Íslendingaþættir Tímans - 09.03.1978, Side 14
Torfi Guðbjartsson
Fréttin um dau&a Torfa kom, okkui
félögum hans i Flugvirkjafélaginu
mjög á óvart, því ekkert fararsniö vai
á honum. Þaö minnir okkur á þá staö-
reynd, hvaö llfiö er hverfult. Þaö er
reynsluskóli og reynir þá á ýmsa þætti
i lifi hvers manns. Einn af þeim þátt-
um er lifsstarf viökomandi. Torfi var
útlæröur rafvirki þegar hann fékk
áhuga á flugvelum og tækjabúnaöi
þeirra, en þær hafa heillaö margan
ungan manninn. Réöst hann þvi i aö
læra flugvirkjun, þvi þá fékk hann
áþreifanlegt tækifæri til aö kynnast
þvi tækniundri sem flugvélin er. Torfi
reyndist mjög áhugasamur viö öll
flugvirkjastörf og átti auövelt meö aö
leysa tæknileg vandamál. Þá var hann
strangur viö sjálfan sig og aöra viö aö
fylgja hinum margvlslegu reglum
varöandi öryggi flugsins. Var honim
þvi sýnt veröugt traust, er hann var
skipaöur yfirflugvirki Landhelgis-
gæzlunnar. I þvl starfi, sem áöur,
reyndist hann jákvæöur og geöprúöur
maöur og þvi gott aö vinna undir hans
stjórn. Sakna starfsfélagar hans þvi
mjög og finnst vandfundinn maöur I
hans staö.
1 janúar 1966 gekk hann I Flug-
virkjafélag Islands og sýndi ávallt
þann áhuga og þroska, sem er stéttar-
félaginu svo mikils virði. Við fráfall
Torfa er horfinn, langt fyrir aldur fra,
einn af góöum sonum þessa lands, en
minning hans mun lifa I hugum okkar,
sem kynntumst honum.
Kcmu hans, Ingibjörgu Halldórs-
dóttur og sonum, vottum viö okkar
dýpstu samúö og biöjum Guö um styrk
þeim til handa I sorg þeirra.
Flug virkjafélag tslands.
t
Kveðja frá vinum á jaröarfaradegi hans 11. okt. 1977
Hljótt er i götunni, og gleöin er flúin
grimm eru örlögin ráöandi hér.
Horfinn er vinur, sem héöan var kvaddur
harmurinn sári brjóstiö sker.
Allt virðist tapaö I sólmyrkva sálar,
sorgin þá kremur hjartað um stund.
En vonin hún bregzt eigi vinum hins látna,
sem vona og trúa á endurfund.
L.E.
14
Islendingaþættir
!t 11 I .} ! í.tb-i, «!