NT - 08.05.1984, Side 23
Þriðjudagur 8. maí 1984 23
Norður-írland:
Paisley
mótmælir
allri
sáttagjörð
Belfast-Reuter
■ Séra Ian Paisley, einn her-
skáasti leiðtogi mótmælenda í
Norður-írlandi, sagði í útvarpi
í gær, að hverri tilraun til að
auka áhrif Írska lýðveldisins á
Norður-Irlandi yrði mætt með
kröftugri mótstöðu mótmæl-
endameirihlutans og jafnvel
valdbeitingu.
Presturinn var að svara til-
lögum þeim sem nefnd sem allir
stærstu stjórnmálaflokkarnir á
írlandi áttu fulltrúa í, skilaði af
sér í síðustu viku. Þar er lagt til
að Norður-írland verði samein-
að írska lýðveldinu, eða að
myndað verði sambandsríki, til
að stöðva ógnaröldina sem ríkt
hefur í Norður-írlandi í nær tvo
áratugi. Ian Paisley sagði að
ekki kæmi til mála að ganga til
neins konar samninga við írska
lýðveldið um áhrif í Ulster og
að Norður-írland tilheyrði
Bretlandi og því yrði ekki
brevtt.
Margrét Thatcher forsætisráð-
herra og James Prior hafa látið
hafa eftir sér að þau muni
athuga skýrslu írsku nefndar-
innar vel og vandlega.
Danmörk:
Einstæðum
mæðrum
fjölgar mikið
■ Fjöldi einstæðra mæðra í
Danmörku hefur tvöfaldast á
s.l. sex árum. Þrír fjórðu allra
einstæðra mæðra þurfa á félags-
legri aðstoð að halda.
Nú eru nær 140 þúsund ein-
stæðar maður í landinu en voru
75 þúsund árið 1977. Einstæðar
mæður eru 19% af öllum barna-
fjölskyldum í Danmörku.
■ Kosningaþátttaka var mikil í E1 Salvador. Fólk streymdi til kjörstaða þar sem vopnaðir verðir stóðu
vörð af ótta við að skæruliðar reyndu að trufla kosningarnar.
Duarte sigrar
í El Salvador
San SaUador-Reuter
■ Þótt talningu atkvæða hafi
enn ekki verið lokið í kosning-
unum í El Salvador í gær benti
allt til þess að Jose Napoleon
Duarte myndisigra og fylgis-
menn höfðu þá byrjað að fagna
sigri hans.
Þegar búið var að telja eina
milljón atkvæða hafði Duarte
fengið yfir fimm þúsund at-
kvæðum meira en mótfram-
bjóðandi hans, Roberto D'Au-
buisson, sem fylgir mjög hægri-
sinnaðri stjórnmálastefnu.
I gær lauk líka forsetakosn-
ingum í Mið-Ameríkuríkjunum
Panama og Equador. I Equador
benti allt til þess að milljóna-
mæringurinn Leon Febres Cor-
dero hefði sigrað með tæpum
52% atkvæða. Hann er hægri-
sinnaður en andsta;ðingur hans,
Rodrigo Borja tilheyrir flokki
Sósíaldemokrata. 1 Panama var
enn mjög óljóst hver hefði sigr-
að en báðir frambjóðendurnir
þar eru taldir hægfara hægri-
menn. Kosningarnar í Panama
og Ecuador hafa ekki vakið eins
mikl athygli og í El Salvador,
m.a. vegna þess að í El Salvador
hefur að undanförnu geysað
því sem næst innanlandsstríð
þar sem fjöldi manns hefur látið
lífið.
Líbanon:
Þátttöku Shita-
leiðtoga í nýrri
stjóm fagnað
Bcirút-Reuter
Stefnubreyting í Frakklandi:
Skattar lækka og hvatt er til
eyðslu og fjárfestingar
Félagsleg þjónusta skorin niður
París-Reuter
■ Skattar á frönskum fyrir-
tækjum og einstaklingum verða
lækkaðir á næsta ári og verður
það liður í þeirri viðleitni stjórn-
arinnar að auka fjárfestingu,
eftirspurn og hagvöxt. Þetta
sagi Delors fjármálaráð-
herra í útvarpsviðtali um helg-
ina, og hafa ummæli hans vakið
mikla reiði kommúnista, en þeir
eiga sæti í ríkisstjórn
Frakklands, og margir vinstri
sinnaðir sósíalistar, samflokks-
menn fjármálaráðherrans hafa
andmælt að þetta séu ráðagerðir
sjtórnarinnar.
Þessi boðskapur þýðir mikla
stefnubreytingu frönsku stjórn-
arinnar í efnahagsmálum, er
fallið verður frá tekjujöfnun
með skattlagningu og einnig mun
þá draga mjög úr afskiptum
hins opinbera af efnahagslífinu
og opinberri þjónustu.
Delors sagði að skattalækk-
unin þýddi minni ríkisafskipti
og opinber þjónusta yrði dregin
verulega saman. Samtímis því
að launaskattar verða lækkaðir
verður stuðlað að auknu fram-
taki einstaklinga og að menn
hljóti hærri laun fyrir að leggja
mikið að sér.
Þegar byrðum verður létt af
skattborgaranum mun hann
annað hvort leggja peninga fyrir
eða eyða og er hvorutveggja
gott og mun auka hagvöxtinn og
fyrirtækin munu hafa meira fé
til fjárfestingar sem mun auka
framleiðsluna. Við höfum allt
að vinna, sagði fjármálaráð-
herra frönsku sósíalistastjórnar-
innar.
