Íslendingaþættir Tímans - 09.03.1978, Page 16

Íslendingaþættir Tímans - 09.03.1978, Page 16
70 ára Sigmundur Guðmundsson frá Melum í Árneshreppi Vinur minn og sveitungi, Sigmundur Guðmundsson frá Melum i Arneshreppi varð sjötugur þann 26. janúar. Af þvi til- efni sendi ég frá mér nokkrar lfnur sem afmæliskveðju til hans, þar sem fjarlægð\ ir skilja okkur að. Sigmundur er fæddur að Melum i Ar- neshreppi þann 26. janúar 1908. Foreldrar hans voru hjónin Elisabet Guðmundsdótt- ir, Péturssonar frá Ófeigsfirði og Guð- mundur Guðmundsson, Melum. Guð- mundur Pétursson i Ófeigsfirði, faðir Elisabetar, var landskunnur atorkumað- ur, stórbóndi i Ófeigsfirði, hákarlafor- maður á teinæringnum Ófeigi, sem nú er geymdur á byggðasafninu að Reykjum, og kaupfélagsstjóri á Norðurfirði um ára- bil. Foreldrar hans voru hjónin á Dröng- um, Pétur Magnússon frá Finnbogastöð- um (Finnbogastaðaætt) og Hallfriður Jónsdóttir Guðmundssonar, bónda á Mel- um, Magnússonar, bónda sama stað. Guðmundur á Melum, faðir Sigmundar, var sonur Guðmundar Jónssonar, bónda á Melum, Guðmundssonar á Melum, Magnússonar bónda á Melum frá 1796- 1821, en árið 1820 er Jón sonur Guðmundar orðinn bóndi á Melum. Er það Melaætt. Af þessum tveim ættum er margt kjarnafólk komið, konur og karlar, margt afburða- gáfum gætt og dugnaði. A Melum hefur sama ættin búið frá 1796 og fram til 1974 er Guðmundur bróðir Sigmundar hætti bú^ skap þar, eða í 178 ár. — Þau Guðmundur og Elisabet, foreldrar Sigmundar voru, eins og hér hefur verið rakið, náskyld, að öðrum og þriðja frá Jóni á Melum. Þau Melahjón eignuðust 12 börn, sem öll komust á fullorðinsár, 8 synir og 4 dæt- ur, öll mesta greindar og dugnaðarfólk. Af þeim eru nú 6 á lifi. Var Sigmundur sá 7. i aldursröð þeirra. Guðmundur faðir þeirra lézt 1. október 1923, aðeins 54 ára. Var það mikið áfall fyrir heimilið og syst- kinahópinn, sem enn var að nokkru i bernsku og yngsta barnið, Guðmunda, þá ófætt. Elisabet hélt áfram búskap á Mel- um með aðstoð eldri barna sinna. Var Guðmundur, elzti bróðurinn, fyrir búi með móður sinni þar til hann kvæntist og fór að búa sjálfur, 1942. Sigmundur ólst upp i foreldrahúsum og með móður sinni eftir lát föður sins. Eitt- hvað var hann i Árnesi hjá séra Sveini og frú Ingibjörgu. Man ég að frú Ingibjörg gaf honum þann vitnisburð, að aldrei hefði hún haft annan eins dugnaðardreng og Sigmundur hefði þá verið. Honum þyrfti aldrei að segja verk, sagði hún, blessuð gamla konan. Hann var snemma dugmikill og kappsfullur svo aö af bar. Hann var hamhleypa til allra verka, svo að segja mátti að hann afkastaði tveggja manna verki að hverju sem hann gekk. Hann fór til náms i bændaskólann á Hvanneyri haustið 1926 og lauk prófi það- an vorið 1928, þá tvitugur að aldri. Sú skólaganga varð honum gott veganesti þó hún væri ekki lengri og undirbúningur undir það nám litill annar en þá tilskilin barnafræðsla, veitt i heimahúsum. Nokkru eftir að Sigmundur kom heim frá Hvanneyri veiktist hann af illkynjaðri brjósthimnubólgu og varð að fara á sjúkrahús þar