Íslendingaþættir Tímans - 26.04.1983, Blaðsíða 4
Guðmundur Sveinsson,
netagerðarmeistari, ísafirði sjötugur
Pann 9. apríl árið 1913 fæddist hjónunum á
Góustöðum í Skutulsfirði sveinbarn, sem í skírn-
inni hlaut nafnið Guðmundur, Foreldrar sveinsins
voru Guðríður Magnúsdóttir og Sveinn Guð-
mundsson, Síðan Guðmundur fæddist eru nú liðin
70 ár þann 9. apríl.
Með foreldrum sínum ólst Guðmundur upp á
Góustöðum ásamt 6 yngri bræðrum sínum. Allir
hafa þeir bræður reynst frábærir dugnaðar- og
atorkumenn við þau störf sem þeir hafa tekið sér
fyrir hendur.
Að loknu barnaskólanámi stundaði Guðmund-
ur nám í unglingaskólanum á ísafirði og síðar lauk
hann prófi í netagerð. Sú iðngrein varð síðan
ævistarf hans. Að sjálfsögðu voru fyrstu störf
Guðmundar tengd búskapnum, en ungur að árum
fór hann einnig að stunda sjómennsku, sem hann
fékkst við í nokkur ár. Þótti hann þar mjög
liðtækur, sem og við önnur störf sem hann hefur
fengist við.
Fyrstu árin eftir að Guðmundur fór að vinna að
netagerð sem aðalstarfi vann hann hjá öðrum, en
fyrir um það bil þremur áratugum stofnaði hann
ásamt nokkrum öðrum mönnum fyrirtækið Neta-
gerð Vestfjarða h.f. Síðan hefur Guðmundur
verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins sem undir
hans stjórn hefur stöðugt aukið starfsemi sína og
farnast vel. Hafa starfsmenn fyrirtækisins oft
verið langt á annan tug mahna. Á þessum tíma
er mikill félagshyggjumaður og hefur, að mikiu
leyti haft forgöngu um félagslíf í sveitinni frá því
hann kom hingað og er sérlega laginn að finna
smugur fyrir skyndisamkomur tjl ánægju og
uppbyggingar þegar möguleikar hafa opnast til
þess, á dimmum haust og vetrardögum.
Torfi er með afbrigðum greiðvikinn og ávallt
reiðubúinn til hjálpar þar sem hjálpar er þörf.
Þess hefi ég mörgum sinnum notið og er ekki
einn um það. Svo sem að líkum lætur um mann
með skaphöfn hans hefur hann skipað sér í sveit
með Framsóknarflokknum. Umbóta- félagshyg-
gju- og mannbótastefna þess flokks fellur vel að
lífsskoðun hans og skapgerð, þar sem samvinnan
er grunntónn og hyrningarsteinn mannlegra sam-
skipta. Hann hefur haldið Framsóknarfélagi
hreppsins betur vakandi en nokkur annar og er
ávallt reiðubúinn til liðveislu.
Þau hjónin eru geStrisin og góð heim að sækja.
Margir leggja leið sína í Skólann til að njóta
gestrisni þeirra og viðræðna. Allt ónytju tal er
Torfa fjarri skapi, en íhugul umræða um málefni
líðandi stundar og framtíðarhorfur ræðir hann af
hófsemi og áhuga. - Allt frá því að vegasamband
komst á hingað norður og ferðamannastraumur
beindist hingáð, hefur verið haldið opnu gistirými
fyrir ferðalaga í Skólanum undir umsjá
hefur Netagerð Vestfjarða þjónað útgerðinni á
Isafirði og raunar um alla Vestfirði, og telja þeir
sem best þekkja til, að sú þjónusta hafi vcrið
útgerðinni alveg ómetanleg. Framkvæmdastjór-
inn er enda þeirrar gerðar að hann hefur jafnan
sem flestra vanda viljað leysa.
þeirra hjóna. Þetta hefur
fjöldi manna notfært sér og jafnframt notið
greiðasemi og fyrirgreiðslu þeirra. Fyrir það hafa
þau hlotið vináttu og þökk fjölmargra manna
víðsvegar af landinu. Veit ég að margir þeirra
mundu vilja senda þeim hlýjar kveðjur á þessum
afmælisdegi Torfa. - Ég legg leið mína oft til Torfa
og Aðalbjargar frænku minnar. Þangað er gott að
koma, að finna handtak Torfa hlýtt og traust,
finna vinarþel þeirra og barna þeirra og eiga
viðræður um ýms málefni, sem í hugann koma og
á dagskrá eru hverju sinni. Hér hefur verið stiklað
á stóru um helstu væiatriði Torfa og verksvið hans
fram að þessu. Margt er ósagt og verður ekki rakið
að sinni. Á þessum afmælisdegi Torfa færi ég honum
kærar þakkir mínar, fjölskyldu minnar, annarra
nágranna og sveitunga fyrir öll störf hans í okkar
þágu og þeirrar vinsemdar, sem kynnin við hann
hafa skapað. Það er ómetanlegt að hafa notið
návistar slíks drengskaparmanns og hollvinar.
