Íslendingaþættir Tímans - 23.12.1980, Blaðsíða 4

Íslendingaþættir Tímans - 23.12.1980, Blaðsíða 4
Þorgeir Stefán Jóhannsson Fæddur 25. mars 1932 Dáinn 13. mai 1979 Kallið er komiö komin er nii stundin viðskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna er sefur hér hinn siðasta blund. Þessar ljóðlinur komu i huga minn er ég fregnaði hiö ótimabæra ldt Geira vinar mins 13. þ.m., vinar mins sem sýnt hafði svomikið þrek I veikindum undanfarinna mánaða. Þorgeir Stefán Jóhannsson var fæddur 25. mars 1932 að Tungu i Bakkagerði i Borgarfirði eystra og var þvi nýorðinn 47 ára gamall er hann lést. Foreldrar hans voru Jóhann Helgason bondi að Ósi i Borgarfiröi eystra og Bergrún Arnadóttir kona hans sem látin er fyrir nokkrum ár- um. Þorgeir var einn af 12 börnum þeirra hjóna sem á legg komust, en tvö systkina hansdóu mjög ung. Það má þvi'geta nærri aðstundum hefur verið þröngt i húsinu að Ósi og systkinunum þar þvi lærst ungum að taka til hendi. Þorgeir var aðeins lOára gamall þegar hann var sendur i sveit aö Dratthala- stööum i'Hjaltastaðaþinghá, og var hann þar á sumrum um margra ára skeið við heyvinnu og önnur störf. Þegar aldur leyfði fór hann i brúarvinnu og gekk um tima að allri algengri vinnu sem fáanleg var á þeim árum, enda var Geiri ekki gamall þegar ljóst var að hann var ekki eftirbátur annarra systkina sinna I dugnaði og þreki enda munum við sem vorum svo lánsöm að fá að verða honum samferða lengur eða skemur á lifsleið hans ætið minnast hans fyrir hjálpsemi hans, ósérhlifni og drengskap. Þorgeir lauk prófi frá Miðskóla Stykkis- hólms og 1953 frá Samvinnuskólanum. Hann lagði gjörva hönd á margt á sinni alltof stuttu ævi enda virtist allt leika i höndum hans, jafnt i eldhúsinu sem i bil- skúrnum. Stuttu eftir aö hann útskrifaðist úr Samvinnuskólanum réðst hann sem verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Suður- nesja f Keflavik og gegndí hann þvi starfi um nokkurra ára skeið. Þaðan réðst hann á skrifstofu Skipaútgeröar rikisins hér I Reykjavik og starfaöi þar i fjögur ár. Þá var Þorgeir forstjóri Sælgætisgerðar I nokkur ár og ntí siðast var hann verslunarstjóri i Rafbúð SÍS i Ármúla 3. Árið 1955 kvæntist Þorgeir eftirlifandi konu sinni, Valgerði Magnúsdóttur og 4 eiga þau fjögur mannvænleg börn: Ellert Jón, f. 1.12. 1956, Rögnu Rún f. 16.9. 1957, JóhannBergf. 8.10. l960ogIduGuörúnuf. 11.12.1967. Ég var svo lánsamur aö kynn- ast Vallý og Geira báðum i Samvinnu- skólanum og naut ég hans þá strax i mörgu eins og svo oft siöar á lifsleiðinm enda virtist Geiri vinur minn alltaf vera aflögufær og ekki sist af hlýhug og vin- áttu. Frændrækni var Þorgeiri mjög i blóð borin svo sem þeim systkinum öllum, langt umfram það sem algengt má telja, enda er gestrisni þeirra hjóna þekkt langt út fyrir þeirra nánasta vina- og frænda- hóp. Við hjónin erum svo lánsöm að hafa verið heimilisvinir Vallýar og Geira um margra ára skeið. Þau bjuggu sér fallegt og gott heimili og voru þau hjónin alla tið einstaklega samhent um að láta hinum mörgu gestum sinum, hvort sem voru af yngri eða eldri kynslóðinni, liða vel. Við hjónin vorum einnig svo lánsöm að eyða með þeim sumarfrisdögum okkar nokkr- um sinnum og fyrir þetta allt erum við þakklát. Minningarnar eru huggun okkar i sorginni enda af mörgu góðu að taka,en þess eins að sakna að hafa ekki borið gæfu til að eiga með Geira fleiri samveru- stundir. Vallý min. við hjónin sendum þér og börnunum ykkar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi Guð styrkja ykkur og frændfólkið allt i sorg ykkar og hjálpa ykkur til að horfa fram á veginn. Reimar Charlesson söngkona Fædd 22.október 1910 — Dáin 14,október 1980 Helga Jónsdóttir söngkona á Akureyri fæddist á Húsavlk 22. október 1910. For- eldrar hennar voru Guðný Helgadóttir frá Haganesi i Mývatnssveit og Jón Flóvents- son verslunarmaöur á Húsavik. Þau hjón byggðu sér bæinn Haganes við Búðarána á Húsavlk og þar ólst Helga upp og f jögur systkini hennar og fóstbróðir að auki. Sem ung stúlka stundaði Helga versl- unarstörf á Akureyri og notaði þá einmg timann til að læra söng hjá Benedikt Elvar. Siöan fór hún I Samvinnuskólann I Reykjavik og þar naut hún samtimis til- sagnar Sigurðar Birkis fyrsta söngmálá' stjóra þjóðkirkjunnar, i söng. islendingaþaettir Helga Jónsdóttir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.