Íslendingaþættir Tímans - 09.03.1978, Síða 6

Íslendingaþættir Tímans - 09.03.1978, Síða 6
Anna Olafsdóttir frá Hvallátrum á Breiðafirði f. 13. mal 1893 d. 7. júlí 1977. Anna frænka var elzt niu barna hjón- anna Ólafs Bergsveinssonar bónda og Oli'nu Jónsdóttur i Hvallátrum á Brei&a- firði. HUn ólst upp á mannmörgu heimili for- eldrahUsanna vi& fjölbreytt verkefni eyjabúskaparins. Á tímabili mun bU Ólafs fööur hennar hafa veriö meöal hinna stærstu vi& Breiöafjörö og umsvif eftir þvi, auk þess sem afkastamiklar skipa- smi&ar hans höföu I för meö sér. Þó aö Anna væri bókhneigö og námfUs átti ekki fyrir henni að liggja aö eyða miklum tima i bóknám á skólabekkjum, ef heimakennsla er undanskilin. Sauma- skap og hannyröir nam hUn ung stUlka, bæði á Isafiröi og i Reykjavík auk hUs- stjórnar. Ahuga oghæfileika til handmennta eins og það heitir nU, átti hUn ekki langt aö sækja. Auk nafntogaöra hagleiksmanna I fööurætt hef ég fyrir satt að móðir hennar hafi veriö þannig verki farin, og sumt af hennar fólki að þar megi gjarna tala um snilligáfu (Daniel gullsmiöur i Hlíö I Þorskafirði Hjaltason t.d.) Engrar skóla- göngu hafði hUn notiö og ólst upp viö þann þrönga hag islenzkrar alþýðu sem ekki bauöupp á annaðen þrotlaust matarstrit- ið. Fullorðinsárin liöu svo við annríki hUs- freyjunnar sem sjálf átti niu börn ól þar að auki upp hóp fósturbarna og hafði ein- att nær 30manns I heimili. Samt mun hUn hafa unnið i höndunum slika muni aö verðlauna þóttu veröir á heimilisiðnaöar- sýningu i Reykjavík. Það mun þvi hafa verið hollt veganestið sem Anna hafði Ur fóðurgaröi. Eftir að hafa aukið við það með skólanámi sínu, var það aö vonum að margir vildu njóta handaverka hennar. Enda var það svo að hUn stundaði saumaskap og hannyrðir fram á efri ár, jafnvel til hins siðasta þegar heilsan leyfði. Má segja að hUn hafi valdið flest- um verkefnum á þvi sviði hvort sem um var að ræða venjulegan fatnað eða Ut- saumaða skrautmuni karlmannaföt eöa islenzka þjóðbúninginn. Eitt sinn heyrði ég gamla konu spyrja hana fulla að- dáunar: Hvar læröir þU nU eiginlega að sauma? Anna min”. Ogsvariðvar: Æi, ég 6 veitþaðnU varla. Ætli ég hafi þó ekki lært mest af henni mömmu minni.” Það kom i hlut önnu aö taka við hUs- móðurhlutverkinu á hinu stóra heimili þegar móðir hennar dó árið 1929. Og bU- stýra föður sins var hUn, þar til hann hætti búskap 6 árum siðar farinn að kröftum og heilsu. Ekki skildu þó leiðir þeirra meðan hann lifði þvi að hUn annaðist hann I erfiðum veikindum af mikilli umhyggju þar til yfir lauk sumarið 1939. Þau feðginin dvöldu' á heimili foreldra minna þessi siðustu æviár hans. Ég fylgdist með þvi ungur drengur hvað hUn þurftiásigað leggjaþá, jafntá nóttu sem degi. En ofan á veikindi hans bættist það mótlæti að hUn varð fyrir slysi og bjó við afleiðingar þess upp frá þvi. Enga grein gerði ég mér þó fyrir þvi þá hve undan- gengin ár höfðu verið strangur reynslu- skóli fyrir þessa sterku og fóiúifUsu frænku mina. HUn bar það ekki á torg. En slysfarir og dauðsföll höfðu þá um skeið höggvið svo stór skörð i frændgarö hennar og þann hóp er næstur stóð að kunnugir munu naumast bUast viö að henni hafi alltaf hlegið hugur í brjósti við næsta degi þá. Þó held ég að á þessum árum hafi henni eins og endranær verið það efst i huga að miðla öðrum af verkum sinum og hjálp- semi þegar hún gat. Um langt árabil eftir þetta átti Anna heimiii i Látrum hjá Jóni Danielssyni frænda slnum og fósturbróður en dvaldi þó ofthjá systkinum og frændum auk þess sem hUn vann við sauma á ýmsum heimilum. Oftareneinu sinni var hUn langdvölum áheimili systur sinnar frU Láru Kolbeins, bæði I SUgandafirði og norður I Skagafirði enda bundin henni og hennar fjölskyldu sömu tryggðaböndum og öörum ættingj- um sfnum. Að öðru leyti dvaldist hUn löngum á æskuslóðum sínum i Breiða- fjarðareyjum. Sumarið 1958 varð sU breyting I lífi önnu að hUn giftist æskuvini sinum, Sveini Gunnlaugssyni fyrrverandi skóla- stjóra sem þá var orðinn ekkjumaður og fluttist til hans aðFlateyri i önundarfirði. Þar átti hUn sfðan heimili til dauðadags sl. sumar. Held ég að óhættsé að segja að hUn hafi bundizt hinu nýja tengdafólki sinu öllu þeim traustu tryggðaböndum sem henni var eiginlegt, enda reyndust þau henni sem móður. Atvikin höguðu þvi svo að um margra ára bil var ég heimagangUr á heimili önnu og Sveins á Flateyri og þar var allt- af jafn gott að koma. HUsbóndinn var og er mikill fróðleiksbrunnur og ekkert um- ræðuefni er honum jafn hugleikið og mannlifið heima á æskuslóðum þeirra hjónanna. Enda undi hann löngum viö að bjarga frá glötun ýmsum fróðleiksmolum þaðan eftir að annriki ævistarfsins var að mestu að baki. Það fann ég oft þá þó að Anna legði oftast færra tíl mála hve minni hennar var heilsteypt og traust eins og annað I fari hennar og hve næman skilning hún hafði á högum þeirra, sem hUn haföi átt samleið með. Ég hafði þaö alltaf á tilfinningunni að Urskurði hennar væri óhætt að treysta og héldi hUn ein- hverju fram þyrfti ekki frekar vitnanna við. HUn mundi aldrei staðhæfa neitt sem hún væri ekki viss um að væri rétt. Seinast þegar ég kom á það heimili var gamli maðurinn orðinn ekkjumaður i annaðsinn og þó að ellimóður væri ræddi hann af óbiluðum kjarki um liðna tið. Þá sagöi hann mér ýmislegt sem ég haföi ekki heyrthann nefna áður og ekki hafði farið margra á milii. Þó kom það mér ekki á óvart, né heldur hitthversu mikils hann mat önnu og hve þakklátur hann var fyrir samfylgd hennar á liðnum árum. Þó að Anna eyddi ekki mörgum ævistundum til bóknáms á skólabekkjum fannst mér alltaf að hUn væri menntuð kona. Kannski var það vegna þess að ég islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.