Kommúnistar og vinstri sós-
íalistar hafa lýst megnri óá-
nægju með þessa stefnubreyt-
ingu og telja að ríkisstjórnin sé
að svíkjast aftan að verka-
mönnum.
Fjárlagafrumvarpið fyrir
næsta ár verður lagt fram í
september.
■ Shitar fögnuðu með miklum
vopnagný þeirri ákvörðun eins
helsta leiðtoga síns, Nabih
Berri, að taka sæti í hinni nýju
ríkisstjórn Líbanons sem Ras-
hid Karami forsætisráðherra
hafði skipulagt.
Berri samþykkti ekki að taka
þátt í stjórninni fyrr en Karami
hafði fallist á þá kröfu hans að
nýtt embætti ríkisráðherra fyrir
Suður-Líbanon yrði stofnað.
Ríkisútvarpið í Beirút sagði
að Waíid Jumblatt, einn mikil-
vægasti leiðtogi Drúsa, hefði
einnig fallist á að taka sæti í
ríkisstjórninni.
Leiðtogar allra helstu fylk-
inga í Líbanon hafa þannig
loksins myndað með sér sameig-
inlega stjórn þrátt fyrir mikinn
ágreining og nú vonast menn til
þess að það hylli undir frið í
þessu stríðshrjáða landi. En það
er samt ólíklegt að það takist á
meðan ísraelsmenn og Sýrlend-
ingar hafa ennþá her í Líbanon.
Nú síðast í gærkvöldi bárust
fréttir af því að Sýrlendingar
hefðu skotið á fallbyssubáta frá
ísrael sem nálguðust strendur
Norður-Líbanons.
Bandanskir hermann fá
bætur vegna eituráhrifa
New York-Reuter
■ Sjö bandarísk stórfyrirtæki
í efnaiðnaði samþykktu í gær að
greiða 180 milljón dollara í
skaðabætur vegna heilsutjóns
sem hermenn frá Bandaríkjun-
um, Nýja-Sjálandi og Ástralíu
urðu fyrir í Víetnamstríðinu
vegna mikillar notkunar eitur-
efnisins Orange.
Orange er illgresiseyðir sem
notaður var til þess að eyða
gróðri í Víetnam til þess að
skæruliðar kommúnista gætu
ekki falið sig í frumskógunum.
Eitrinu var einnig dreift yfir
akra til að eyðileggja uppskeru
' á svæðum kommúnista og því var
dreift í miklu magni í krmgum
búðir bandarískra hermanna til
að koma í veg fyrir skyndiárásir
í skjóli frumskógargróðursins.
Það var ekkert dregið úr notkun
þessa eiturs þótt yfirvöld vissu
að í því voru efni sem gátu leitt
til krabbameins eða voru skað-
leg á annan hátt.
Eftir stríðið kom í Ijós að
margir bandarískir hermenn
þjáðust af kviilum sem rekja
mátti til Orange. Hermennirnir
og fjölskyldur þeirra ákváðu
loksins fyrir 6 árum að hefja mál
gegn framleiðendum eitursins
til þess að krefjast skaðabóta en
samkvæmt bandarískum lögum
gátu þeir ekki farið í mál við
yfirvöld.
Eftir langt málþóf ákváðu
framleiðendur loksins að greiða
180 milljón dollara í sjóð fyrir
þá hermenn, sem orðið hefðu
fyrir heilsutjóni gegn því að
málið yrði látið falla niður. Það
er talið að á milli 10.000 og
50.000 fyrrverandi hermenn í
Bandaríkjunum, Nýja Sjálandi
og Ástralíu eigi rétt á bótum úr
þessum sjóð en greiðslur úr
honum hefjast eftir tvö ár.
Þangað til verður féið látið
standa á vöxtum og er áætlað að
það verði um 250 milljón dollar-
ar þegar byrjað verður að greiða
skaðabætur úr honum.
Ekki eru allir jafn ánægðir
með þessa niðurstöðu. Þeim
þykir sem umrædd upphæð sé
allt of lág en aðrir líta á hana
sem „skref í rétta átt“. En það
er hætt við því að mikill fjöldi
Víetnama, sem beðið hafa
heilsutjóns eða eignast van-
sköpuð börn vegna Orange fái
seint bætur vegna eituráhrifa
þess.
40 manns deyja
vegna raflosts
Nýja Dalí-Reuter
■ Indverska fréttastofan
Blaðatraust sagði frá því í
gær að 40 manns hefðu látið
lífið vegna raflosts þegar far-
angur á toppi langferðabif-
reiðar, sem fólkið var í, rakst
á háspennulínu.
Slysið varð í nágrenni við
borgina Allahabad í Norður-
Indlandi. 80 manns voru í
langferðabílnum sem brann
til kaldra kola á örskömmum
tíma.
Símamynd Polfoto.
Olympíueldurinn tendraður
■ Grískar þokka- kveiktur var í Grikk- leikkonan Katerina
gyðjur tendruðu eld á landi ígærmunlogaá Didaskai0u, sem hér
Olympusfjalli í leikvanginum í Los
gær.Síðan er hlaupið Angeles á meðan 01-
með blysið land úr ympíuleikarnir fara
landi og sá eldur sem þar fram. Það er
heldur á blysinu en sól-
spegill tendrar eldinn.