NT

Ulloq

NT - 17.05.1984, Qupperneq 15

NT - 17.05.1984, Qupperneq 15
• f * * I » i « Fimmtudagur 17. mai#84 klúbbsins í Hamborg. Þegar þeir snéru aftur basttu þeir viö píanóleikaranum Les Maguire og gerðu samning við Brian Epstein og Columbia árið 1962. Pegar Beatles höfðu hafnað laginu „How Do You Do It“ fengu Gerry & The Pacemakers að spreyta sig á því og gáfu út sem fyrstu smáskífu. Lagið rauk beint í fyrsta sæti breska listans, og það gerðu tvö næstu lög einnig, „I Like It“ og „You’ll Never Walk Alone“ sem breskir fót- boltaunnendur eignuðu sér síðan og syngja alltaf á fót- boltaleikjum. Fyrsta breiðskífa hljóm- sveitarinnar, „How Do You Like It“ sló einnig í gegn og var hátt á listum seinni hluta 1963 og fýrri árshelming næsta árs. 1964'var kannski ekki jafn gott fyrif þá en þeir áttu þrjú topp tíujlög og eitt topp 30 lag. Tvö lög til viðbótar urðu vinsæl 1965, en eftir það ekki söguna meir. í1 Bandaríkjunum áttu þeir 11 lög á topp 100 frá 1964 til 1966. Þrjú laganna náðu topp 10, „Don’t Let The Sun Catch You Crying“, „Ferry Across The Mersey" og „How Do You Do It“. Gerry & The Pacemakers léku í Liverpool myndinni „Ferry Across The Mersey" 1965. Hljómsveitin gufaði upp 1967 og Gerry Marsden gerði nokkrar sólóplötur áður en hann gufaði upp líka. Pað er ekki auðvelt að finna plötu með lögum þeirra í dag. Pó hafa komið út „Best Of...“ plötur en þær eru oftast skamman tíma á markaðnum í senn. Billy J. Kramer & The Dakotas Næsta Liverpool bandið sem sló í gegn var Billy J. Kramer & The Dakotas með lag Bítl- anna, „Do You Want To Know A Secret?" Kramer fæddist sem William Howard Ashton í Liverpool. (N.b. systir hans er engin önnur en söngkonan Elkie Brooks) Upphaflega var hann gítarleikari í hljómsveit sem hét the Coasters (ekki The Coasters þó). Eitt kvöldið var gítarnum hans stolið og frekar en að vera aðgerðarlaus fór hann að syngja og tók fljótt nafnið Billy J. Kramer. Pegar Brian Epstein tók hann upp á sína arma losaði hann sig við Coasters og paraði Billy saman við gítarhljóm- sveit frá Manchester, The Dakotas og lét þá fá „Do You Want To Know A Secret?“ sem fyrsta lag. Beatles léðu þeim einnig lögin „Bad To Me“ sem náði fyrsta sætinu, „I’ll Keep You Satisfied” sem náði því fjórða og „From A Window" sem náði 10 og var næst síðasta topp 50 lagið þeirra. Enn eitt lag náði toppn- um „Little Children". I Bandaríkjunum urðu sex laga þeirra vinsæl „Little Children” og „Bad To Me“ einu topp tíu lögin þó. Fyrsta breiðskífa þeirra náði einnig vinsældum, en það er ekkert auðvelt að fá plötur með Billy J. Kramer & The Dakotas í dag. Nokkrar „Best of...“ plötur hafa þó komið út í gegnum árín Searchers Searchers var stofnuð 1960 sem Johnny Sanden og The Searchers, en þegar Sanden stofnaði The Remo Four héldu þeir Tony Jackson (b.s, söngur), Mike Pinder (g.s.) Chris Curtis (t.s.) og John McNally (g.s.) áfram. Eftir nokkra túra til Ham- borgar komust þeir á samning hjá Pye sem gaf út lagið „Swe- ets For My Sweet“ en það rauk í fyrsta sætið á fáum vikum. Síðan fylgdi „Sugar And Spice“ og „Sweet Nuthins” í kjölfarið, það fyrra náði no. 2, og svo „Needíes And Pins" sem einnig fór á toppinn. Eitt fyrstasætis lag í viðbót 1com skömmu síðar, eða í apríl 1964, „Don’t Throw Your Love Away“. Snemma 1964 hætti Tony Jackson til að stofna eigin hljómsveit The Vibrations. Se- archers fengu Frank Allen frá Cliff Bennett & The Rebel Rousers í staðinn. Þrjú lög til viðbótar urðu vinsæl 1964, „Someday We’re Gonna Love Again“, „When You Walk In The Room“ og „What Have They Done To The Rain?“, 1965 urðu fjögur laga þeirra vinsæl þ.a.m. „Goodbye My Love“ en aðeins tvö árið 1966. 1967 komu blómabörnin og þá voru Searchers ekki nógu „far out man“ eða „Spacaðir". Breiðskífur þeirra nutu mikilla vinsælda einnig, þ.a.m. „Meet The Searchers", „Sugar And Spice“ „Its The Searchers", „Sounds Like The Searchers" og „Take Me For What I’m Worth". Þessar plötur voru endurút- gefnar fyrir fáum árum og gætu þess vegna verið til, en „Golden Hour Of The Searc- hers“ Vol.l og 2 ættu að véra fáanlegar svo og ein vönduð - tvöföld safnplata „The Searc-' hers File“ sem hefur að geyma allar A hliðarnar af öllum litlu plötunum sem þeir gáfu út hjá Pye. 1966 hætti Chris Curtis einn- ig og í hans stað kom John Blunt. Curtis stofnaði síðar hljómsveitina Roundabout ásamt Jon Lord og Ritchie Blackmore, sem síðar várð Deep Purple. Searchers er enn gangandi þó langt sé oft á milli platna. Hljómsveitin er enn mjög góð og á síðustu plötu sömdu kapp- ar á borð við Elvis Costello, Nick Lowe og fl. lög sérstak- lega. Niðurlag fyrsta hluta. í næsta hluta þessarar upp- rifjunar fjöllum við um HoWies, Freddie & The Dreamers, Big Three, Swinging Blue Jeans, Brian Poole &TheTremeloes, Fourmost, Cilla Black og Roll- ing Stones, ef pláss leyfir. hia Komdu 1 JE V/SA HJflRTnD það er fullt af vörum fyrir dömur og herra á öllum aldri Sendum í póstkröfu. Verslunin HlflRTflD STRANDGÖTU 31, SÍMI - 53534

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.