NT - 08.05.1984, Blaðsíða 1

NT - 08.05.1984, Blaðsíða 1
Alþýðusamhand íslands: Verslar við samningsrofa - héit hóf í Glæsibæ, sem ekki virðir kjarasamninga ■ Á laugardagínn hélt ASÍ hóf í Giæsibæ vegna ráðstefnu sinnar um skipulagsmál, sem haldin var um helgina. Glæsi- bær er einn af þeim stöðum sem ekki hafa haldið samn- inga, hvorki borgað starfsfóki rétt né borgað félagsgjöld. Félag starfsfólks í veitinga- húsum hefur lýst óánægju sinni með þetta, og sagði Sigurður Guðmundsson, formaður fé- lagsins, að það ætti að vera prinsipp hjá verkalýðs- hreyfingunni að skipta ekki við aðila, sem ekki stæðu við gerða samninga. Aðspurður, hvort mikið væri um að veitingahús stæðu ekki við samninga, sagði Sig- urður að nokkur veitingahús gerðu það ekki, misjöfn skil væru á öðrum og svo væru hús, sem stæðu alveg við alla samn- inga. Hólmgeir Jónsson hjá ASl sagði að kvartaöhefði verið út af þessu rétt áður en hófið átti að hefjast, maturinn hefði beð- ið og ekki hefði verið hægt að snúa aftur með þetta. „Við reynum jú að beina aðilum á rétta braut með þetta", sagði hann þegar spurt var hvort ASÍ skipti yfirleitt við fyrir- tæki, sem ekki héldu gerða samninga. Flugmanna- verkfall aðeins byrjunin? - enn ósamið við allmargar stéttir ■ Flugmannadeilan er að sjálfsögðu í brennidepli hjá sáttasemjara þessa dagana. Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissáttasemjara er deilan í sjálfheldu og virðist fátt geta komið í veg fyrir að flug á vegum Flugleiða leggist niður á föstudag og laugardag, en eins og kunnugt er þá hafa flugmenn boðað vinnustöðvun þessa daga til þess að leggja áherslu á kröfur sínar. Auk þessarar deilu er á borði sáttasemjara deila Félags ís- lenskra leikara við útvarp og sjónvarp, en fleiri deilumál gætu siglt inn á hans borð. Ósamið er við flugvirkja, flugfreyjur og flugvélsjtóra hjá Flugleiðum. Sjúkraþjálfarar eiga í deilu við endurhæfingarstöð Styrktarfé- lags lamaðra og fatlaðra. Þá eru vinnuveitendur með Lands- virkjun í broddi fylkingar að vinna að heildarsamningi við fjöldamörg verkalýðsfélög um störf er lúta að uppbyggingu virkjana. Samning sem gildi um allar stórvirkjanir hvar sem er á landinu. Þar eru álitamálin fleiri en vötnin á Arnarvatnsheiði, t.d. hver á forgangsréttur heimamanna að vera til vinnu? Hve oft eiga menn að geta skotist heim til sín?, fæðismál, starfsfyrirkomulag í jarðgangnavinnu o.fl. o.fl. Miklar líkur eru á því að öll þessi mál komi til kasta ríkis sáttasemjara fyrr eða síðar, og því hæpið að hægt verði að leggja það embætti niður á næstunni. Sjá einnig bls. 2. Sólin er uppseld NT úttekt íopnu ■ Gífurleg eftispurn virðist vera eftir sólar- landaferðum í ár, því nær allar ferðaskrif- stofur landsins full- yrða, að einungis örfá sæti séu nú laus. Þetta ástand er gjörólíkt því, sem ríkti s.l. sumar, en þá voru undirtektir íandsmanna dræmar. NT úttektin fjallar að þessu sinni um sóiar- landaferðir lands- manna. ■ i gær kom páfinn til Nýju Guineu. Þar tóku íbúarnir á móti honum með mikilli viðhöfn og dönsum. Nýja Guinea er annað landið sem páfinn heimsækir í Asíuferð SÍnnÍ nÚna. Simunynd-POLFOTO. Enemy Mine verður tekin í Ungverjalandi: Ringulreið og menn æstir og undrandi ■ „Það verður staðið við alla samninga sem gerðir hafa veríð við ísienskt starfsfólk kvikmyndafélagsins. Þessi stóru félög fara ekki um heiminn og brjóta samninga. Þau kæra sig ekki um það óorð sem af því myndi leiða,“ sagði Gísli Gestsson kvik- myndagerðarmaður í samtali við NT í gær, en hann hefur verið aðalmilligöngumaður 20th Century Fox hér á landi. Félagið hefur nú hætt við frekari kvikmyndagerð hér á landi, rekið leikstjórann og ráðið annan í staðinn, Wolf- gang Peterson, sem þekktur er fyrir Óskarsverðlauna- myndina Das Boot. Fram- hald myndarinnar verður tek- ið í Ungverjalandi. Þeir sem gengið höfðu úr húsum sínum á Hvolsvelli og leigt þau starfsmönnum kvik- myndafélagsins voru ekki jafn bjartsýnir. „Við vitum ekkert hvar við stöndum“, sagði einn þeirra í samtali við NT. „Fólk hefur tekið á sig mikil óþægindi og með að leigja hús sín í 10 daga til 3 vikur en nú er fólk búið að yfirgefa sum húsin eftir að- eins þriggja daga dvöl. Það hefur verið ringulreið hér í dag, allir æstir og undrandi yfir því sem gerst hefur og það hefur verið ómögulegt að fá nokkurn botn í málin.“ í gær var þó enn starfsfólk kvikmyndafélagsins í mörg- um ieiguíbúðanna en ekki var ljóst hvenær það myndi yfirgefa þær. Flutningar á tækjum til Reykjavíkur voru byrjaðir í gær, en þeir munu taka nokk- urn tíma. Áætlað er að taka nokkrar landslagssenur ef veður leyfir fram að næstu helgi. menn rel úr Frama? ■ Lögfræðileg athug- un stendur nú yfir á lögmæti samningsins milli Bæjarleiða og Ríkisspítalanna. Stétt- arsamtök leigubílstjóra hafa lýst samninginn ólögmætan, en hann gekk í gildi í gær og þá tóku Bæjarleiðir við öllum akstri fyrir Ríkis- spítalana, þrátt fyrir mótmæli Frama, félags leiguílstjóra í Reykja- vík. NT hafði í gær sam- band við Úlfar Markús- son, formann Frama og sagði hann málið vera í biðstöðu en reynt yrði að ná sáttum. Hann kvaðst þóekki viljaúti- loka málshöfðun, en nú stæði yfir lögfræðileg athugun á lögmæti samningsins og allavega yrði reynt að fara samn- ingaleiðina áður en gripið yrði til slíkra að- gerða. Úlfar var spurður að því hvort þeir leigubíl- stjórar sem gerðust brotlegir við lög Frama með því að aka sam- kvæmt samningnum, ættu á hættu að verða reknir úr félaginu. Hann kvaðst ekki vilja byrja á því að reka neinn og bætti því við að menn hefðu áður gerst brotlegir og verið teknir til bæna. Samkomulag náðist um það til bráðabirgða að Ármann Mangús- son, leigubílsstjóri á Hreyfli, héldi því starfi sem hann hefur haft.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.