Íslendingaþættir Tímans - 09.03.1978, Blaðsíða 11

Íslendingaþættir Tímans - 09.03.1978, Blaðsíða 11
Séra Steingrímur Octavíus Thorláksson Séra Steingrimur Octavius Thor- láksson, sem varð 87 ára i vor, var jarðaöur iSan Francisco 13. júli 1977, hann dó skömmu þar áöur i St. Louis, Missouri, þar sem hann hafði átt heima hjá dóttur sinni siöast liöin ár. Octavius — og var þaö nafnið venju- lega notað — var heiöursræöismaður íslands I San Francisco um aldar- fjóröungsskeiö, skipaöur i þá stööu 1944, og sagöi hann af sér fyrir fáein- um árum. Annars voru helztu starfsár hans þau 25 ár, sem hann var kristni- boöi f Japan, 1916 fram aö 1941. Sér Octavius haföi heimsótt Island þriveg- is. Fæöingarbær Octaviusar var Minneota, nær suövesturhorni Minne- sótarikis, þar sem faðir hans, séra Ni- els Steingrimur Thorláksson, var fyrsti fasti prestur Islendinga i Minnesóta, er hann tók viö prestakall- inu áriö 1887. Séra Steingrímur var af hinni mannmörgu og vel þekktu fjöl- skyldu Þorláks Jónssonar á Stóru- Tjörnum i Ljósavatnsskaröi í Suöur- Þingeyjarsýslu. Kona Steingrims var Erika Christofa Rynning, af þekktum biskupa- og prestaættum I Noregi, og voru þau gefin saman i Minneapolis I mai 1888. Steingrimur hafði stundað guöfræöinámiö viö háskólann i Osló 1883-37. og þar kynntust hann og Erika, bæöi nú löngu dáin. Octavius var elztur af sex systkinum og fæddist 26. maí 1890, öll systkinin lifa hann — Anna Margrethe, fædd lika í Minneota, ekkja séra Haraldar Sigmar og móöir veröum öll aö lúta. Þá ekki slður vilj- um viö skólasysturnar þakka Huldu einstaka og lærdómsrika samfylgd, allt frá fyrstu kynnum. Hjálpsemi hennar og greiðvirkni áttu sér engin takmörk, þaö höfum viö margar reynt. Bryndisi, Asthildi litlu og systkinum Huldu vottum við dýpstu samúö. Hulda var ljóssins barn, unni vori og gróanda. Henni óskum við fararheilla til himneskra landa þar sem sólin gengur aldrei til viöar. f.h. skólasys.tranna MargrétHaíisdóttir prestanna, séra Haraldar og séra Erics, Kelso, Washington, svo hinn viökunni læknir i Winnipeg, Paul Henry Thorbjörn, annar læknir, Har- alds Fredrick, sérfræöingur i augn- lækningum, Seattle, Washington, Lor- entz Hálfdán, I Vancouver, British Columbia, lengst af hjá stórfyrirtæk- inu HudsonsBay félaginu,lengi ræðis- maöur Islands, og Erika Louise Rann- veig, ekkja Harold M. Eastvold, lög- fræöings, lengi tónlistarkennari, til heimilis i Seattle. Séra Octavius var tvigiftur. Carolina Kristin hét fyrri kona hans, oftastnær kölluð Lina dóttir Guöjóns Ingimundarsonar Thómas, gullsmiös á Main Street i Winnipeg, og voru þau gefin saman 12. mai 1916. Lina dó I San Carlos, Kaliforniu, 20. des. 1956. Attu þau fjögur börn, sem öll eru á lifi, þrjú fædd I Japan og sú yngsta i Winnipeg, Anne Margrethe Bahnsen, San Francisco, Steingrimur Octavius, McArthur, Kaliforniu, Niels Erik, San Francisco, Carol Esther Dowd, St. Louis, Missouri. Seinni kona séra Octaviusar, sem hann gekk aö eiga 6. júní, 1959, var þá ekkja, dóttir David Ostlund og Inger Nielsen, konu hans, Liv Cecelie aö nafni. Liv og Georg bróöir hennar voru vön aö segja: „Faöir okkar var Svii, móö- ir okkar norsk, en viö erum seyö- firzk.”David Ostlund rak prentsmiöju nokkur ár á Seyöisfiröi, siðar I Reykjavik, en fjölskyldan fluttist til Ameriku 1915. Liv, sem var bæöi hjúkrunarkona og kennari i handa- vinnu, giftist Einari Böövarssyni Oddsson 28. janúar 1918, sem vann viö röntgenmyndagerö og dó 14. mai 1947, i Oakland, Kaliforniu. Foreldrar hans voru báöir fæddir nálægt Reykholti I Borgarfiröi. Séra Octavius lauk miöskólaprófi I Selkirk, Manitoba 1908, faðir hans varö prestur norskra safnaöa i Park River, North Dakota og þar i grennd, 1894 , og varö svo prestur islenzka safnaöarins i Selkirk 1900 og þjónaöi honum þangaö til 1927, er hann lét af prestsstörfum á 40 ára prestsafmæli sinu. B.A. prófilauk Octavius áriö 1913 frá Gustavus Adolphus College I St. Peter, Minnesota. A hátiðarhaldi viö þann háskóla 50 árum sföar var séra Octavius heiöraöur meö „Distinguish ed Graduate Award,” veitt aöeins nokkrum sem skaraö hafa fram úr. Hann lauk guöræðiprófi frá Chicago Lutheran Seminari, Maywood, Ulinois, 1916, og slöar stundaöi hann nám I sálarfræði viö Columbia háskól- ann I New York 1922. Prestvlgslu fékk hann 25. júnl, 1916, á þingi Hins evangelisklútherska kirkjufélags ls- lendinga I Vesturheimi. Hann haföi kennt og aöstoðaöi viö préstsstörf á námsárunum, en vigsla hans var til trúboðsstarfs i Japan, og var hann leystur frá þvi starfi eftir 25 ár, meö komu ásamt fjölskyldunni til Banda- rikjanna haustiö 1941, réttum mánuöi áöur en árásin varö gerö á Pearl Har- bor. Séra Octavius fór strax aö sinna ýmsum kirkjustörfum, en á meðan á striöinu stóö var hann i ábyrgðarmik- illi stööu hjá stjórninni i Washington, þarsem þekking hans á japönsku máli og málefnum var þýöingarmikill grundvöllur. Þaöan af veitti séra Octavius ýmsum stöfnuöum prests- þjónustu um timabil á hverjum staö, viða meðfram Kyrrahafsströndinni. Konsúlsstörfin voru llka margfalt meiri en heiöursstaöa, þau voru oft tlmafrek i San Francisco i allan þann aldarfjóröung og meir, sem hann sinnti þeim. Liv, kona hans, dó fyrir fáeinum árum eftir langvarandi las- leika, og þegar heilsa séra Octaviusar fór aö bila, flutti hann suöur til Esther dóttur sinnar I St. Louis. Octavius Thorláksson var friöleik- maöur, eins og systkini öll, snar i hreyfingum, fjörugur og skemmtileg- ur i' viðræöum, og vildi öllum gott gera. Hann var glaölyndur og bjart- sýnn og um leiö þolinmóöur I raunum. Hann var fjölhæfur, meö brennandi áhuga á öllum þeim mismunandi störfum, sem hann tókst á hendur. Þakkarskuld samferöamanna hans er mikil, og mun veröa bjart yfir minn- ingu hans um mörg ókomift ár. Valdimar Björnsson islendingaþættir 11

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.