NT - 08.05.1984, Page 10
Þriðjudagur 8. maí 1984 10
Helgi Olafsson
skrifar um skák
■ Þegar leið á fimmta tímann
í níundu og síðustu umferð
stórmótsins í New York á
dögunum og flestum skákum
lokið nema þá helst þeim er
ekki vörðuðu neinu baráttuna
um efstu sætin og þarmeð dá-
gott verðlaunafé var þó ein
skák eftir sem átti óskipta
athygli nær allra viðstaddra.
Þar sátu að tafli Ljubomir
Ljubojevic, sterkasti skák-
maður Júgóslava um margra
ára skeið og Rússinn með
langa nafnið Roman Dzind-
zihasvili. Á þessari stundu þeg-
ar baráttan stóð sem hæst hafði
Gennadi Sosonko þegar borið
sigurorð af Dimitry Gurevic,
Kavalek hafði sigrað Banda-
ríkjamanninn Dlugy og þeir
Portisch og Adorjan höfðu
sæst á skiptan hlut. Portisch,
Sosonko, Adorjan, Kavalek
og Kogan höfðu allir náð 6'A
vinningi úr 9 skákum og bæði
Ljubojevic og Dzindzihasvili
gátu náð sömu vinningatölu -
og það sem verra var -
Dzindzi, en undir því nafni
gengur hann venjulega í
Bandaríkjunum átti mögu-
leika á hálfum vinningi betur
og þar með óskiptu 1. sæti sem
gaf af sér 18 þús. bandaríkja-
dali sem er heldur hærri pen-
ingaupphæð en menn eiga að
venjast á skákmótum á vorum
dögum. Fimmmenningarnir
Ííklegustu úrslitin. En Lju-
bojevic var í engum friðarhug-
leiðingum. Með því að sigra
gat hann náð efsta sæti ásamt
öðrum og þar með u.þ.b. 8
þús. dölum í verðlaun. Sæti
þar fyrir neðan gaf af sér um
eitt þúsund dali. Rétt eins og
Ljubojevic var Dzindzi orðinn
naumur á tíma átti vart meira
en 10 mínútur eftir til að ná 45
leikja markinu. Tímaskortur-
inn setti gríðarlegan svip á
lokabaráttuna og því var
spennan þegar orðin umtals-
verð.
24. .. Bh2t
25. Khl Bxc4
26. Bxc4 Bf4!
(Nákvæm taflmennska. Eftir
26. - Hed7 27. Hedl Bf4
heldur hvítur biskupaparinu
með 28. Bel!)
27. Bxf4 Dxf4
28. g3 Db8
(En ekki 28. - Dd2 29. Hadl!
Dxe2 30. Hxd8tog31.Hxe2).
29. Bd3
(Þessi leikur kostaði drjúgan
tíma. Ljubojevic átti tæplega
fimm mínútur eftir og Pzindzi
eilítið betri tíma.)
29. ... Hed7
30. Bxf5
(Eftir skákina var Ljubojevic
óánægður með þennan leik og
taldi 30. Hadl betra. En svart-
ur á 30. - c4! sem heldur vel í
horfinu t.d. 31. Bxc4 Hxdl 32.
■ Igor Ivanov fyrrum Sovétmaður („stökk af‘ á flugleiðinni Havana - Montreal - Moskva) og Roman Dzindzihasvili
sigurvegari mótsins stinga saman nefjum í einni af lokaumferðunum. Sovétmenn búsettir í Bandaríkjunum setja æ meiri svip
á skáklíf þar vestra. í 2.-6. sæti voru t.d. tveir fyrrum Sovétmenn Kogan og Sosonko sem nú býr í Hollandi. Hann
situr þarna við hliðina á Samuel Reshevsky sem stóð vel fyrir sínu. Skákstjórinn sem meðhöndlaði hið viðkvæma deilumál
Jóhanns Hjartarsonar og Walter Browne er uppi á sviði. Ljósm.: - Nigel Eddis.
abcdefgh
Ljubojevic - Dzindzihasvili
Á þessu stigi málsins lætur
staðan ekki mikið yfir sér.
