Íslendingaþættir Tímans - 25.11.1978, Blaðsíða 2

Íslendingaþættir Tímans - 25.11.1978, Blaðsíða 2
Sigurður Ámason frá Stóra-Hrauni Meö rökum má efalaust fullyrBa aB af öllum sjálfsögBum hlutum sé dauBinn I fremstu röB. Tilvist hans er hafin yfir ágreining. Koma hans eBlilegastur hlutur alls sem er, og mikil hamingja aB geta tekiB undir orB Hallgríms: Kom þil sæll þegar þd vilt. Eitt slikt hamingjubarn hvarfokkursjónum nil fyrir fáum dögum, yfir landamærin miklu sem viB öll þokumst í átt til. ÞaB var SigurBur Arnason frá Stóra—Hrauni. Daginn sem hann kvaddi varB stór hópur fólks fátæk- ari en á&ur, og fann um leiB a& einmitt þá var& of seint ab greiBa stóra þakkarskuld sem fyrir löngu var í gjalddaga. SigurBur Arnason fæddist inn i nótt- lausa voraldarveröld júnídagsins áriB 1904. Hann var sonur séra Arna Þórarins- sonar, þess stórmerka og landsfræga gáfumanns og Elisabetar SigurBardóttur, fallegrar konu hans, sem lengi verBur minnst sakir sérkennilegrar og frjórrar kimnigáfu, og sem komst góBu heilli tii skila f börnum hennar og séra Arna, ollum. Þessi húmor var rikur i þeim Skógar- nessystkinum. Nærtækt dæmi þar um er mér Magnús SigurBsson frá Miklaholti, ferskur i hugsun meB stálminni, ungur maBur, 95 ára. SigurBur Arnason sleit sinum barns- og unglingsskóm. aB Stóra—Hrauni, og rætur hans stóBu alla tiB djUpt f hr jóstrugu landslagi KolbeinsstaBahrepps. Þær rætur slitnuBu aldrei, og milli hans og æskustövanna rikti ætiB falslaus vinátta, þeirrar tegundar sem aBeins þróast þar sem báBir aöilar hafa mikiö aö þakka og hvorugur bregst hinum. Samfundir hans viö þessar slóöir og fólk þess voru fleiri og tiöari en ég veit dæmi um viö svipaöar aöstæBur. Umhyggja hans fyrir byggöar- laginu og íbUum þess á sér tæpast hliö- stæöu, og hUn fór ekki i manngreinarálit. NU hefur Siguröur Arnason dregiö vor varhonum veitt Þingeyrarprestakalli i Dýrafiröi og þvi þjónaöi hann siöan. Hann haföi námsdvöl i Bandarfkjunum 1962 og kynnti sér þá kirkjulega sam- félagsaöstoö. Ariö 1966 var hann viö nám i enskukennslu i Sviþjóö. Þetta er sá ferill sem rakinn veröur i handbókum. En margt er þaö fleira sem ástæöa er til aö minnast aö skilnaöi. Röskan aldarfjóröung var sr. Stefán prestur á Þingeyri. Siöari árin átti hann viö vanheilsu aö striöa svo aö hann naut sin engan veginn til fulls. Samt var hann sá atkvæöama&ur, aö áhrifa hans á þróun mála i héraBi gætti svo aö skylt er aö minnast hans þess vegna. Þegar sr. Stefán kom til Þingeyrar 1950 var Eiríkur Þorsteinsson mjög farinn aö beita sér fyrir þvi aö Vestfir&ir kæmust i samband viö akvegakerfi landsins . Hann fékk strax öruggan og ötulan liösmann I þeirri baráttu þar sem sr. Stefán var. Honum voru samgöngumálin hjártans mál. Seinna varð hann forgöngumaöur i flugsamgöngum viö Dýrafjörö. En þó aö hann ynni þar mikiö starf og merkilegt einskoröaði hann sig engan veginn viö samgöngumálin. Hann tók virkan þátt i féiagsmálum sveitar sinnar og héraös. A svi&i félagsmálanna i Þingeyrar- hreppi hygg ég aö hæst beri starf sr. Stefáns aö slysavörnum. Hann var