NT - 05.06.1984, Blaðsíða 3
w
Þriðjudagur 5. júní 1984
Tólf barna móðir þrítug!
- NT ræðir við Sigrúnu Guðmundsdóttur húsmóður á
Skagaströnd sem á börn í f lestum bekkjum grunnskólans
■ NT hefur birt fréttir af
yngstu langömmu og yngsta
langafa á landinu og jafnvel
á heimsmælikvarða.
í framhaldi af því bárust
blaðinu þær upplýsingar að
á Skagaströnd byggi 12 barna
móðir, 35 ára að aldri. Van-
trúaður blaðamaður hafði
upp á konunni, fékk fregnina
staðfesta og komst jafnframt
að raun um það að konan,
Sigrún Guðmundsdóttir á
barn í nánast hverjum bekk
grunnskólans að undan-
skildum fyrsta og níunda
bekk.
Börnin eru fædd á fimmtán
árum yngsta barnið er fimm
ára sem þýðir að Sigrún hefur
verið orðin tólf barna móðir
þrítug.
Sigrún er gift Asgeiri Ax-
elssyni, bónda og verka-
manni. Þau búa að Litla-Felli
á Skagaströnd.
NT tók Sigrúnu tali, og
fyrsta spurningin brann á
vörurn blaðamanns.
Er þetta ekki erfitt?
Jú, jú, víst hefur þetta
verið erfitt. En börnin hafa
verið ákaflega hraust, og það
er fyrir öllu. Eg veit t.d. ekki
livað eyrnabólga er í
krökkum, ég hef aldrei
kynnst þvf. Þaðerafskaplega
mikils virði að hafa krakkana
hrausta. Nú börnin fara að
aðstoða við búskapinn þegar
þau geta, eldri börnin að-
stoða við að hugsa um þau
yngri. Eins og er, eru sjö
börn heima.
Vinnurðu úti?
Ég fór nú ekki að vinna úti
fyrr en síðastliðið haust, þá
fór ég að vinna á saumastofu,
fjóra tíma á dag. Við hjónin
erurn með smá búskap, ekki
stóran að vísu, sextiu ær og
tvær kýr, nú svo eitthvað um
tuttugu hross. Maðurinn
minn vinnur verkamanna-
vinnu með búskapnum.
Hefur þú fengið ein-
hverja aðstoð
heimavið?
Nei, ég hef aldrei fengið
aðstoð, nema náttúrlega á
meðan ég lá á sæng, þá kom
ég hinum börnunum fyrir.
Þau eru öll fædd í Héraðs-
hælinu á Blönduósi nema
eitt.
Hefur þú gaman
af bömum?
Já, ég hef gaman af
krökkum, en þetta hefur
náttúrlega verið erfitt
stundum. Það er ágætt að
komast út að vinna núorðið,
hálfan daginn.
Ertu kvenréttindakona?
Nei, eiginlega er ég það
ekki. Ég er dálítið mikið á
móti því að konur séu strax
komnar út á vinnumarkaðinn
þremur mánuðum eftir að
þær hafa átt börnin. Þessi ár
sent að börnin eru lítil, þau
koma ekki aftur. Og maður
veit það að þegar konur
vinna úti, þá kemur það
alltaf niður á einhverju inni
á heimilinu.
Ætlarðu að eignast
fleiri börn
Nei, ætli það. Ég reikna
með að vera hætt núna. Að
þeint orðum sögðum kvaddi
NT Sigrúnu, en bætir við
velfarnaðaróskum til handa
henni og fjölskyldunni.
Gífurleg spjöll unnin
við baðhús Bláa lónsins
■ Óaldarlýður hefur hvað eft-
ir annað ruðst óboðinn að næt-
urlagi inn í baðhús psoriasis-
sjúklinga við Bláa lónið í Svarts-
engi og unnið á því gífurleg
spjöll. Umgengnin hefur verið
hreint ótrúleg. Menn hafa geng-
ið örna sinna úti á miðju gólfi,
skemmt dýr tæki, útbíað gesta-
bók með klámmyndum og klúr-
yrðum, notað gluggatjöld sem
handklæði og skilið þau svo
eftir úti í hrauni. Svona mætti
lengi telja.
„Þetta hefur gengið svona um
nokkurra mánaða hríð - þessi
lýður hefur komið um hverja
einustu helgi liggur við. Þó tók
steininn úr núna um helgina
hvað bein skemmdarverk
varðar," sagði Valur Margeirs-
son, formaðurSuðurnesjadeild-
ar Samtaka psoriasis- og exem-
sjúklinga, þegar NT hitti hann
að máli við húsið í gærmorgun.
Útihurðin var brotin upp, rör-
bútar höfðu verið notaðir til að
gera göt á þilveggi, glugga'var
sparkað úr í heilu lagi, vatni var
sprautað um öll gólf, stórar
tyggjóklessur voru í sturtubotn-
inum, krotað með tússi á hvíta
veggina, snagar rifnir niður,
rafleiðslur rifnar út úr veggjum,
rafdósir brotnar þannig að vírar
stóðu út úr veggjunum og fleira
og fleira.
