Íslendingaþættir Tímans - 25.11.1978, Blaðsíða 7

Íslendingaþættir Tímans - 25.11.1978, Blaðsíða 7
100 ára Jóhanna Sigríður Ólaf sdóttir fyrrum húsfreyja í Breiðholti Allir þekkja þaö hve einstök atvik veröa manni stundum minnisstæö. Greinilega man ég þann dag, þegar ég kom fyrst aö Breiöholti. Þaöeru nærri fjörutiu ár sföan og voru foreldrar minir þá nýfluttir I Kópavog. Býliö Breiöholt blasti viö, I nokkurri fjarlægö þó, enda var ekki þétt- býli i Kópavogi í þá daga, og einn góöan veöurdag fórum viö mæögurnar þangaö I heimsókn þvi móöir min þekkti hjónin sem þar bjuggu, þau Þorleif Jónsson og Jóhönnu ólafsdóttur—-haföi verið kaupa- kona hjá þeim vestur i Dölum mörgum árum áöur. Vel var tekiö á móti okkur I Breiöholti, enda rikti þar hin gamla góöa íslenzka gestrisni, og þótti mér mikiö til þess koma, þegar ég oftsinnis siöar meir kom aö Breiöholti, er fyrir mig, krakkann, voru settir hrokafullir diskar af meölæti — og pönnukökunum hennar Jóhönnu gleymi ég aldrei. Þvi er ég aö rifja þetta upp nú, aö nii er Jóhanna ólafsdóttir oröin hundraö ára. Hún fæddist aö Tjaldbrekku I Hraun- hreppi þann 25. okt. 1878. Foreldrar henn- ar voru Ólafur Eyleifsson, ættaöur Ur Lundareykjadal, og kona hans Jóhanna Steindórsdóttir, ættuö Ur Laxárdal i Döl- um. Tjaldbrekka var viö botn Hitardals og var i byggö frá 1840-90. Siguröur Jónsson, ömmubróöir Jóhönnu, settist þar aö árið 1839 ásamt konu sinni, Hólmfrföi Einars- dóttur, ogkomu þau þar upp átta börnum. Svo afskekkt var býliö, aö 34 klst. lesta- ferö vartil næstu bæja, hvort heldur fariö var til bæja i Hitardal eöa Dalasýslu, og leiöin þar aö auki' seinfarin og torsótt, enda var yfir vegleysur aö fara. Jóhanna ólst upp hjá foreldrum sinum til fermingaraldurs, fyrst aö Tjaldbrekku og siöar aö Syöri-Skógum, en þar bjuggu þau til 1888, en fóru þá I vinnumennsku og síöar húsmennsku. Um tildrög þess, aö foreldrar Jóhönnu hættu búskap segir svo i bókinni „Bóndinn á heiöinni” eftir Guölaug Jónsson: „A þessum árum geröi fjárkláöinn bændum þungar bUsifjar viös vegar á landinu, og bændur á ósýktum svæöum voruf sifelldum ótta um, aö þessi vágestur mundi berja aö dyrum, er minnst varöi. Allir voru þá varnarlausir fyrir þessum ófögnuöi og þekktu engin ráö til lækningar á kláöanum. Loks tóku menn þaö ráö, ef ráö skyldi kaila, aö skera fé- oaöinn niöur, þar sem kláöinn geröi vart viö sig, jafnvel i heilum sveitum. NU bar islendingaþættir svo viö, aö Ólafur á Tjaldbrekku fékk kindur, tvær eöa þrjár, sunnan Ur Lundarreykjadal. Þær voru heilbrigöar, aö þvi er vitaö var, en sögur gengu um fjárkláöa í Borgarfiröi. Sveitungar Ólafs töldufé sitt ósýkt af kláöanum en óttuöust mjög, aö nU, meö þessum aöfluttu kind- um, væri kláöinn fluttur i sveitina. Fóru þeir nU fram á þaö viö Ólaf, aö hann skæri niöur fé sitt. Var hann tregur