sem hann dvaldi um skeið. Tókst að veita honum góðan bata svo hann varð vinnufær á ný. Hygg ég þó að hann hafi samt upp frá þvi búið að þeim sjúkleika að ýmsu leyti. Árið 1931 gekk hann að eiga Sigrúnu Guðmundsdóttur, fósturdóttur séra Sveins og frú Ingibjarg- ar I Arnesi, hinni mestu myndar og gæða konu. Sama ár fór hann i húsmennsku að Arnesi, fékk jörðina til afnota hjá séra Sveini, sem þá var að draga saman seglin I búskap sinum. Bjuggu þau hjónin þar til vorstins 1939, er þau fluttu að Melum, i tvibýli móti móður hans og bróöur, Guð- mundi. Áður en Sigmundur flutti að Melum hafði hann búið vel i haginn fyrir sig og fjölskyldu sina þar, samhliða búskapnum i Arnesi. Var hann þá búinn að byggja öll hús frá grunni, ibúðarhús, gripahús og hlöður úr steinsteypu. Sýndi hann I þessu undravert framtak og dugnað. Þegar hann var kominn að Melum hófst hann strax handa um ræktunarframkvæmdir. Ræsti hann fram mýrar með handverk- færum og plægði með hestum og herfaði. Jókst tún hans fljótt að miklum mun. Þá voru ekki komin vélknúin jarðyrkjutæki til sögunnar, eins og siðar varð. Lá I þessu geysi mikil vinna og erfiði. Er mér ekki grunlaust um að sú kappgirni, sem hann sýndi við þetta, hafi ofboðið honum og átt sinn þátt i að heilsa hans bilaði svo snemma sem raun varð á. Hér heima var hann valinn til ýmissa trúnaðarstarfa fyrir sveit sina. Sat hann i hreppsnefnd mörg ár og I skattanefnd um skeið, þar til sú starfsemi var flutt til f jar- lægra staða, og i skólanefnd var hann um nokkur ár. Var hann vel til þeirra starfa fallinn, ágætur reikningsmaður eins og hann á kyn til, glöggur á málefni, ritfær vel og skrifaði prýðilega. Jafnhliða bú- skapnum og þeim störfum, sem hér hefur verið minnzt á, vann hann oft utan heimilis að smiðum og múrverki eftir að það kom til sögu. Þótti öllum gott að fá hann til verks vegna dugnaðar hans og af- kastagetu. Þá var hann oft I essinu sinu og flugu þá af honum brandarar og gaman- yrði, sem lifgaði allt umhverfið. Minnast margir enn þeirra daga er þeir vinnufé- lagarnir, Guðmundur á Kjörvogi og hann, komu á heimilin til hjálpar og starfs. Þá var glatt yfir öllum og störfin gengu með miklum hraða. Þau hjónin, Sigmundur og Sigrún, eignuðust 4 börn, 3 syni og eina dóttur. Þau eru öll afbragðs vel gefin og mann- dóms menn. Þau eru: Sveinn, gjaldkeri prentsmiðjunnar Eddu. Búsettur I Reykjavik. Rúnar, flugvallarstjóri á Akureyri. Guðmundur, kennari i Bolungavik. Elisabet, starfar á Hagstofu Islands i Reykjavik. öll hafa þau aflað sér góðrar menntun- ar. Sveinn lauk námi I Samvinnuskólan- um, en hin systkinin luku öll prófum við Menntaskólann á Akureyri og bræðurnir, Rúnar og Guðmundur, siðan BA prófum. — Fór þar saman dugnaður þeirra sjálfra að koma sér áfram við nám og störf, og metnaður og góður vilji Sigmundar að styðja þau á þeirri braut. Sumarið 1962brugðu þau Sigmundur og Sigrún búi á Melum og fluttust til Akur- eyrar. Þar hefur hann átt heima siðan. Framhald á bls. 15^ Islendinqaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.