Svartur hefur fyllilega náð að
jafna taflið og jafntefli eru
(Það er ekki nóg með að sama
staðan hafi komið upp þrisvar,
sem vill þýða að annar kepp-
enda eða báðir geta krafist
jafnteflis, heldur hafa tvær
stöður komið upp í þrígang!
Einhvern veginn var það svo
að hvorki Ljubojevic né
Dzindzi virtust hafa verulegan
áhuga á'þeim úrslitum. Ofan á
bættist að báðir voru alveg að
falla. En þegar Dzindzi lék
sínum 38. leik var eins og hann
gæfist upp á frekari vinningstil-
raunum og bauð Ljubojevic
jafntefli. Þó staða hans væri
engu betri og ef eitthvað er
■ Jóhann Hjartarson tefldi af mikilli grímmd í lokaumferðunum í New York. Þá sigraði hann Shirazi, DeFirmian, Ree
og Zuckerman og náði verðlaunasæti. Hér teflir hann við argentíska stórmeistarann Miguel Quinteros. Skák þeirra lauk
með jafntefli.
1
A
2
Rússinn með langa nafnið
sigraði í New York
gátu litið björtum augum til
þessarar skákar. í fyrsta lagi er
það ekki á hverjum degi sem
Ljubojevic, þriðji stigahæsti
skákmaður heims, tapar skák.
í öðru lagi var hann með hvítt
og auk þess með allvænlega
stöðu og í þriðja lagi virtist
Dzindzi hæstánægður með
jafntefli. Eina vandamálið fyr-
ir þá fimmmenninga var að
Ljubojevic varð að vinna þessa
skák og undir slíkum kringum-
stæðum lætur hann einskis ó-
freistað. Kom það á daginn.
Niðurlag skákarinnar,
„þyngslin" og sviptingarnar
héldu áhorfendum íhreintlog-
andi spennu. í upphafi tók
Dzindzi það ráð að beita byrj-
un fátæka mannsins. Langt
fram í miðtafl tefldi hann ofur
varlega, gaf Júgóslavanum
ekki hinn minnsta höggstað á
sér. Þegar Ljubojevic hafði
leikið sínum 24. leik átti hann
u.þ.b. 10 mínútur eftir til að
ná tilskildum leikjafjölda, en
tímamörkin voru 45 leikir á
2 xh klst. Þá var þessi staða
komin upp:
Hxdl Hxdlf 33. Dxdl Dxb2
34. Bxe5 Dxf2! o.s.frv.)
30. ... Hd2
31. Df3 exf5
32. DxfS Dxb2
33. Kgl Dxc3
(Nú fer einhver einkennileg-
asti hluti þessarar skákar í
hönd þar sem viðureignin á
skákborðinú er látin lönd og
leið en peningagræðgin fær-
algerlega að stjórna ferðinni. í
fyrstu voru skákmennirnir
trúir stöðunni og þráléku...)
34. Hacl Da3
35. Hal Dc3
36. Hacl Da3
37. Hal Dc3
38. Hacl Da3
heldur verri, þá tók Ljubojevic
skjótaákvörðun: „Nei,“þrum-
aði hann og fleygði hróknum á
c5-peðið og studdi á klukkuna
með smell...)
39. Hxc5?! Dxa6
40. Hc7 Hf8??
(Þessi grófi afleikur færði
Dzindzi sigurinn í mótinu!
Miklu sterkara var 40. - Da2
en þó eru engar líkur á því að
svartur nái að sigra eftir 41.
Hee7!)
41. Hxf7!
(Ljubojevic var fljótur að leika
honum þessum. Hugmyndin
er einföld. Ef nú 41. - Hxf7 þá
42. He8t og mátar í næsta leik.
Dzindzi var mjög brugðið, en