NT - 08.05.1984, Side 25
Útlönd
Þriðjudagur 8. maf 1984 25
909 manns
fórust í flug-
slysum í fyrra
Kanada-Kcutcr.
■ Alþjóðaflugmálastofnunin
hefur birt tölur um dauðsföll
vegna flugslysa á síðasta ári.
Samkvæmt þeim hefur orðið
lítilsháttar fækkun frá árinu
þar á undan. Árið 1982 létust
923 í flugslysum en í fyrra
hafði þeim fækkað niður í 909.
í þessum tölum eru 269 far-
þegar suður-kóresku farþega-
þotunnar, sem Rússar skutu
niður í fyrra, ekki taldir með
þar sem Alþjóðaflugmála-
stofnunin telur það ekki flug-
slys heldur afleiðingu af hern-
aðaraðgerðum sovéska flug-
hersins.
Skýrsla alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar um flugslys nær
til allra ríkja nema Sovétríkj-
anna. Samicvæmt henni hefur
öryggi skrúfuvéla batnað
nokkuð. Það mun nú vera
mjög svipað og öryggi hjá
þotum sem yfirleitt er meira en
hjá skrúfuvélum.
Peking-Reuter
■ Deng Xiaoping, einn mikilvægasti leiðtogi Kínverja hittir Yasser Arafat í Peking.
Kínverjar tóku vel á móti Yasser Arafat og sýndu honum mikla vináttu á meðan hann dvaldist í
Peking í þriggja daga heimsókn sem lauk í gær enda er hann gamall vinur þeirra. Yasser Arafat kom
í fyrsta skipti í heimsókn til Kína fyrir tuttugu árum og seinast var hann þar árið 1981. Kíunverjar hafa
alla tíð stutt PLO í baráttunni gegn ísrael og í veislu sem þeir héldu til heiðurs Yasser Arafat ítrekuðu
þeir stuðning sinn við hann sem æðsta leiðtoga Palestínuaraba..
Heilbrigði fyrir
alla árið 2000
Genf-Reuter.
■ { gær hófst í Genf tveggja
vikna ráðstefna á vegum Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna um það
markmið stofnunarinnar að allir
íbúar jarðarinnar hafi aðgang
að almennri heilbrigðisþjónustu
um næstu aldamót sem sé í
samræmi við þarfir í hverju
landi.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
hefur orðað þetta markmið sitt
með orðunum „Heilbrigði fyrir
alla árið 2000“.
Um eitt þúsund læknar, sér-
fræðingar í heilbrigðismálum og
háttsettir embættismenn víðs
vegar að í heiminum, þ.á.m.
nokkrir ráðherrar sækja þessa
ráðstefnu í Genf. Aðalmál ráð-
stefnunnar er umræða um fram-
kvæmd áætlunarinnar um heil-
brigði fyrir alla sem fyrst var
sett fram fyrir tveimur árum. í
þessari áætlun felst meðal ann-
ars að íbúum þróunarlanda
verði tryggð lágmarksheilbrigð-
isþjónusta með útvegun góðs
drykkjarvatns og bólusetningu
gegn algengum sjúkdómum sem
nú hrjá þessar þjóðir. Áætlunin
felur einnig í sér rannsóknir á
leiðum til að koma í veg fyrir og
hindra krabbamein, draga úr
dauðsföllum vegna hjartasjúk-
dóma og minnka ofnotkun lyfja
í þróuðum iðnaðarlöndum.
Aðalframkvæmdastjóri heil-
brigðisstofnunarinnar, Halfdan
Mahler frá Danmörku, sagði í
skýrslu sem hann dreifði til
ráðstefnugesta að fjárhagsörð-
ugleikar og fleiri vandamál væru
dragbítur á starf stofnunarinnar
og hindruðu framkvæmd áætl-
unarinnar um heilbrigði fyrir
alla. Hann sagði að fátt benti til
þess að aðildarríki Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar, sem eru
162 talsins, hefðu aukið framlög
sín til þeirrar lágmarksheil-
brigðisþjónustu sem áætlunin
gerði ráð fyrir að næði til allra
jarðarbúa. Rík iðnaðarríki
hefðu ekki aukið stuðning sinn
við bætta heilbrigðisþjónústu í
þróunarlöndunum svo að neinu
næmi, með örfáum undantekn-
ingum þó.
Auk framangreindrar áætlun-
ar mun þessi ráðstefna alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar ræða
ýmis önnur mál. Meðal þeirra
má t.d. nefna kvörtun Araba-
ríkja vegna slæms ástands heil-
brigðismála á svæðum sem ísra-
elsmenn hafa hernumið. Það er
ekki ólíklegt að Arabaríki muni
leggja fram ályktun á ráðstefn-
unni þar sem Israelsmenn eru
gagnrýndir fyrir lélega fram-
kvæmd heilbrigðisþjónustu fyrir
Araba á hernumdu svæðunum.
