Íslendingaþættir Tímans - 21.07.1982, Page 7
varpsins og Hreinn lögfræðingur Akureyrarbæj-
En af einhverjum ástæðum stóð samlíf þeirra
hjóna skamman tíma og Hulda hélt á brott frá
Sörlastöðum, en Páll vann sem áður við
^úskapinn heima - og jafnan síðan. Þótti mér sem
J?ak við létta góðvild þessa kunningja míns'mætti
finna trega þungra örlaga.
Páll var félagslega þroskaður og var kvaddur til
°Pinberra starfa heima i sveitinni, en um langvegu
Var að sækja og því erfitt um, þótt áhuginn væri
fynr hendi. Fyrir rúmlega aldarfjórðungi lést
Guðrún húsfreyja á Sörlastöðum og þá yfirgaf
Pólkið staðinn. Eg hef enga þekkt sem flutt hafa
fiú sinum heimalöndum með meiri þunga en
Ulafur Pálsson og börn hans, þau Páll og Jórunn,
P“ er þau fluttu bústað sinn í þéttbýlið vestan við
Pollinn.
Þau systkinin áttu sér iúmgóðan og fagurlega
Serðan bústað á Ytribrekkunni á Akureyri. Páll
Vann lengi í iðnaði norður við Glerá. Par handlék
nann dag hvern kindagærur. Þá mun hugurinn
mjög hafa sótt til liðinna daga í fjárleitum suður
oni Timburvalladal. Þar i fjölmenninu var Páll
kvaddur til trúnaðarstarfa - enda átti hann hvers
manns traust - þeirra er honum kynntust. Eitt var
^fkenni um gáfur Páls Ólafssonar, það var tölvísi
nans. Allflókin reikningsdæmi voru gjarnan lögð
yrir hann - hugurinn vann hratt, og hann svaraði
^sstum af bragði - ávallt réttum niðurstöðum.
Páll var skáld gegnum árin.
Hin siðustu misseri var Páll sjúkur maður og
mnn 15. janúar s.l. gall honum lúðurhljómur allra
kynslóða.
Ég þekkti allvel hann Pál frá Sörlastöðum. Við
v°rum nágrannar um langan tíma. Heimalönd
okkar liggja mjög saman um hábungur Vallna-
lalls. Páll Ólafsson vann sér í hugum kunnugra
æösta aðalsmerki mannanna - hann var drengur
góður.
Ættingjum hans sendi ég hlýjar kveðjur.
Sigurður Eiriksson.
Þeir sem að
skrifa minningar-
eða
afmælisgreinar í
Islendingaþætti,
eru vinsamlegast
beðnir
um að skila
vélrituðum
handritum
ls|endingaþættir
Systkinin frá Eldleysu
Jónína Sigurjónsdóttir
f. 25.08.1895 - d. 04.08.1979
Guðrún Sigurjónsdóttir
f. 13.06.1903 - d. 29.08.1981.
Þorgrimur Siguijónsson
f. 02.02.1894 - d. 24.11 1958
Kristin Siguijónsdóttir
f. 04.08.1886 - d. 19.07.1965
Sveinbjörn Sigurjónsson,
f. 19.08.1885 - d. 31.07. 1956
Siguijón Siguijónsson
f. 21.07.1890 - d. 02.06.1982
7