Íslendingaþættir Tímans - 07.03.1981, Blaðsíða 2

Íslendingaþættir Tímans - 07.03.1981, Blaðsíða 2
Steinþór O Fyrstu spurnir, er ég hafði af Steinþóri, voru frá Hallgrimi Kristinssyni, forstjóra Sambands isl. samvinnufélaga. Hann heimsótti flest kaupfélögin sumarið 1921. Mörg félaganna voru þá nýstofnuð og voru að hefja starf. Þá var skollin á mikil fjárhagskreppa að lokinni fyrri heims- styrjöldinni, sem kunnugt er, og mörg félaganna komin i Sambandið, sem taldi sig eiga skyldum að gegna við þau sem vænta mátti. Meðal þeirra félaga, sem Hallgrimur heimsótti þá, var kaupfélag Austur-Skaftfellinga, er þá hafði starfað i eitt ár rúmlega. Þar komu til fjárhags- vandræði og ráðning kaupfélagsstjóra, þvi að sá sem gegndi þvi starfi hafði sagt þvi upp. Hallgrimur var á fundi meö félagsstjórninni i þessum erindum. Hon- um féll vel við stjórnarmenn alla, en hon- um fannst þó einn sérstaklega eftirtektar- verður sökum þess, hversu hann var greiður i svörum um hvert fundarefni, og hafði jafnan á takteinum rik rök fyrir máli sinu en væri þó yngstur fundar- manna. Þessistjórnarmaður var Steinþór Þórðarson á Hala og væri bróðir Þór- bergs, er þá var orðinn nokkuð kunnur hér i Reykjavik. Honum hafði ég kynnst litils- háttar, helsti fyrirlestrartimum hjá Birni M. ólsen háskólarektor og Jóni Aðils dó- sent, en ég hafði stundum sótt kennslu- stundir hjá þeim, er ég var nemandi i Verzlunarskóla Islands 1913-14. Fram úr þessum málum réðist svo, að forstaða kaupfélags Austur-Skaftfellinga var falin mér, frá ársbyrjun 1922, átti ég þvi fyrir höndum að kynnast Steinþóri nokkru nánar. Hafði ég ætið mikið saman við hann að sælda, bæði meðan fjárhags- erfiöleikarnir voru mestir og miður ánægjulegir og einnig eftir að hagurinn batnaði og fært reyndist að snúa sér aö öðru en getuleysi og vantrú á framtiðina. Steinþór var ætið hinn glöggskyggni og velviljaði stjórnarmaður, sem alltaf var gott að leita til um úrræði, hvort sem var um ánægjuleg efni að ræða eða önnur þyngri. Stjórn félagsins var öll samhent og vann af heilindum, kaupfélaginu til hags og velfarnaðar öllum ibúum félags- svæðisins. Steinþór var æfina út, sami trausti sam- vinnumaðurinn. Ég hítti hann nokkrum ' Af marggefnu tilefni skai það ítrekað/ að í íslendinga- þætti Tímans eru ekki tekn- ar greinar upp úr öðrum blöðum. Birtar erugreinar sem komið hafa í Tímanum á útfararc(egi viðkomandi. Afmælisgreinar éru ekki «ndurbirtar. 1 sinnum, er hann var á ferð hér i Reykja- vik, og kom til hans heim á Hala og naut gestrisni hans og skemmtunar. Ég færi honum bestu þakkir fyrir alla vinsemd hansog traust mér til handa. Ég votta konu hans og börnum fyllstu samúð svo og tengda- og barnabörnum og öðrum ástvinum, og bið þeim öllum framtiðar- heilla. Jóntvarsson. + Það eitt er víst að allir verðum vér brottkallaðir af þessu jarðsviði, jafnvel sumir f blóma lifsins, aðrir I hárri elli. Samt er erfitt að sjá á bak hærugráum hal, slíkum sem Steinþóri Þórðarsyni á Hala. Svo samgróinn var hann umhverf- inu i Suðursveit og Halabænum, að hvort- tveggja fær aðra og fölari mynd þegar hann er ekki lengur innan þessa ramraa. Þvl fór mér f þessu efni þannig, að ég einhvern veginn hugsaöi aldrei um það aö þessi aldna kempa hyrfi á braut og ekki væri lengur hægt að eiga við hann oröa- ræður, sér til ómetanlegrar ánægju og fr- oðleiks. Lögmálið stendur og Steinþór Þóröar- son bdndi, félagsmálakempa, frásagnar- snillingur og sfðast en ekki síst, óvenju- hlýr maður, er horfinn vinum og sam- ferðamönnum. A langri æfi eöa liðlega 88 ár, starfaði Steinþór á Hala á sviði allra félags- og menningarmála jafnt f Suöursveitsem og i sýslufélaginu sem heild. Hann sparaði sig hvergi, var hiö minnsta i stjórn félaga i 20 ár og allt að 52 en þann tima sat hann f stjórn Kaupfélags Austur-Skaftfellinga. Slfkt er