NT - 08.05.1984, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 8. maí 1984
til þess að jaf nast á við stórslys
klæðnað þeirra og látum við þær til
gamans fljóta hérna með.
17
DYAN CANNON Hún kaus að vera í klæðilegum og
kynæsandi kjól í stfl við þá, sem villtar stúlkur voru í á
þriðja áratugnum, þegar Charleston átti upptök sín.
Kjóllinn hennar er einfaldur, en ákaflega flott.
MORGAN FAIRCHILD Hún var
stórglæsileg. „Túh'pana“ pilsið á kjóln-
um var hvfld fyrir augað frá öllum
þessum venjulegu.
JOAN COLLINS Hún var virkilega
sönn ímynd hinnar ómótstæðilegu stór-
stjörnu í kjólnum sínum, sem hefði eins
getað verið frá 5. áratugnum.
DARYL HANNAH Hún jafnaðist nú bara á við stórslys! Það
mætti halda að hún hefði soflð í kjólnum, nú eða dottið í vatn
í honum, hún var svo þvæld að sjá!
Er bandaríska kvikmyndaaka-
demían búin að ganga sér
■ Úrskurður bandarísku kvikmynda-
akademíunnar um hverjir skuli hljóta hin
eftirsóttu Óskarsverðlaun hverju sinni hefur
oft þótt umdeilanlegur og vakið bæði reiði og
deilur. Það er ekki að furða, ef vinnubrögðin
eru í þeim dúr, sem einn meðlimur akademí-
unnar, kona, hefur Ijóstrað upp við bandarískt
vikublað nýlega, undir nafnleynd auðvitað.
Hún lýsir því, hvernig marg-
ir meðlimir eru komnir til ára
sinna og hafi megnan ímugust
á nýjustu kvikmyndunum, sem
ekki eru í gamía hefðbundna
Hollywood-stílnum. Þeir láta
því ekki svo lítið að skoða
myndir þær, sem tilnefndar
eru, áður en ákveðið er hverjir
$kuli hreppa hnossið. Það er
því aðeins lítið brot þeirra
atkvæðisbæru, sem standa að
úrslitunum. Ein karlstjarnan
af eldri kynslóðinni vill þó ekki
láta atkvæðaseðilinn sinn ónot-
aðan. Hann sendir einfaldlega
þjónustustúlku sína í sinn stað
og gerði hennar skoðun að
sinni!
Sumir, sem koma þó á sýn-
ingarnar, nota tímann til að
sofa, segir þessi kona, og eru
því engu nær að sýningu lok-
inni.
Þá finnst henni tími kominn
til að hrista upp í akademíunni
og skipta um meðlimi þar.
Hvaða vit er í því, spyr hún, að
leikstjórinn Steven Spielberg
er ekki meðlimur og fær því
ekki að greiða atkvæði, en
barnaleikararnir Justin Henry,
sem er 12 ára, og Ricky
Schroder, 14 ára sitja þar með
fullan atkvæðisrétt. Þegar allt
kemur til alls hefur Steven
Spielberg leikstýrt mörgum
vinsælustu kvikmyndunum,
sem komið hafa fram síðustu
árin, s.s. E.T., „Close Encon-
uters of the Third Kind“, Ó-
kindin og Leitin að týndu örk-
inni. Samt sem áður hefur
honum, a.m.k. til þessa, verið
meinuð innganga í akademíu-
ina. - Þetta er hneyksli, segir
heimildarkona blaðsins.
- Sennilega hefur enginn ann-
ar leikstjóri selt eins marga
bíómiða á undanförnum árum
og Spielberg, og samt er hann
hafður úti í kuldanum.!
Og hún heldur áfram: -
Málið er allt orðinn einn alls-
herjar skrípaleikur. Flestir fé-
laganna hafa ekki komið ná-
lægt kvikmyndagerð árum
saman og þeir eru eindregið
mótfallnir nýjum straumum í
kvikmyndum. Þeir eru á-
kveðnir í því fyrirfram, að
þeiin falli ekki slíkar kvik-
til húðar?
myndir í geð og fara þess
vegna ekki einu sinni að sjá
þær. Þeir segjast fá gæsahúð af
tilhugsuninni um allt þetta of-
beldi og kynlíf og vilji því ekki
einu sinni leggjast svo lágt að
greiða atkvæði um myndirnar.
Afleiðingin er sú, að það eru
ekki nema örfáir meðlimir,
sem taka ákvörðun í því stór-
máli hvaða kvikmyndir og
leikarar hljóti þann heiður að
vera álitnir bestu listamennirn-
ir á því sviði það árið.
Til nánari skýringar á máli
sínu segir hún frá því, þegar
allt var á suðupunkti fyrir síð-
ustu úthlutun. Kvikmyndasýn-
ingar fyrir akademíumeðlimi
voru í fullum gangi. Þá gekk
inn í sýningarhúsið ein gömul
stjarna þöglu myndanna, sem
sæti á í akademíunni, bjó um
sig með kodda og teppi, sem
hún hafði haft með sér að I
heiman, í hægindastól í for-
salnum og féll í djúpan svefn.
Aðspurð um, hvermg hún
treysti sér til að greiða atkvæði
eftir svona „athugun“, svaraði
hún því til, að hún hefði aldrei
ætlað að greiða atkvæði, hún
vissi það, hvort sem er, að
myndin væri ekki sér að skapi!
Eitt kvörtunarefni gagnrýn-
endanna er það, að rétt til
atkvæðagreiðslu um verðlaun-
in hafi ýmsir, sem hafi vægast
sagt lítil bein tengsl við kvik-
myndaiðnaðinn, og kannski
engin. Þarerut.d. nefndarþær
Farrah Fawcett, Jaclyn Smith
og Kate Jackson, sem fyrst og
fremst eru frægar sem sjón-
varpsstjörnur, svo og sjón-
varpsstjörnur, sem áttu sína
Háværar
deilur um
úthlutun
Oskars.
verðlauna
frægðardaga á 6. áratugnum,
en hefur lítið bólað á síðan.
Auk þessara atriða, hefur
líka verið gagnrýnt, hvaða skil-
yrði fólk þarf að uppfylla til að
geta fengið inngöngu í aka-
demíuna, en þau þykja síður
en svo ströng. Samt sem áður
er langt í frá að innganga sé
fulltryggð að skilyrðunum full-
nægðum og því fer það gjarna
svo, að þeir, sem ættu að eiga
fullan rétt á setu í akademíunni
og gætu kannski lífgað upp á
þetta sofandi samfélag, er ekki
hleypt einn í þetta musteri, þar
sem sauðirnir eru skildir frá
höfrunum.