Íslendingaþættir Tímans - 09.03.1978, Page 1

Íslendingaþættir Tímans - 09.03.1978, Page 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR Fimmtudagur 9. marz 1978 j&£4bl. ^ TÍIVIAIVIS Þorbjörg Pálsdóttir fyrrum húsfreyja á Fædd 11. des. 1885. Dáin 6. febr. 1978. beir eru ekki margir, hvorki i hópi kvenna né karla sem ná þeim aldrei að verða niræðir eða meira, eins og varð um þá látnu konu sem hér verður minnzt að nokkru, en hún náði niutiu og tveggja ára aldri og nærri tveim mánuðum betur, en nokkur siðustu árin var þrek hennar þrotið og dvaldist þau árin á Sólvangi i Hafnarfirði. Þorbjörg R. Pálsdót’tir var fædd á Gilsá i Breiðdal 11. des. 1885, en þá stóð yfir hið mesta harðindatimabil sem komið hefur hér á landi siðustu eitt hundrað árin og reyndist öllum landslýö mjög þungbært og vafalaust rikasta ástæða til þess að margir flýðu land sitt og fóru til Vesturheimstil langdvalar þar, en svo var að mörgum þrengt aö þeir komust ekki af sjálfsdáðum. Foreldrar Þorbjargar voru þau hjónin Ragnhildur Stefánsdóttir frá Stakkahlið i Loðmundarfirði og Páll Benediktsson bóndi á Gilsá og hreppstjóri Breiðdælinga. Um hann segir Páll Eggert Ölason i Isl. æviskrám, IV. bindi bls 109: „Gildur bóndi og fyrirhyggjusamur enda mikils metinn og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum.” Svipaðan dóm mun Ragnhildur kona hans hafa átt og fengið hjá þeim sem til hennar og heimilisins þekktu. Aðra dóttur áttu þau hjón, er Guðlaug hét, er giftist Guðmundi búfræðingi á Gilsárstekk. Dóttursonur þeirra er Vé- steinn ölason lektor, einn hinna yngri fræði- og áhugamanna þjóðarinnar siöustu árin. Einn albræðra Páls á Gilsá var bænda- höfðinginn Halldór sem bjó á höfuðbólinu Skriðuklaustri I Fljótsdal, en tengdasynir hans voru þeir Halldór Stefánsson alþingismaður Sunnmýlinga og forstjóri Brunabótafélags Islands og Sigmar Þor- mar bóndi á Skriðuklaustri. Séra Jón Benediktsson, lengi prestur I Gilsá Görðum á Akranesi en siðar i Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, var hálfbróðir Páls. Sonarsonur séra Jóns er Jón Helgason ritstjóri Timans og rit höfundur, þjóðkunnur maður fyrir sinar mörgu bækur og fjölbreyttu, er hann hefur samið og gefið út á siðustu ára- tugum. Faðir þessara þriggja merku bræðra var Benedikt, prestur til Eydala og viðar á fyrri hluta 19. aldar, en hann var sonur Þórarins prests og skálds I Miila, sonur Jóns prests i Mývatns- þingum. Meöal sona hans, en bróðir Þórarins var Benedikt yfirdómari og skáld, afi þjóðskáldsins og listamannsins Benedikts Gröndal Sveinb jarnarsonar rektors Latinuskólans. Systir séra Benedikts i Eydölum var Þorbjörg er giftist séra Kristjáni Þor- steinssyni er siðar var prestur á Völlum i Svarfaðardal, en sonur þeirra var Þórarinn prestur til Reykholts 1867-1872 en siðar i Vatnsfirði, en hann var langafi dr. Kristjáns Eldjárns, núverandi forseta Islands. Er ætt þessi mikil prestaætt norðlenzk og úr Múlasýslum. Það var vorið 1912, fyrir meira en sextlu og f imm árum, að við Þorbjörg unnum að sama starfi um sex vikna skeið. Búnaðar- félag íslands hafði frá þvi laust eftir alda- mótin séð um og rekið svokallað garð- yrkjunámskeið og haft ráð á nokkurri landspildu er nefnd var Gróðrarstöðin, sunnan Laufásvegar á móts við Kennara- skólann. Voru nemendur oftast milli tiu og tuttugu, en stjórnandi var Einar Helgason ráðunautur — og oftmeð honum aðstoðarmaður. I þetta sinn var i þvi starfi Páll Jónsson kennari við Bænda- skólann á Hvanneyri, ágætur maöur, mjög vel gefinn og starfsmaður mikill, en lézt fyrir aldur fram. Störfin á námskeiðinu voru almenn garðyrkja, nokkur trjárækt og blómarækt undir umsjá Einars og Páls. Nemendur voru viðsvegar af landinu, bæði konur og karlar, og flestir á aldrinum um og yfir tvitugt. Unnið var eingöngu með hand- verkfærum en engar vélar voru þá komnar til notkunar þar. Stærsta verk- færið sem sást var plógur, en ekki mikiö notaður, land var fremur erfitt viður- eignar. Við piltarnir unnum töluvert annars staðar, i görðum viðs vegar um bæinn. Allmargir áttu þá trjágarða og blómagarða og aðrir voru að byrja á slikum umbótum við hús sin. Að kveldinu fluttu þeir Einar og Páll stundum erindi er lutu aö þvi starfi er unnið var við. Þarna varsamankominn smáhópur alda- mótamanna, sem oft eru svo nefndir, flestir höfðu starfað og voru starfandi i Ungmennafélögum, sem næstu árin á undan höfðu svo að segja vákiö þjóð sina til nýs lifs og hugsunar og valið sér að einkunnaroröum „Islandi allt” er sumum þótti stundum djarflega til oröa tekið og töldu barnahjal eitt. Námskeiðsfólkið var fúst til hvers þess starfs er þarna fór fram, hvort sem það var létt eða hægt, og var þetta eins og skemmtilegur skóli, þótt fámennur væri og stæöi ekki lengi I hvert sinn. Að námskeiðinu loknu lögðu tvær stúlkur sem á þvi voru i langa gönguferð.

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.