for- maður slysavarnardeildarinnar Vorn á Þingeyri allan þann tima sem hann var þar. Hann vann a aö málum hennar meö óþreytandi árvekni og alúð alla ti"ö enda margt til fyrirmyndar um starf og búnaö 2 deildarinnar. Hann var mikill áhugamað- urum fjarskiptiog fylgdist undra vel með þvi sem bátar og bilar létu frá sér heyra. Hefur enginn mælt þá þjónustu og fyrir- greiðslu sem hann annaðist þar sem áhugamaöur. Sr. Stefán var árum saman i stjórn Kaupfélags Dýrfiröinga. Hann var skóla- nefndarformaður og sýslunefndarmaöur ogáttisæti i fræðsluráöi sýslunnar. Hann var um skeiö i stjórn Prestafélags Vest- fjarða og tiu ár gegndi hann formennsku I skógræktarfélagi sýslunnar. Þetta yfirlit sannar, að Vestfir&ingar hafa margs aö minnast i sambandi við sr. Stefán Eggertsson. Þó er enn ónefnd prestsþjónusta hans, en þar vil ég einkum nefna starf þeirrahjóna aö æskulýðsmál- um, en Guðrún kona hans reyndist Þing- eyri vel i félagsmálum. Mun hún og hafa veriö manni sinum ómetanleg stoð i störfum hans og lifi yfirleitt, svo að aldrei verði greint hver þáttur hennar er i starfi hans, og er þaö raunar ekki annað en þaö sem titt er þar sem vel tekst til um sambúö og hjónaband. Sr. Stefán gekk fast fram I stuðningi viö áhugamál sin. Stundum fannst mönnum að hann legði sig svo fram viö það sem hann vann að hverju sinni aö hann gleymdi flestu ööru á meðan. Skaplyndi hans var þannig, aö honum var engin hálfvelgja eiginleg. Og hann var i hópi þeirra manna sem þaö er gefið aö sjá stundum alls ekki þaö sem mælir gegn óskum þeirra. Nokkrum sinnum var ég næturgestur hjá sr. Stefáni. Þaöan á ég ýmsar ógleymanlegar minningar. Hann haföi yndiaf að ræða viö gesti sina og sat gjarn- an við það langt fram á nóttu. Fjarri fór þvl aðvið værum alltaf sammála. Honum var ekki eiginlegt að fela þaö sem á milli bar eöa sneiða hjá þvi, enda baðst ég ekki undan rökræðum og þrefi. Fylgi sr. Stefáns viö náttúruvernd og landgræðslu leiddi til þess að hann talaði stundum gegn f járbúskap og átti þá til aö kalla sauökindur meindýr. Hann var hispurslaus og hreinskiptin i tali og dró rökréttar ályktanir af þeirriskoðun aö of- beit spilli landkostum. Vist þarf að nytja landið með gát, og þeir sem vara við beit- inni hafa<hlutverkiaö gegnaVandinn er sá aö láta landið batmog nýta það og nytja svo aö þaö gefi meira af sér, þoli meiri og meiri beit. Sr. Stefán var einarður mál- færslumaöur og i viöræðum hugsaöi hann sem málflutningsmaður fremur en dóm- ari. Hann var vel máli farinn, en enda flutti hann ræður oft blaöalaust og talaöi vel og skipulega, en heföi kannski stund- um máttgera skarpari skil á aöalatriöum og hinu þýöingarminna. Sr. Stefán Eggertsson var hollur og trúr þjóðlegri, aldalangri hefð íslenskrar kirkju á þann veg aö hann tók af heilum huga þátt I menningarlifi og félagsmálum samtiöar sinnar utan kirkjuveggjanna. Þegar hann er kvaddur hinstu kveöju mjög fyrir örlög fram aö okkur finnst kveöjum við meö þökkum sérstæöan mann sem okkur þykir gott aö minnast. H.Kr. Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.