Íslendingaþættir Tímans - 23.12.1980, Síða 7
Geir Jón Ásgeirsson
Fæddur 8. júnl 1929.
— Dáinn 3. nóvember 1980.
Deyr fé,
deyja frændr,
deyr sjalfr it sama,
en orðstlrr
deyr aldregi
hveim, er sér góöan getr.
Þessar hendingar úr Hávamálum komu
mér I hug morguninn sem ég frétti lát
vinar mlns, Geirs Jóns Asgeirssonar, er'
svo skyndilega var burt kvaddur úr
þessum heimi. Við erum alltaf vanbúin
slikum tlðindum og svo var um mig að
þessusinni. Nokkrum dögum áður kvaddi
hann mig hér heima og datt þá engum I
hug að þetta væri I slöasta sinn sem viö
sæjum hann. En huggun er aö hver sem
getur sér góðan. orðstlr, lifir I hugum
okkar þótt hann deyi. Minningin um góð-
an dreng er ógleymanleg. Við eigum erfitt
meö aö sætta okkur við að fólk á besta'
aldrihverfi okkur um sinn, en við verðum
nö taka þvi eins og öðru sem að höndum
ber, þannig er lífiö.
Geir var maður I hærra lagi friður sýn-
Um, iturvaxinn og höföinglegur á að Hta
Svo að hann hvarf ekki f margmenni.
Hann var kurteis I allri framkomu,
gæddur fjölþættri greind og margfróður,
ekki sist um lsland og náttúru þess, hafði
enda ferðast vítt um byggðir landsins sem
dhygðir. Atorkumaður mikill, harðgerður
°g ókvartsár, sem I engu mátti vamm sitt
vita. Hann var höfðingi I lund, veitull á
s*nu himili sem utan þess. Haföi gaman
af smástrlðni og átti þægilegt með að
svara fyrir sig ef þvi var aö skipta. —
. annig var Geir, og svo lifir hans minn-
'ng 1 minum huga og minna barna.
Geir var mikill náttúruunnandi og hafði
n«man skilning á landinu og gæðum þess.
afnframt var hann I eðli sinu mikill
Veiöimaöur, en I þvi sem öðru drengur
góöur.
Minnisstæö er mér ein fyrsta feröin sem
S fór meö honum á silungsveiðar. Siðla
völds eftir erfiðan dag komum við aö
vlnavatni og ákváðum að renna. Ég var
aufi, byrjandi, og kastaði stutt. Sagði
kann þó við mig: „Drag þú, ég skal
?.. a”. Silungur var óöur og fengum við á
ommum tlma I rökkrinu mjög góða
veiöi.
hvS-*?. 2n ára skeið kom hann hingað á
rJu hausti til rjúpnaveiða, og ætfð
é ma dag, 14. oktober. Margar ferðir fór
gSmeðhonum ogalltaf mér til óblandinn-
vo veiöin gengi misjafnlega
ru feröir og samræöur ógleymanlegar.
Is|endingaþættír
Geir Jón var fæddur I Reykjavík 8. juni
1929, sonur Onnu Geirsdóttur frá Múla I
Biskupstungum, af Bergsætt, og Asgeirs
L. ráðunauts Jónssonar Asgeirssonar
alþingismanns frá Þingeyrum. Að honum
stóðu þvi sterkir stofnar i báðar ættir.
Móður sína missti hann er hann var á
fjórða ári og dvaldi hann eftir það öðrum
þræði hér I Holti hjá fööursysturinni
Fannýju Jónsdóttur og manni hennar Jó-
hanni Guömundssyni. Asgeir faöir hans
kvæntist I annaö sinn, og nú Ágústu
Vigfúsdóttur frá Flögu I Skaftartungu,
skörungskonu. Hjá þessu fólki ólst Geir
upp, á sumrum fyrir noröan, á veturna
fyrir sunnan.
Eftir fermingu stundaöi hann nám við
Menntaskólann á Akureyri og lauk þaðan
gagnfræðaprófi. Lengri var skólagangan
ekki, enda erfið fáætkum nemanda, en
námsgáfur skorti eigi.
Á unglingsárun vann hann með föður
sinum viö landmælingar vlða um land og
kynntist hann á landi og þjóö. Hefur það
efalaust orðið honum góðum skóli. 1 mörg
ár vann Geir hjá Olluversun Islands
(BP), fyrst sem bilstjóri, slðar sem verk-
stjóri. Þaöan lá leiöin til Breiðholts hf þar
sem hann var verkstjóri viö steypustöö
um árabll. Einnig annaðist hann verk
stjórn hjá Armannsfelli h.f. um skeið.
Fyrr á árum stundaði Geir ökukennslu
sem aukastarf og nú siðustu mánuöina
var hún aðalstarfið.
Arið 1952 kvæntist Geir eftirlifandi
konu sinni, Astu Guömundsdóttur frá
Kambi I Flóa, mannkostakonu af Vlkings-
lækjarætt, sem skapaði þeim jafnan
fagurt heimili. Eignalaus byrjuöu þau
hjón búskap I ieiguibúð en keyptu’slöan
ibúð aö Kleppsvegi 34 þar sem þau bjuggu
I mörg ár. Fyrir fáum árum reistu þau
svo fagurt hús að Vesturvangi 42 I
Hafnarfirði.
Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið
og þaueru: Anna fædd 19. nóvember 1951,
stúdent i læknadeild Háskóla tslands, Sig-
urbjörg fædd 29. aprll 1953, hjúkrunar-
kona og búfræðingur, Guðmundur Asgeir
fæddur 13. september 1956, framreiðslu-
maöur á Hótel Sögu, og Helga fædd 5.
mars 1964 en hún lauk 9. bekk frá Kvenna-
skólanum I Reykjavlk s.l. vor.
Geir var jarösettur frá Fossvogskapellu
miðvkudaginn 12. nóvember aö viöstöddu
fjölmenni.
Um leiö og ég votta konu hans og
börnum samúð mlna og minnar fjölskyldu
óska ég þeim allrar blessunar á ókomnum
árum.
Guðmundur B. Þorsteinsson.
Ekki eru birtar greinar
sem eru skrifaðar fyrir
önnur blöð en Tímann
Látið myndir af þeim
sem skrifað er inn
fylgja greinunum