefna sinna og liggja eftir hann ýmsir góöir hlutir, sem eru og veröa til vitnis um hverjum listatökum hann gat beitt þegar hann tók á tréskuröi eöa skrautritaði skjöl. Þá kom hag- leikur hans einnig i góöar þarfir viö byggingar á Stóra-Armóti. Jón er maöur hlédrægur og lætur ekki mikiö yfir sér eins og algengt er hjá þeim.sem búa yfir góöum hæfileikum. Þó hefur hann ekki komizt hjá þvi aö vera kosinn til ýmissa félagsmála- starfa. Hann gekk I ungmennafélag sveitar sinnar um tvitugsaldur þegar þaö var stofnað og var þar lengi ötull liðsmaður. I hreppsnefnd sat hann i 16 ár og lengi I stjórn Veiðifélags Arnes- inga. Fleiri félagsmálastörfum hefur hann sinnt þó hér veröi eigi talin. öll slik störf rækti Jón af áhuga og var gott meö honum aö vinna. Getur sá er þetta ritar um þaö boriö þvi viö áttum mikiðsaman að sælda um margra ára skeiö i ungmennafélaginu og hrepps- nefndinni. Auðvitaö höföum viö ekki alveg sama viöhorf æfinlega til allra hluta, en aldrei olli þaö ágreiningi, sem á nokkurn hátt spillti vinfengi okkar, enda drengskapur Jóns slikur aö allt hefur jafnan veriö hreint og traust af hans hendi. Þegar viö Jón vorum ungir þá fórum viö stundum saman I fjallaferðir til fjárleita og vorum tjaldfélagar. Gtíöur samferöamaöur var Jón og glaöar stundir áttum viö þá i hópi kátra pilta. Nú er orðið langt síðan þetta var og ó- liklegt aö viö förum slíkar feröir sam- an oftar, ei gott er aö ylja sér viö góö- ar minningar frá gömlum dögum. Meö þessum linum vildi ég mega senda Jóni Arnasyni árnaðaróskir á sjötugsafmælinu og þakkir fyrir liðnar stundir. AgústÞorvaldsson. Kveðjur til fimmtug ra góðvina Baldur Pálmason i Gtvarpinu (F. 17. des. 1919) Þú siglir á sjötta tuginn og sérö, hvaö tiðin er greiö. 1 Köldukinn á Asum þú komst inn I veröld hér nitján hundruð og nltján nótt eina i desembér. Með vinum er vænzt að dvelja þar vestur á Þingeyri, þó ferðu sem fljótast i bæinn á fimmtugsafmæli. Ég sé það er sautjándi núna, og sjá: þú ert fimmtugur. Þvi sendi ég samúðarskeyti þér, sviphýri öðlingur. Með kindum og hrossum og krökkum og konu og heimili þú unir þér allvel þar vestra, — og auðvitað Mammoni! Tómas Jónsson skólastjóri og sparisjóösstióri á Þingeyri (f. 6.6. 1925) A manndómsins miðjum vegi nú mænirðu fram á leið. Svo gleðji þig árin sem áður, minn ágæti starfsbróðir. Þú siglir á sjötta tuginn, — og sjálfsagt hlýturöu byr! Auðunn Bragi Sveinsson . islendingaþættir 15

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.