Það verður aldrei þakkað svo sem vert væri. Sú er
bótin í því máli, að með því hefur hann safnað í
þann sjóð, sem mölur og ryð fá ekki grandað. -
Ég óska honum og fjölskyldu hans góðs gengis um
ókomin ár - og Guðs blessunar.
Lifðu heill góði vinur.
Guðmundur P. Valgeirsson.
Mjög mikinn og virkan þátt hefur Guðmundur
tekið í störfum ýmissa félaga hér í bænum. Skal
þá fyrst nefna hin mikilsverðu störf hans fyrir
Skíðafélag ísafjarðar, en í stjóm þess félags hefur
hann átt sæti áratugum saman. Hefur sá er þessar
lt'nur ritar það eftir nokkrum samstarfsmönnum
hans í Skíðafélaginu að oft hafi Guðmundur verið
aðaldriffjöðrin við að framkvæma þau verkefni
sem gera þurfti hverju sinni. Má þar fyrst og
fremst nefna hin miklu vinnuframlög hans við
uppbyggingu og endurbætur skíðaskálans á Selja-
landsdal, svo og við að koma upp skíðalyftunum
þar á dalnum. Að sjálfsögðu hafa margir aðrir
góðir unnendur skíðaíþróttarinnar lagt fram mjög
mikla vinnu, og sjálfsagt einnig fjármuni í
sambandi við uppbygginguna á Seljalandsdal.
Þarna hefur vissulcga verið af mörgum unnið
mikið og fórnfúst starf sem margir hafa notið og
væntanlega ennþá fleiri eiga eftir að njóta.
Á sínum tíma var Guðmundur lengi í stjórn
íþrótta- og málfundafélagsins Ármanns í Skutuls-
firði. Einnig átti hann um tíma sæti í stjórn
íþróttabandalags ísafjarðar.
Á undanförnum áratugum hefur Guðmundur
Sveinsson unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir
Framsóknarflokkinn. Er á engan hallað þó fullyrt
sé, að hann sé í allra fremstu röð þeirra sem unnið
hafa að málefnum flokksins hér í kjördæminu.
Hann var einn af aðal hvatamönnum að stofnun
Framsóknarfélags ísfirðinga og fyrsti formaður
félagsins. í stjórn félagsins hefur hann verið frá
því það var stofnað, eða nokkuð á fjórða áratug,
lengst af ritari þess og er það ennþá. Hann var
einn af þeim mönnum sem stóðu að útgáfu
blaðsins ísfirðingur fyrir 33 árum og hefur síðan
oftast verið afgreiðslumaður blaðsins og margoft
skrifað greinar í það. í um það bil átta ár hefur>
Guðmundur átt sæti í bæjarstjórn ísafjar^ar og er
nú formaður bæjarráðs. Hann hefur setið í
mörgum nefndum á vegum bæjarstjórnar t.d. í
hafnarnefnd og í bygginganefnd Elliheimilisins.
Guðmundur átti um tíma sæti í stjórn Kjördæmis-
sambands framsóknarmanna í Vestfjárðakjör-
dæmi og hann hefur verið fulltrúi á flestum
þingum þess.
Þó árin séu nú orðin þetta mörg er Guðmundur
Sveinsson ennþá léttur í spori og gengur af lifandi
áhuga og starfsvilja að hverju því verkefni sem
úrlausnar bíður, og skiptir þá ekki máli hvort um
er að ræða erfiðisvinnu eða félagsleg verkefni.
Hann hefur aldrei kunnað að hlífa sér og ekki lagt
það í vana sinn að geyma til morguns það sem
unnt er að vinna í dag.
Eiginkona Guðmundar er Bjarney Ólafsdóttir.
hin mætasta kona og húsmóðir. Þau eiga fjögur
uppkomin börn, tvær dætur og tvo syni.
Undirritaður þakkar Guðmundi Sveinssyni fyrir
löng og góð kynni og margra ára ánægjulegt
samstarf. Við hjónin óskum Guðmundi og fjöl-
skyldu hans allra heilla í tilefni sjötugs afmælisins.
Jón A. Jóhannsson
4