Einnig er búist við því að íranir
muni fara fram á að ráðstefnan
fordæmi íraka fyrir notkun eit-
urvopna.
Þá er líklegt að ræddar verði
ásakanir um að alþjóðleg lyfja-
fyrirtæki selji ýmis lyf í þróunar-
löndum sem hafi verið bönnuð
í iðnríkjum vegna skaðlegra
aukaverkana.
Ný fjárlög:
Nigería dregur
úr innflutningi
Lagos-Reuler.
■ Herstjórnin í Nigeríu
lagði fram fjárlög í gær. Þau
taka mið af þeim róttæku
efnahagsráðstöfunum sem
gerðar voru með eignakönn-
uninni og skiptingu á gjald-
miðli, sem hamla eiga á móti
spillingu í efnahagslífinu.
Nýju fjárlögin gera ráð fyrir
ströngu aðhaldi í ríkisút-
gjöldum og vextir verða
hækkaðir.
Meðal þeirra ráðstafana
sem nú verður gripið til er að
draga úr innflutningi til að
jafna viðskiptahallann.
Smábændum verða tryggð
lán til að auka matvælafram-
leiðsluna í landinu.
Dregið verður verulega úr
erlendum lántökum og mikið
kapp lagt á að auka olíu-
framleiðsluna, en 90% af
gjaldeyristekjum landsins
fást af olíuútflutningi.
Tillögum um
griðasáttmála
fálega tekið
Moskva-Reuter
■ Gonzales forsætisráðherra Spánar er nú í opinberri heimsókn í Danmörku. Er hann hér með
Margréti Ingiríði drottningu og Hendrik príns fyrir utan Friðriksborgarhöll. Myndin var tekin í gær.
Símamynd Polfoto
■ Varsjárbandalagið bauð
Vesturlöndum í dag að hefja
viðræður um griðasáttmála
Góður kosningasigur í
Þýska alþýðuveldinu
Austur Berlín-Reuter
■ Frambjóðendur sem yfir-
völd voru búin að leggja blessun
sína yfir hlutu 99.88% atkvæða
í sveitarstjórnarkosningum sem
fram fóru í Þýska alþýðulýð-
veldinu um helgina, að því er
formaður kjörnefndarinnar
upplýsti.
Egon Krenz, sem sæti á í
framkvæmdastjórn flokksins
sagði eftir að úrslit lágu fyrir, að
þau sýndu vel hið nána samband
milli flokksins, ríkisins og fólks-
ins í okkar sósíaliska föður-
landi.
Kosið var í 202 þúsund sæti í
sveitarstjórnum og áttu kjós-
endur völ á að velja úr samtals
263 þúsund frambjóðendum,
sem voru í framboði fyrir fimm
flokka og sex fjöldasamtök, sem
öll hafa sömu stefnu og flokkur-
inn og ríkið, það er kommúnist-
íska stefnuskrá og hafa hlotið
viðurkenningu á æðstu stöðum.
Þeir frambjóðendur sem ekki
náðu beinni kosningu verða nú
varamenn í sveitarstjórnum.
12.4 milljónir kusu, yfirgnæf-
andi meirihluti með því að
stinga kjörseðli með einum lista
á í kjörkassa. Einstaka kjósend-
ur laumast inn í kjörklefa til að
strika yfir eitt nafn eða tvö á
kjörseðlinum, eða afneita öllum
listanum með því að strika yfir
nöfn allra frabjóðenda.
Krenz kosningastjóri sagði í
sjónvarpi eftir kosningarnar að
14.683 manns, eða 0.12% hafi
afneitað opinbera framboðslist-
anum. Það eru mun færri en í
síðustu sveitarstjórnarkosning-
um fyrir fimm árum, þá strikuðu
21.200 manns út alla frambjóð-
endur. Nú er því augljóslega
um betri kosningasigur að ræða
en þá.
þar sem bandalagsríkin skuld-
byndu sig til að beita ekki
vopnavaldi, hvorki kjarn-
orkuvopnum né hefðbundnum
vopnum, til að leysa deilumál
sín. Þessi skilaboð voru afhent
öllum sendiherrum Natóríkja
í Búdapest í gær. Sovéska
fréttastofan Tass sendi fréttir
um þetta efni út.
Þessum tillögum hefur verið
tekið fálega á Vesturlöndum.
Þetta er sams konar uppá-
stunga og Varsjárbandalagið
kom með í janúar 1983 og þá
var henni hafnað. Vestra eru
tillögurnar sagðar lausar í reip-
unum og þýði í rauninni ekki
neitt. Öðru máli gegndi ef
lagðar væru fram ítarlegri till-
lögur um afvopnun og friðsam-
lega sambúð, þar sem tekið
væri fram á hvaða hátt haga
eigi afvopnun og koma í veg
fyrir að vopnuð átök geti brot-
ist út.