til, sem von- legt var, þar sem engin sáust merki þess, aö aöfluttu kindurnar væru sjúkar. Þar kom þó um slöir, aö hann lét undan ásókn bændanna, meö þvi aö þeir lofuöu honum fullum bótum I lifandi fé, ef hann léti aö vilja þeirra. En er til kom reyndust efnd- irnar á því allar i molum, og útkoman varö sú, aö Ólafur fékk ekki skaöa sinn bættan, nema aö litlu leyti. Þetta var þungt áfallfyrirfátækan ómagamann. En Ólafur lét samt ekki bugast aö sinni. Svo kom haröindaáriö og fjárfeliirinn 1882 og hjó annaö djúpt skarö I fjárstofninn. Þá gafst ólafur upp viö búskapinn á Tjald- brekku og færöi sig niöur i sveitina aö Syöri-Skógum, sem fyrr segir. En aldrei gat hann samt reist viö fjárhag sinn eftir þetta”. Eftir fermingu var Jóhanna i vinnu- mennskuá ýmsum stööum, siöast i Hitar- dal. Þar kynntist hún Þorleifi Jónssyni, sem ólstþarupp frá þvihann var misseris gamall hjá hjónunum Jóni Hannessyni og Þóru Magnúsdóttur. Foreldrar Þorleifs, Jón Þorsteinsson og Sólveig Bjarnadóttir, fluttust til Ameriku áriö 1886 ásamt börn- um sinum öllum, nema Þorleifi. Þau Þorleifur og Jóhanna hófu búskap I Hitardal áriö 1901, en bjuggu siðan lengst af i Selárdal I Dalasýslu og Höföa i Hnappadalssýslu, unz þau fluttust til Reykjavikur áriö 1934. Þar bjuggu þau fyrstað Vestra-Langholti 1 tvö ár. Þá lauk aldalangri sögu Breiöholts sem bújaröar, en núeru fjölmennustu hverfi Reykjavik- ur risin I landi Breiöholts. Þau Jóhannaog Þorleifur eignuöust niu börn. Tvö misstu þau ung, en sjö komust upp, synirnir Guömundur, Þorkell, Kristján og Jón og dæturnar Sólveig, Jóhanna og Kristin. Eru þau öll á lffi nema Guömundur, sem lézt 8. april 1960. Ennfremur ólu þau upp tvö fósturbörn, Þórarin ólafsson, bróöurson Jóhönnu, og Þorgerði Hönnu Haraldsdóttur. Eftir lát Þorleifs hefur Jóhanna lengst af dvaliö á heimili fósturdóttur sinnar, en siöustu fimm árin hefur hún veriö hjá dóttur sinni, Kristinu. 1 desember s.l. varö hún fyrir þvi slysi aö detta og mjaömagrindarbrotna. Fór hún þá á Landspitalann og þaöan á hjúkrunar- deildina 1 HátUni 10B og þar hefur hún veriö siöan. Enn sem fyrr er gott aö koma til Jóhönnu. Minniö er furöu gott og hún hef- ur frá ýmsu aö segja, enda skeöur margt á langri ævi. Þegarfólker oröiö svo til rúmliggjandi, sjónin ekki meiri en svo aö rétt sér mun dags og nætur og heyrnin farin mjög aö dvina, hljóta dagarnir aö veröa langir, en Jóhanna kvartar ekki. AstUöin og hlýjan, sem umlykur mann, er enn hin sama og manni líður vel hjá henni. Aö lokum vil ég þakka Jóhönnu fyrir gömul og góö kynni og óska þess, aö henni megi liöa sem bezt um ókominn tima. NU dagur þver og nálgast nótt, til náöa sem aö kveöur drótt, ó, faöir ljóss og alls sem er, gef öllum friö og hvild I þér. Steingrimur Thorsteinsson Jóh.Bj. 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.