„Það er ótrúlegt að þetta hús
skuli hafa verið snyrtilegt og
hlýlegt fyrir nokkrum mánuð-
um,“ sagði Birna Sigurðardótt-
ir, eiginkona Vals, við blaða-
mann NT.
Valur sagði að ásókn í lónið
væri orðin svo mikil að psorias-
issjúklingar, sem sannarlega
gætu haldið sjúkdómi sínum
niðri með reglulegum böðum,
væru margir að gefast upp að
sækja staðinn. Þar við bættist
þessi óaldarlýður sem væri að
eyðileggja það sem sjúklingarn-
ir hefðu byggt upp í sjálfboða-
vinnu. „Það má ganga út frá því
sem vísu að þetta fólk er allt
meira og minna undir áhrifum
áfengis og því getur verið stór-
hættulegt að baða sig í lóninu.
Vatnið er svo heitt að fullir
menn geta hreinlega liðið útaf
og drukknað,“ dagði Valur.
Hann sagði að enn hefðu ekki
Löggæslan orðin mjög
flókin uppi á Héraði
■ Umdæmi lögreglunnar á
Egilsstöðum stækkaði talsvert
þann fyrsta júní, samkvæmt á-
kvörðum sýslumanna Norður
og Suður-Múlasýslna og dóms-
málaráðuneytisins. Hér eftir
mun lögreglan á Egilsstöðum
sinna löggæslu á öllu Héraði en
áður náði löggæslusvæði Egils-
staðarlögreglunnar aðeins yfir
þá fjóra hreppi af tíu á Héraði
sem eru í Suður-Múlasýslu. Jafn-
framt var bætt við lögreglu-
manni á Egilsstöðum þannig að
nú eru þeir tveir.
Í samtali við NT sagði Björn
Halldórsson lögregluvarðstjóri
á Egilsstöðum að þrátt fyrir að
löggæslusvæðið stækkaði veru-
lega eftir þessar breytingar væri
þetta mun eðlilegri skipun land-
fræðilega. Þrátt fyrir það gæti
framkvæmdin orðið flókin
vegna sýslumarkanna, m.a.
vegna þess að hann, sem er
undir stjórn sýslumanns Suður
Múlasýlsu, myndi hér eftir
skipa lögreglumanni í Norður-
Múlasýslu fyrir, en sá er undir
stjórn annars sýslumanns.
Þá sagði Björn að nauðsyn-
legt væri að bæta tækjakost
Egilsstaðarlögreglunnar. Sam-
kvæmt upplýsingum vegagerð-
arinnar eru vegir á Héraði alls
um 1100 kílómetrar á lengd.
Lögreglan á Egilsstöðum hefur
nú aðeins yfir einum bíl að
ráða, stórum yfirbyggðum bíl
með fangabúri sem er mjög
óhagkvæmur til lengri ferða.
Ellert
og
Jern-
betong
- fá Blöndu
■ Landsvirkjun hefur
ákveðið að ganga til samn-
inga við Ellert Skúlason
og norska fyrirtækið Jern-
betong um framkvæmdir
við Blönduvirkjun. Það
voru sem kunnugt er þess-
ir aðilar sem buðu lægst í
verkið.
Samningum verður að
vera lokið fyrir 1. júlí því
tilboðin gilda aðeins til
þess tíma. Sá galli er hins
vegar á gjöf Njarðar að
kjarasamningar hafa enn
ekki tekist og ekki er hægt
að ganga endanlega frá
samningi við verktaka fyrr
en kjarasamningur er fyrir
hendi.
■ Slökkviliðið var kvatt inn að Sundahöfn síðdegis í gær, þar sem leki hafði komið að 6 tonna
þvnnistanki, sem verið var að færa til. NT-mynd Ámi Bjarnason.
■ Birna Sigurðardóttir og Valur Margeirsson. Baðhúsið í baksýn.
komið fram neinar vísbendingar
um hverjir hefðu verið þarna á
ferð og alls ekki væri víst að það
hefði verið sama fólkið í öll
skiptin. „En það er kannski
ágætt að það komi fram, að þeir
sem voru hérna núna aðfaranótt
sunnudagsins eða snemma á
sunnudagsmorgun komu með
bíl sem síðan skildi þá eftir.
Þannig að þeir hafa annað hvort
þurft að fara héðan fótgangandi
eða á puttanum ef að líkum
lætur,“ sagði Valur.
Hann sagði loks að Samtök
psoriasis- og exemsjúklinga
hefðu fullan hug á að halda úti
aðstöðu fyrir meðlimi sína við
Bláa lónið og jafnvel bæta hana
með það fyrir augum að laða að
útlendinga sem þjást af sömu
sjúkdómum. „En til þess þurf-
um við greinilega að halda uppi
stöðugri gæslu við baðhúsið og
það kostar skildinginn. En okk-
ur hefur dottið í hug að leita
eftir stuðningi hjá sveitarfélög-
unum hérna í nágrenninu því að
vissulega eiga þau hagsmuna að
gæta vegna tekna af ferða-
mönnum,“ sagði Valur.
■ Hér fékk einhver útrás fyrir skemmdarfýsn sína með því að
reka jámrör í einn spegilinn í húsinu og krafturinn hefur verið
svo mikill að rörið fór í gegnum vegginn.