Íslendingaþættir Tímans - 23.12.1980, Qupperneq 6
Anna Eiríksdóttir
Meö upphafi þéttbýlis á Selfossi viö
ölfusárbrú var brotiö blaö i byggöaþróun
á Islandi. Þetta var fyrsta þéttbýli inni i
landi, fjarri sjó.
Fram aö þeim tima haföi öll þéttbýlis-
myndun veriö á ströndinni, en meö
upphafi Selfoss, rétt fyrir 1930, voru þar
fjögur hils, ef ég man rétt. Nú eru ibúar
þar á fjöröa þúsund.
Lengibýr aö fyrstu gerö. Þaö var mikiö
lán fyrir Selfossbyggö hve frumbyggjarn-
ir þar voru mikiö afreksfólk. Einn af
fyrstu landnemunum þar sem á mörgum
sviöum stóö I forustu og setti sinn svip á
staöinn var Anna Eiriksdóttir i Fagur-
geröi, en hún lést nýlega (22. september)
og langar mig til aö minnast hennar meö
nokkrum oröum.
Anna Eirlksdóttir yar fædd aö Sand-
haugum f Báröardal i Suöur-Þingeyjar-
sýslu 28. mars 1904. Foreldrar hennar
voru Eirikur Sigurösson bóndi á Sand-,
haugum og kona hans Guörún Jónsdóttir
frá Jarlsstööum i sömu sveit.
Anna ólst upp í glööum systkinahópi en
þau systkinin voru sex.
A Sandhaugum var mikiö músiklif, eftir
þvl sem þá geröist. A heimilinu var orgel
og Guörún móöir önnu, sem var mjög
músikölsk, kenndi börnum sinum á orgel-
iö, en hjá önnu komu músikhæfileikar
fljótt I ljós, og vik ég aö þvi slöar.
Sautján ára gömul hleypti Anna
heimdraganum og fór suöur á land, en
margt af frændfólki hennar var þá flutt
suöur. Hún var nokkuö hjá Unni i Holti I
Flóa, móöursystur sinni, og aö minnsta
kosti eitt sumar hjá Sturlu móöurbróöur
slnum á Fljótshólum.
Þar næst lá leiö hennar til Kaupmanna-
hafnar, en þar bjó fööursystir hennar,
Björg Dahlman, og var hún að nokkru i
skjóli hennar meöan hún dvaldi i Höfn.
1 Kaupmannahöfn stundaöi Anna nám
viö handavinnuskóla, og þaö meö svo
góöum árangri aö hún fékk verölaun er
hún útskrifaðist þaöan.
Aönámi loknulá leiöinheim aftur og 30.
október 1925 veröa timamót i lifi hennar,
en þá giftist hún Birni Sigurbjarnarsyni.
Hann varÞingeyingur, fæddur I Hringveri
á Tjörnesi 8. mai 1891. Hann var mikill
persónuleiki og brá stórum svip /á
umhverfi sitt.
Þau Anna og Björn settust aö á Selfossi,
fyrst I gamla Landsbankahúsinu en Björn
var gjaldkeri útibúsins og gegndi þvi
starfi meöan kraftar entust.
Arið 1934 byggöu bau sér stórt og fallegt
6
einbýlishús á einum fegursta staö á Sel-
fossi á bakka Olfusár og nefndu Fagur-
geröi, sem var gamalt örnefni. Hvergi
finnst mér ölfusá jafn falleg og frá
Fagurgerði. Fallegt er að líta upp eftir
henni þar sem hún liöast um hvanngræna
hdlma.
Anna og Björn eignuöust 6 börn og eru
fimm á llfi. Þau eru Aldis, gift Óskari
Sigurðssyni kennara, búsett á Selfossi,
Björn var giftur Guörúnu Hafliöadóttur
sem lést fyrir fjórum árum. Hann býr I
Reykjavik og er vélstjóri. Sturla
húsamálari, giftur Lóu Ingileifsdóttur,
býr á Selfossi, Baldur mjólkurfræöingur,
giftur Gunndlsi Siguröardóttur, býr á
Selfossi, Anna Guörún, gift Heröi Sigur-
grlmssyni bónda i Holti i Stokkseyrar-
hreppi. Einn dreng er Valtýr hét misstu
þau i æsku. Var þá þungur harmur
kveöinn aö f jölskyldunni I Fagurgeröi þvl
aö Valtýr var glæsilegt ungmenni.
Eins og áöur er sagt kom brátt I ljós aö
Anna haföi gott músikeyra, og þótt hún
væri aö mestu sjálflærð kom þessi hæfi-
leiki hennar brátt i góðar þarfir á Selfossi-
Hún stofnaöi kirkjukór og geröist
organisti hans, fyrst viö Laugardæla-
kirkju og siöan viö Selfosskirkju eftir að
hún var reist. Eins og vænta mátti þráöi
Anna aö afla sér meiri menntunar á þessu
sviöiog lagöi hún i þaö þrekvirki aö sækja
einkatima til Reykjavikur hjá snillingn-
um Róbert Abraham, en það var vissu-
lega þrekvirki eins og ferðum var þá hátt-
aö en konan sex barna móöir.
Eins og sjá má af þessu geröist Anna
brautryðjandi á Selfossi hvaö sönglif
varöaöi og býr staöurinn aö starfi hennar,
þvi Selfoss stendur nú framarlega hvaö
sönglif og söngmennt snertir. 1 fótspor
ötulla brautryöjenda kemur jafnan nóg af
góöum mönnum.
A ööru sviöi stóö Anna i fremstu fylk-
ingu landnemanna á Selfossi. Þaö var á
sviöi blóma- og trjáræktar. Fagurgeröi
átti stóra lóðog þar var plantað trjám svo
aö þar er nú einn af fegurstu göröum i A-
nessýslu. 1 ræktunarmálunum naut Anna
ötuls stuönings bónda sins. Björn andaðist
3. mars 1969.
Eftir lát manns sins tók Anna viö sum-
um trúnaöarstörfum hans, var umboös-
maöur Happdrættis Háskólans og Bruna-
bótafélags Islands. Þau störf annaöist hún
meöan heilsan entist.
Anna var viösýn kona og vel lesin. Hún
hugsaöi mikiö um eiliföarmálin og var
ötull liösmaöur Sálarrannsóknafélagsins,
þar sem henni dugöi ekki þaö sem stendur
I gömlum bókum um þau mál.
Viö sem þekktum önnu i Fagurgeröi
söknum hennar sem góös vinar en um leiö
þökkum viö fyrir aö hafa notiö þeirrar
gæu aö veröa henni samferða á lifs'
leiöinni. Blessuö sé minning hennar.
GeslurSturluson.
Islendingaþaettif