Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 29.02.1984, Qupperneq 4

Íslendingaþættir Tímans - 29.02.1984, Qupperneq 4
Þóra D. Helgadóttir Fædd 19. nóvember 1908 Dáin 21. desember 1983 Með ömmu okkar er til moldar hnigin persóna sem var okkur systkinunum mjög mikils virði á okkar bernskuárum. Við viljum þakka henni með nokkrum minningarorðum. frá þeim tíma og til síðasta dagsins sem hún var hjá okkur í þessu lífi. Þó svo að hún byggi í öðru byggðarlagi eigum við margar ógleymanlegar stundir mcð henni. t.d. þegar við fórum í sumarbústaðinn á sumrin. t>á var komið við hjá henni í Skógarkoti, en þar var hún ráðskona hjá skógræktinni í mörg sumur. Þá kom hún ákaflega oft til okkar í Birkilund til að sjá og fylgjast með hvað væri verið að gera, smíða eða gróðursetja. Og'hvað hún fylgdist með því þegar hún kom aftur seinna og sá að það var búið að gera eitthvað meira en þegar hún kom síðast. Þá varð andlitið eitt bros. Hún elskaði blóm og það var sama hvað afleggjarinn sem hún fékk var lítill og vesæll, allt lifnaði þetta hjá ömmu, og varð að fallegu blómi. Enda voru gluggarnir í Skógarkoti á sumrin eitt blómahaf. Allt sem hún vann í höndunum, hvort sem það var að sauma eða prjóna, allt varð þetta að svo fallegum og velunnum flíkum. Við fórum ekki varhluta af því, því margir voru sokkarnirog vettlingarnir og peysurnar að ógleymdum fallegu svuntunum með pífunum sem komu fyrir jólin. Amma fæddist í Fróðhúsum í Borgarhreppi. Foreldrar hennar voru Guðbjörg Gestsdóttir og Helgi Daníelsson. Þarólsthún upp meðsystkinum sínum. Allir sem þekkja til þessara tíma vita hve lífskjörin voru oft bág. Amma var því ekki gömul þegar hún fór að vinna öll algeng sveitastörf. Fljótt kom í Ijós dugnaður hennar og samvisku- semi. Hún giftist afa okkar, Ólafi Ólafssyni árið 1936. Þau eignuðust fimm börn, þrjár stúlkur og tvo drengi. Annan drenginn missa þau nokkurra mánaða gamlan. En hamingjusólin snýst hratt, því mann sinn missir hún eftir tíu ára sambúð. Hún lét ekki deigan síga. Vinna skyldi hún fyrir börnunum sínum og koma þeim til manns og náði því setta marki. Starfsdagurinn varð því oft langur því hverja flík saumaði hún á þau, þó það væri ekki alltaf úr nýju efni. En hún sagði: „Þau voru ánægð með þetta.“ Nú þegar að leiðarlokum er komið finnum við hve gott það er að hafa átt svona góða og trygga ömmu sem allt vildi gera fyrir okkur en krafðist aldrei néins. Það átti aldrei að hafa neitt fyrir henni, það var alveg óþarfi. Þegar við komum að rúminu hennar á spítalanum og spurðum hana hvernig henni liði, var svarið alltaf það sama. Mér líður vel, það eru allir svo góðir við mig hérna og vilja allt fyrir mig gera. Það var hennar hjartans ósk að okkur öllum liði vel. Hafi svo elskuleg amma þökk fyrir allt og allt. Við kveðjum hana með þessu fallega ljóði eftir Tómas Guðmundsson: 4 Minningarnar leiftra og lýsigullið skín. Nú dreymir mig um ókomnu œvintýrin mín. En stundum kemur þögnin og hylur gömul Ijóð. Þá þrái ég enn að þakka hvað þú varst mild og góð. Svo yndislega œskan úr augum þínum skein. Svo saklaus var þinn svipur og sál þín björt og hrein. Og Ijúft sem liðinn draumur ein löngun vitjar mín, að krjúpa á hjarnið kalda og kyssa í sporin þín. Eygló, Þóra og Siggi Oli. Þórarinn Hinriksson Húsavík Fæddur 5. ágúst 1961 Ðáinn 2. febrúar 1984 Ég man þig lítinn, eftirlœti allra og snöggan eins vg eldihg færi 1101 húsið svo sloltan snáða en glaðværan og góðan man ég nú ekki annan tími sem leið og þó er eins og enginn tími síðan: elding sem fer. Dauði, sem vinnur hœgt, er líka hér ég heyri þögn hans, ktdið leggst að mér. Kristjan Karlsson Í3LENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.