Íslendingaþættir Tímans - 09.03.1978, Page 12

Íslendingaþættir Tímans - 09.03.1978, Page 12
Ragnar Birgir Baldvinsson Góöur vinur er allur. Baráttunni er lokið tveggja ára baráttu ungs manns sem var fullur af lffsþrá og gerði áætlanir fram á siöasta dag, hvernig hann ætlaði að búa i haginn fyrir fjöl- skyldu sina i framtiðinni. Og hann gafst ekki upp fyrr en i fulla hnefana. Riimur mánuður er liðinn siðan hann gekk i hinzta sinn að störfum I Sjálfs- bjargarhúsinu, þar sem öllmatseld og framreiösla var undir hans stjórn. A6 kvöldi þess vinnudags ók hann sem leið lá vestur I Dali, þar sem hann haföi eyöibýli á leigu, eyddi þar helg- inni I hópi vina og venzlamanna en siðan lá leiðin á Borgarspitalann þar sem hann lézt að kvöldi 24. sept. Fjörutiu ár þykir ekki löng manns- ævi, en Ragnar var búinn að reyna margt upplifa margt, bæði súrt og sætt á ekki lengri ævi. Létt lund og rik kimnigáfa fleytti honum yfir ýmsa örðugleika sem á leiöinni urðu. Glettn- in sem blikaöi i augum hans er hann skaut að manni athugasemdum sin- um, gleymist seint. Ragnar var fæddur 3. ágúst 1937 I Keflavik, en skóla og manndómsár sin bjó hann i Reykjavik. Fimm ára gamall fékk hann lömunarveiki og lamaöist á fæti. Bar hann þess menjar æ slðan. Hann valdi sér þó að starfa við afgreiöslu I kjötverzlun lærði siöan matreiðslu varmörgárá sjóen siðasti starfsvettvangur hans var eldhúsið I Sjálfsbjargarhúsinu. Þangað réöst hann áður en húsið var tekið I notkun, vann þar störf brautryðjandans. Hann kynntist vistfólki heimilisins trúlega betur en nokkur annar starfs- maður þar. Mörg undanfarin ár stóö hann fyrir ferðum fatlaðra til sólar- landa og var þá gjarnan fararstjóri sjálfur. Hann átti hugmyndina að kaupum bifreiðar fyrir fólk I hjólastól- um, sem Kiwanisklúbburinn gerði að veruleika og opnaði þar með dyr margra sem við hjólastólinn eru bundnir, út í hina viðu veröld. Tvitugur að aldri gekk Ragnar að eiga eftirlifandi eiginkonu sina Sigriði Erlu ólafsdóttur. Þeim varð fimm barna auðið, sem öll erui foreldrahús- um, nema elzta dóttirin. Þau sjá nú á bak umhyggjusömum heimilisfööur, sem var sLvinnandi heimaog heiman, að bættum hag heimilisins. Sjálfsbjörg félag fatlaðra hefur nú misst einn af sinum beztu félögum. Hann vann af lifi og sál að bættum kjörum fatlaðra i landinu. Hann vissi hvar skórinn kreppti þvl að „sá er eldurinn heitastur, er á sjálfum brenn- ur.” Fritima sinum jafnt og vinnutima eyddihanni þágu fatlaðra. Ekkert var taliö eftir sem stuðlaö gæti að bættum kjörum þessa fólks. Ragnar var félagslyndur maöur og hrókur alls fagnaðar á vinafundum. Litið dæmi um félagslýndi hans má nefna er einn félagi norður á Akureyri átti merkisafmæli og honum datt i hug að, .skreppa ’ ’ norður m eð kvöldferö og koma til baka með morgunferð. Hug- myndinni var hrundiöi framkvæmd og veröur öllum ógleymanlegt er hlut áttu að máli. Hann kunni að gripa tækifærið, þegar það gafst, eigin- leikar, sem of fáum eru gefnir. Við kveöjum góðan vin og félaga. Fleiri verða samverustundimar ekki að sinni, en þó hann sé okkur horfinn, þá munum við lengi enn ylja okkur við endurminningamar frá liðnum dög- um. Eiginkonu hans og börnum sendum við innilegar samúöarkveðjur. Hvil i friði góði vinur. P.E.T. Guðmundsdóttir Guðný f. 17. október 1895 d. 9. janúar 1978 I dag fimmtudaginn 19. janúar verður til moldarborin heiðurskonan Guðný Guðmundsdóttir Laugavegi 137 hér I borg. Guðný var fædd 17. október 1895 aö Arahóli á Miðnesi. Foreldrar hennar voru Sigurborg Torfadóttir og Guð- mundur Þorsteinsson sjómaður. Guö- ný var ein af 9 systkinum, og á þeim tima er hún var að slfta barnskólum bjuggu að Móhúsum á Miönesi hjónin Sigriður Jónsdóttir og Einar Hafliða- son. Voru þau barnlaus og fólust mjög eftir að fá Guðnýju til fósturs, og af þvi varö þegar Guðný var sex ára gömul. Þetta hefur eflaust ekki veriö sárs- aukalaust hjá foreldrunum, aö senda eitt barnið sitt frá sér, en fjölskyldan var stórog fátækt mikil og þau vissu — eins Guðný sagöi — að hún var að fara til góðs fólks. E n oft varð henni hugsað til systkina og foreldra á uppvaxtrár- um þó að fósturforeldrarnir væru henni góö. Guðný vann alla þá vinnu eins og stúlkur unnu viö sjávarsiöuna I þá daga, en þá var krafan um llfsþægindi ekki sú sama og I dag. Aðalatriðiö var aöhafa isig og á. Guðný var mjög lag- leg kona og yfir henni mikil reisn og myndarleiki. Man ég aö einn fullorð- inn maður sagði mér fyrir 30 árum að hún hefði gengiö undir nafninu Suöur- nesjasólin meöal ungra manna á Suöurnesjum I þá daga. Guðný fluttist til Reykjavlkur árið islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.