NT - 08.05.1984, Blaðsíða 9
IU'
Þriðjudagur 8. maf 1884
Norræn rokkhátíð
í Höllinni 3. iúní
■ Þann 3. júní verður haldin mikil norræn
rokkhátíð í Laugardalshöllinni. Yerður þetta
hluti af listahátíð, en áætlað er að þetta verði
upphafíð af árlegri norrænni rokkhátíð, sem
haldin verði til skiptis á Norðurlöndunum.
Sex hljómsveitir munu koma
fram á tónleikunum, þar af
tvær frá íslandi, Vonbrigöi og
Þursaflokkurinn.
Frá Noregi kemur hljóm-
sveitin Circus Modern, sem
stofnuð var í nóvember sl. og
hefur á skömmum tíma skotist
á toppinn í norskri rokktónlist.
Ýmsir þekktir einstaklingar úr
norsku rokklífi eru í hljóm-
sveitinni. Þeir Jörn Christen-
sen gítarleikari og Ola Snort-
heim trommuleikari voru áður
í hljómsveitinni De Press, sem
stofnuð var af Pólverja
nokkrum. Sá fór síðar út í að
stofna hljómsveitina Holy
Toy, sem náð hefur nokkrum
vinsældum í Bretlandi. De
Press var á sínum tíma ein
helsta nýbylgjusveit Norð-
manna. Önnur þekkt ný-
bylgjuhljómsveit í Noregi var
Kjött, og í henni var Helge
Gaarder, söngvari Circus
Modern. Fjórði meðlimurinn
er svo Mari Wendelbo hljóm-
borðsleikari, sem starfað hefur
með fjölmörgum rokk- og jass-
hljómsveitum.
Fyrsta plata hljómsveitar-
innar kom út í mars og heitir
sama nafni og hljómsveitin.
Allt efnið er eftir meðlimina
sjálfa. Ég heyrði nokkur lög af
þessari plötu og get ekki sagt
annað en að þetta sé mjög
frambærilegt nýbylgjurokk.
Svíar senda hingað hljóm-
sveitina Imperiet. Sú hljóm-
sveit var stofnuð á síðasta ári
upp úr hinni þekktu hljómsveit
Ebba Grön, sem hafði geysileg
áhrif á sænskt rokklíf upp úr
1980, og hafði svipaða stöðu í
Svíþjóð og Utangarðsmenn
hér heima. Tónlist Ebba Grön
einkenndist af því að vera
kraftmikil rokkmúsík, þar sem
textarnir voru bundnir sterkri
þjóðfélagslegri ádeilu. í Ebba
Grön mátti finna sterk áhrif
frá pönkinu. Imperiet tók síð-
an upp þráðinn þar sem Ebba
Grön hættu og eru textar Im-
periet myndrænir og bein-
Norska Circus Modern
Imperiet frá Svíþjóð
Clinic Q fra Danmörku
skeyttir, fullir ádeilu á óviðun-
andi ástand og spennu í heim-
inum í dag.
Fyrir tæpu ári kom út fyrsta
LP-plata Imperiet, sem heitir
Raseraog tölduflestirsænskir
og norrænir gagnrýnendur
þetta eina athyglisverðustu
plötu síðasta árs og var hún
m.a. kosin plata ársins í
Svíþjóð. Hljómsveitin er mjög
dugleg við tónleikahald, og
þegar hún kemur til íslands
hefur hún verið á tveggja mán-
aða ferðalagi um öll Norður-
lönd. Prátt fyrir velgengnina
og að allt bendi til þess að þeir
verði stærsta nafnið í norrænni
rokktónlist leitast þeir við að
standa utan við kommersíal-
ismann. í síðasta mánuði kom
út önnur LP-plata hljómsveit-
arinnar, sem reyndar er mini-
LP, sjö laga.
Clinic Q heitir danska fram-
lagið. Þetta er nýbylgjusveit
sem spilar blöndu af rokki,
fönki og pönki. Hljómsveitin
er skipuð fimm stelpum. Hún
er komin úr Kaupmannahafn-
arundergrándinu, og hefur
spilað bæði í Danmörku og
Énglandi. Nokkrir helstu
áhrifavaldar í tónlist hljóm-
sveitarinnar eru Bob Dylan,
Lou Reed og Roxy Music. Pær
hafa gefið út stóra plötu sem
nefdnist Aye. Þar eru frum-
samin lög, og síðan eitt lag
eftir þann fræga tónsmið lrving
Berlin. Það er lagið Down
below, sem ætlað var í Chap-
lin-mynd á sínum tíma, en
textinn var ritskoðaður, vegna
þess að hann þótti innihalda
vafasama hluti.
