Íslendingaþættir Tímans - 30.12.1981, Blaðsíða 1

Íslendingaþættir Tímans - 30.12.1981, Blaðsíða 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR Miðvikudagur 30. desember 1981 - 49. tbl. TIMANS Sigurður Hannesson Stóru-Sandvík Föstudaginn 11. desember varð bráð- kvaddur á heimili sinu Sigurður Hannes- son, bóndi i Stóru-Sandvik. Otför hans verður gerð frá Stokkseyrarkirkju i dag, laugardaginn 19. desember. Vil ég minnast þessa vinar mins og granna hér i fáeinum orðum. Sigurður Hannesson fæddist i Storu- Sandvik 4. april 1916, sonur sæiridarhjón- anna Sigriðar Kristinar Jóhannsdóttur frá Stokkseyri og Hannesar Magnússonar bónda i Stóru-Sandvik. Sigriður var af Bergsætt en ættmenni hennar mörg bjuggu á Vestri-Loftsstöðum. Föðurætt hennar sat Stokkseyrarjörðina langan aldur en upphaf hennar hér á landi var danskur kaupmaður við Eyrarbakka- verslun, Diðrik Petersen að nafni. Föður- ætt Sigriðar var Ur Sandvikurhreppi langt aftur, svonefnd Kaldaðarnesætt elsta, frá Alfi Jónssyni presti þar 1636-1671. Sigurðurólst upp með foreldrum sinum ifjölmennum systkinahópi. Urðu þau alls 12 er upp komust en tvö dóu i frum- bernsku. Foreldrarnir voru harðduglegir og komu þessum mikla barnahópi upp af eigin rammleik, en Hannes varð ekki gamall maður, lést Ur lungnabólgu aðeins 56 ára og mun ósérhlifni hans hafa þar valdið nokkru um. Sigriður varð háöldr- uð.iést 1959,86ára, og varern og hress til hinsta dags. Sigurður hleypti ungur heimdrag- anum, fór þá hvað eftir annað til sjós og mun hafa stundað nám við Iþróttaskóla Sigurðar Greipssonar i Haukadal. Þess á milli var hann öllum stundum heima, hann var bóndi að eðlisfari og naut þá best þeirra stunda er hann gat unnið að bU- verkum með systkinum sinum og skyldu- liði. En slikan „munað” gat svo stór systkinahópur ekki leyft sér i einu. Þvi fóru tvéir bræðranna alfarið að heiman til rafvirkjanáms og fjórar systranna giftust burtu. Svo var komið i upphafi striðs að ein- hverjir fleiri Ur systkinahópnum voru ferðbUnir frá Sandvik, en hersetan i Kald- aðarnesi breytti miklu. Bræðurnir fengu þar nokkurra ára örugga vinnu eins og hver þeirra vildi hafa en brátt brugðu þeir á betra ráð. I stað þess að fara morgun hvern i vinnu sina við Kaldaðarnesflug- völl og þiggja þar öruggan mála hag- kvæmdistþeim að stofna vikuriðju heima við túnfótinn, selja setuliðinu vikurplötur og holsteina-láta herinn beinlinis leita heim til þeirra eftir vinnunni. I striðslok hafði vikuriðjan haslað sér völl hjá islenskum byggingarmönnum, og Ur þvi var vegur hennar greiður uns plastöld var skollin á. Þarna lá Sigurður ekki á liði sinu. Mér er til efs að þau afreksverk hefðu verið unnin i Stóru-Sandvik, sem þar má sjá, ef þeir Sigurður og Jóhann hefðu ekki gefið sig alla að vikursteypunni á bestu árum ævi sinnar. BUskapurinn hvildi meira á herðum hinna bræðranna, Ara og Páls og ögmundar. Hægt og bitandi juku þó allir bræðurnir við bústofn sinn uns vel var orðið lifvænlegt á búskapnum einum. Þá kom vel igrunduð gulrófnarækt i stað vikuriðjunnar, og gekk það dæmi svo upp að þeir Stóru-Sandvikurbræður voru orðnir stærstu gulrófnaframleiðendur á landi hér. Hart lögðu þeir þá að sér á haustin og á seinni árum juku þeir mjög kartöfluræktina og vélvæddu. Sagði Sig- urður mér svo siðast i haust að ekki treysti hann sér betur til annars en lifa eingöngu á garðrækt. Þetta er ytri umgerðin um lif Sigurðar Hannessonar, i Stóru-Sandvik. En hvernig var hans innri maður? Hver var hann annars, þessi vinnuvikingur, sem jafnan sást i hópi bræðra sinna, glaður og reifur? Skar hann sig annars nokkuð Ur? JU, það gerði hann svo sannarlega. Hann átti sitt svipmót, opið og hýrt og persónan mun mér aldrei gleymast. Sigurður var meðalmaöur að vexti, skarpleitur og ákveðinn á svip, en ekki hörkulegur. Hann laðaði menn að sér hvar sem hann fór i lif- inu, spaugari, léttur á velli og sá léttleiki — og snarpleiki- einkenndu öll hans vinnubrögð. Skapmaðurv gat hann sem betur fer verið — þó ég reyndi hann aldrei þannig sjálfur- en fljótari mann vissi ég ekki til sátta og þá rikti sanngirnin án þess hann gæfi neitt eftir af einurð sinni. Ég held að hann hafi ekki átt sér óvin. Sigurður Hannesson sóttist ekki eftir mannaforráðum, öðru nær. Hann sat i hreppsnefnd Sandvikurhrepps 1947-1954 er hann sagði þvi starfi af sér. I stjórn Nautgriparæktarfélags Sandvikurhrepps var hann lengi- til dauðadags og formaður 1967-1974. Hann reyndist með afbrigðum slyngur að meðhöndla kýr og átti miklar afurðaskepnur. Stundum fannst mér þó eins og sauðfjárræktin stæði honum nær, a.m.k. var hann höfuð bræðra sinna á þeim vettvangi. En Sandvikurhreppur hefur ekki orðið kunnastur fyrir sauðfjár- haga og þvi gaf sauðfjárræktin Sigurði þokkalegar aukatekjur meðan hagur hans blómstraöi i kúabúskap og garðrækt. Þótt hér sé fyrr sagt að Sigurður hafi látið sér hægt i forystustörfum má ekki manninn marka af þvi. Hann var ódeigur félagsmálamaður, einn þeirra sem aldrei

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.