Íslendingaþættir Tímans - 04.11.1981, Blaðsíða 8
Svanhildur Þórðardóttir
frá Votmúla
Fædd 3. nóv. 1897.
Dáin 13. okt. 1981.
Svanhildur Þóröardóttir lést i Landa-
kotsspitala þann 13. október s.l. eftir
stutta sjúkdómslegu.
Svanhildur var fædd 3. nóv. 1897 i Vot-
míila i Sandvikurhreppi, dóttir hjónanna
önnu Lafranzdóttur og Þóröar Þormóös-
sonar og ólst þar upp i stórum systkina-
hópi. Þvi næst lá leiöin til Reykjavfkur
þar sem hún átti langan starfsdag. Góð
vinkona er fallin frá og hugurinn fyllist
hryggö og sárum söknuöi.
Það var árið 1964 sem leiðir okkar
Svanhildar lágu fyrst saman er við urö-
um nágrannakonur aö Háaleitisbraut 115,
en um þetta leyti uröu þau timamót i ævi
Svanhildar aö hún hætti störfum utan
heimilis. Þá tókust. góö kynni milli fjöl-
skyldna okkar sem haldisthafa æ siðan og
aldrei borið skugga á.
Góöir nágrannar verða aldrei oflofaðir
og þá ekki sist fyrir smáfólk sem er aö
vaxa Ur grasi og þurfa gjarnan á þölin-
mæði og uppörvun hinna fullorðnu að
halda. Það var oft notalegt fyrir litinn at-
Halldóra Bæringsdóttir
Halldóra Bæringsdóttir var mjög starf-
söm og myndarleg húsmóðir, sem lét sér
mjöganntum velferð og hagbarna sinna.
Bæði voru þau hjónin veitul og gestrisin
og voru margir sem nutu þess.
Að félagsmálum vann Halldóra árum
samanog lá ekki á liði sinu i þeim efnum-
Má þar t.d. nefna að hún átti lengi sæti i
Barnaverndarnefnd Isafjarðar og var þar
mjög virk og starfsöm. Hún var lengi >
kvenfélaginu Ösk á ísafirði. Var Halldóra
mjög áhugasöm i starfi hjá báðum þess-
um félögum. Nokkur siðustu árin vann
hún áVefstofu Guðrúnar Vigfúsdóttur hér
i bænum og þótti þar sem annars staðar
vel liðtæk.
Jarðarför Halldóru var gerð frá isa-
fjarðarkirkju laugardaginn 25. júli s.l. að
viðstöddu fjölmenni.
Ég og kona min vottum Agústi, börnum
þeirra hjónanna og fjölskyldum þeirra
einlæga samúð.
Jón A. Jóhannsson.
Islendingaþættir
Halldóra Bæringsdóttir, Fjarðarstræti
11 isafirði, andaðist i Landspitalanum i
Reykjavik 15. júli s.l. Hún var fædd að
Dynjanda i Jökulfjörðum Norður-isa-
fjarðarsýslu 26. nóvember 1912. Foreldrar
hennar voru hjónin Vagnfriður Vagns-
dóttir og Bæring Einarsson, er þá bjuggu
á Dynjanda. Auk Halldóru áttu þau
Vagnfriður og Bæring eftirtalin börn:
Einar, sem á heima á Seltjarnarnesi,
Ólinu, sem býr i Reykjavik og Soffiu, sem
er látin. öll voru þau systkinin dugmikil
og vel gefin.
Þann 28. nóvember giftist Halldóra
eftirlifandi eiginmanni sinum Agústi
Guðmundssyni, húsasmiöameistara á
Isafirði. Attu þau siðan alla tið heima i
húsinu Fjarðarstræti 11 á Isafirði. Þau
eignuðust fimm börn, þrjá syni og tvær
dætur: Guðmund, Fylki, Agúst Inga,
Grétu og Frlðu. Bræðurnir eiga allir
heima á Isafiröi ásamt fjölskyldum sin-
um, en systurnar eiga heima i Reykjavik.
öll eru þau systkinin mætir borgarar, vel
gefin og dugmikil.
a
r
v____________________________________J
orkusaman snáða að bregða sér frá leik
inn til Svönu og ylja sér og hressa og ekki
var hætta á að hún settifyrir sig þótt bux-
urnar væru ekki alltaf tárhreinar. Þær
hjálpsemin og greiðviknin voru svo rikir
þættir i fari Svanhildar. Fyrir alla þá
hlýju og vinsemd sem ég varö aðnjótandi
á heimili Svanhildar mun ég ævinlega
verða þakklát.
Svanhildur var hávaxin og tigurleg i fasi
og framgöngu framgöngu og vönduö til1
orös og æöis. Ætið mun ég minnast þess
hve glæsileg hún var I islenska búningn-
um. Hún var mikil hannyröakona og
kunni þvi illa að sitja auðum höndum. Ef
hún ekki var einhversstaðar að hjálpa
öðrum þá notaði hún gjarnan stundirnar
sem gáfust til handavinnu. Liggja eftir
hana mörg Utsaumsverk af ýmsum
gerðum sem prýða heimilið að Háaleitis-
braut 115. Einnig hafði hún ánægju af
lestri góðra bóka sem hUn valdi af kost-
gæfni enda fróð um menn og málefni.
Það er gæfa aö hafa notiö samfylgdar
þessarar ágætu konu, notiö vináttu
hennar og tryggöar um árabil. Ég sendi
dóttur hennar, Svövu og dóttursyninum
MagnUsi minar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Bless uö sé minning Svanhildar Þórðar-
dóttur.
Ingibjörg Eyþórsdóttir.