áreiöanlega algjört einsdæmi á landinu. Þar sem þessi störf eru flestum vel kunn ætla ég ekki aö tfunda þau frekar hér. Steinþór var á vettvangi þessara mála allra, afburða liðsmaöur, svo tjá mér þeir sem gerst þekktu. Fram á sfðasta ár var hann brennandi af áhuga á málefnum sýslunnar, fylgdist með öllu og ræddi málin. Það var lær- dómsrfkt að heyra hann tala að aöalfund- um kaupfélagsins, þar var hugsjóna- maður, eldhugi sem hafði hugmyndir og ákveðnar skoðanir, og það f takt við tfm- ann. Steinþór staðnaöi aldrei. Hann skildi nútfð, vildi halda I þaö besta úr fortfð, en ávallt var þó hugurinn við það hvernig þessir þættir yröu þannig ofnir saman aö framtiðin mætti færa fólkinu heill og hamingju. Það færi betur að fleiri geymdu samvinnuhugsjónina svo tæra og óbrenglaða eins og Steinþóri á Hala veitt- ist auðvelt I 60—70 ár, grunntónninn er nefnilega enn óbreyttur. Ég kynntist ^teinþóri ekki fyrr en ég settist að héi i sýslu fyrir liðlega 7 árum. Ég er afar þakklátur fyrir þau kynni. Mér fannst hátfölegt að ganga i stofu á Hala og setjast á tal við heimilisfólk. Það eru góðir straumar f þeim húsum og sam- band til ýmissa sviöa, þó jarðsviðiö sé nú raunar hvaö mest notað. Þau ágætu hjón Ingibjörg Zophóniasdóttir og Torfi Stein- þórsson hafa búsforráð en i þeirra skjóli voru þau hjón Steinþór heitinn og kona hans Steinunn Guömundsdóttir, sem lifir mann sinn í hárri elli. Börn voru og eru mörg á Hala, þarna lifðu og störfuðu saman kynslóðir, 4 ætt- liðir, ýmist f sambýli eða nábýli. 1 þessu samfélagi var Steinþór á Hala ættarhöfðinginn, að verðleikum metinn og miðlaði af fróöleik og hjartahlýjan streymdi til allra, ekki aðeins hans nán- ustu, heldur einnig til gests og gangandi- Engan mann hef ég fyrirhitt sem hafði slfkt firna minni og kunni svo vel frá aö segja, að list varð, sem Steinþór Þórðar- son á Hala. Þegar ráöist var i útgáfu timaritsins „Skaftfellings” 1978 datt mér enginn fýi‘r i hug er ég sem ritstjóri fór að hugsa um efnisaðföng. Gerði ég gamla manninum orð að senda nú greinarkorn I heftið eftir eigin efnisvali. Innan mánaðar barst mér þykkt bréf og Ur þvi kom handrit 51 síöa, ritað styrkri hendi og ekki að merkja að höfundur væri 86 ára. Grein Steinþórs bar heitið „Sjósókn I Suöursveit”. 37 prent- aöar sfður af stórmerkum fróðleik er þannig margt bjargaðist frá glötun, allt skýrt og vei framsett. Steinþór talaði og ritaði óvenju gott mál, var skýrmæltur og kjarnyrtur f besta lagi. Þann 6. jUnf 1980 hitti ég Steinþór á Hala sföastí mannfagnaði, þegar byggðasafnið hér í sýslu var opnaö. Hann var málhress og hugsunin skýr, en sjáanlega var nú likamlega þrekiö byrjað aö bila. Þó flutti Steinþór samkvæminu ávarp og var það vel og skörulega framsett, svo sem ávallt hafði verið hans háttur. Nú kvaddi hann fólk og kvaðst trúlega ekki oftar stfga inn fyrir þröskuldinn á „GömlubUð”, og sU varð raunin. Ég leit við á Landspftalanum I Reykja- vfk 7. desember s.l., en þar lá Steinþór og beið aögerðar, sem ekki var fært að fram- kvæma. Hann var enn bærilega styrkur i andanum, spurði um aflabrögö linubát- anna og hafði áhyggjur að tfðarfari heima fyrir, sem hann fylgdist vel með. Viö ræddum um hugsanlega heimferö fyr>r jól. SU ferð var farin, þó eigi alla leið að Hala, heldur kom Steinþór á Elli- °8 hjúkrunarheimilið á Höfn og virtist hress- ast verulega þar, tók gleði sina allvel aftur. Þrekiö var á þrotum og sjUkleikinn sigraði. Steinþór Þóröarson frá Hala lést 20. þ.m. Vfsdómur, jákvætt lífsviðhorf, sem m.a. var fólgið í prUöu og hlýju viömóti. mun koma f hugann þegar minnst er Steinþórs á Hala. Björt veröur ávalli minningin um sterkan persónuleika. _ Ég votta öllum ættingjum samúð mína- Höfn I Hornafirö' 27. janUar 1981 Friöjón Guðrööarson Islendingaþaettii”

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.