Hefty Load er svo finnska
hljómsveitin sem kemur. Eins
og tvær hinar fyrstnefndu er
hún tiltölulega ný, hefur starf-
að í innan við eitt ár, og eins
og hinar er hún skipuð hljóm-
listarmönnum sem hafa starfað
um tiltölulega langan tíma í
rokktónlist. En að öðru leyti
er hún ólík, hún spilar ekki
standard nýbylgjurokk eins og
Imperiet og Circus Modern,
heldur tónlist sem er undir
áhrifum frá svartri fönk tónlist,
og minnir á blöndu af Purrk
Pillnikk og Frökkunum. Einn
meðlimanna er negri, sem
hlýtur að teljast óvenjulegt í
hánorrænum og arískum rokk-
heimi Norðurlanda.
Hefty Load gaf út sína fyrstu
LP-plötu fyrir nokkrum mán-
uðum og komst lag af henni á
vinsældarlista í Bretlandi, t.d.
í 5. sæti óháða listans í Sounds.
Upptökum á plötunni stjórn-
aði Jimi Sumen, sem var um
skeið gítarleikari í Classix No-
veaux, og kom hann sem slíkur
til Islands í fyrra. Annars hafa
Finnar náð töluverðum vin-
sældum utan heimalandsins að
undanförnu, sérstaklega glam-
or-heavy-rokksveitin Hanoi
Rocks.
Tónleikar Hefty Load hér á
landi eru hluti af tónleikaferð
þeirra um Norðurlöndin.
Pessir tónleikar hljóta að
teljast mjög merkilegir fyrir
ýmissa hluta sakir. íslendingar
hafa haft fátt að segja af nor-
rænu rokki, satt að segja varla
vitað að það væri tii. Þó kom
ein norsk hljómsveit í heim-
sókn fyrir nokkrum árum,
hljómsveitin The Cut. Margar
norskar sveitir hafa verið að
gera merkilega hluti, nefna
má sem dæmi Fra Lippo Lippi
sem er á Joy Division línunni,
DePress sem áður var minnst
á og fleiri. í Danmörku má
nefna Sods, sem nýlega gáfu út
plötu undir nafninu Sort Sol.
Nefna má að söngvari Sods er
giftur íslenskri stúlku og hefur
hljómsveitin áhuga á að koma
hingað. Sænskar hljómsveitir
veit ég minna um, en ég efast
ekki um að þar séu áhugaverð-
arhljómsveitir. Hins vegarveit
ég ekki til þess að enn háfi
verið stofnuð rokkhljómsveit í
Færeyjum, hvað þá nýbylgju-
hljómsveit.
Eins og áður segir munu
hljómleikarnir verða sunnu-
dagskvöldið 3. júní. Miðinn
kostar 350 kr. og hljómleikun-
um verður útvarpað beint á
Rás 2.
9
■ Út er komin hljómplata
með hljómsveitinni Ikarus.
Nefnist hún Rás 5-20 og ætti
þar með að verða tekið fyrir að
fleiri plötur kölluðust Rás nr.
þetta og hitt, nema að það
verði Rás 21 o.s.frv.
Hljómsveitin er skipuð þeim
sama Ikarusi og varð til í kring
um upptökurnar á sólóplötu
Tolla Morthens, The Boys
From Chicago. Pað eru þeir
Kommi (trommur/söngur),
Beggi (gítar/söngur), Bragi
(bassi/söngur), Megas
(söngur), og Tolli (söngur).
Upptökur að þessari nýju
plötu hófust skömmu eftir hina
eftirminnilegu tónleika „Við
krefjumst framtíðar“ í fyrra-
haust. A plötunni er að finna
töluvert af því efni sem hljóm-
sveitin flutti á þeim hljóm-
leikum, t.d. lag sem sungið er
til Alberts með vindilinn, og
einnig er þarna lag Megasar,
„Svo skal böl bæta“, sem hent-
ar þjóðinni mjög vel að syngja
á þessum þrengingartímum.
Á plötunni eru lög og textar
eftir alla meðlimi Ikarusar, og
þeir syngja sín eigin lög.
■ Ikarus. Komma vantar á myndina, því hann er úti í Danmörku á lýðháskóla.