NT - 05.06.1984, Blaðsíða 5

NT - 05.06.1984, Blaðsíða 5
1600 þús- und kr. úr á sýningu! ■ Má bjóða þér úr fyrir 1600 þúsund? Ef þú hefur ekki efni á því, geturðu þó alltént skoðað það hjá Franch Michelsen úrsmíða- meistara fimmtudaginn 7. júní. Fyrirtæki Michelsen er 75 ára á þessu ári og í tilefni þess verður efnt til sýningar á Rolex úrum á fimmtudag, þar sem áður- nefnt demantslegið gullúr verð- ur til sýnis ásamt öðrum frá þessum framleiðanda. Demantsúrið kemur hingað til lands með fulltrúa verksmiðj- anna, sem jafnframt hefur sjö önnur í farangrinum. Fleildar- verðmæti þessara úra er rúrnar fjórar milljónir króna. Hafnarfjörður: Opið hús ■ I dag verður opið hús hjá bæjarútgerðinni í Hafnarfirði og slökkviliðinu. Er þetta liður í árlegri kynningu bæjarins á stofnunum sínum. í bæjarútgerðinni verður boð- ið upp á skoðunarferðir, auk þess sem gestum verður gefinn kostur á að smakka sjávarrétti. Einnig verða sýndar kvikmyndir um vinnslu í fiskiðjuverum. í slökkvistöðinni verða til sýnis gömul tæki slökkviliðsins. Einnig verður kennd notkun handslökkvitækja og sýndar kvikmyndir um eldvarnir. ■ í dag er opið hús í firðinum. Eflaust geta þessir hressu strák- ar kíkt inn hjá bæjarútgerðinni eða slökkviliðinu. Þriðjudagur 5. júní 1984 5 ■ Miðasala á Listahátíð hefur tekið mikinn kipp og gengur nú vel. Ashkenazy og Fíiharmónía Lundúna eru efst á vinsældalistanum. ■ „Ég á ekki nægilega sterk lýsingarorð yfír að- sóknina á viss atriði, en í heild er hún mjög góð,“ sagði Bjarni Ólafsson fram- kvæmdastjóri Listahátíðar, þegar hann var spurður um undirtektir almennings eftir fyrstu helgina. Bjarni nefndi sem dæmi tvo liði, sem hann sótti sjálf- ur á sunnudag, listdanskynn- ingu íslenska dansflokksins í Norræna húsinu og tónleika Gunnars Kvaran sellóleikara og nemenda hans í Bústaða- kirkju. Á báðum stöðum hefði verið fullt út úr dyrum og færri komist að en vildu. Miðasala á Listahátíð tók mikinn kipp um helgina og efstir á vinsældalistanum eru tónleikar Vladimírs Ashken- azy og Fílharmóníusveitar Lundúna um næstu helgi. Þá hefur gengið vel að selja miða á tónleika austurrísku söngkonunnar Christu Lu- .dwig á miðvikudag, sömu- leiðis á tónleika írsku sveitar- innar Chieftains. Þá er kom- inn góður kippur í miðasölu fyrir tónleika ítölsku söng- konunnar Luciu Valentini Terrani á fimmtudaginn 14. júní og loks er mikið spurt um Modern Jazz Quartet laugardaginn 16. júní. Landsbyggðin á Listahátíð: Kosta skildinginn sinn ■ 10400 krónur. Þetta er það verð, sem hjón frá Akur- eyri með tvö börn, 8 og 13 ára, verða að greiða fyrir eina helgi á Listahátíð í Reykjavík. Þá er gert ráð fyrir að þau ferðist með Flug- leiðum, sem veita sérstakair Listahátíðarafslátt, og gisti hjá ættingjum í höfuðborg- inni. Fjölskyldan ætlar að koma suður síðdegis á föstudag og halda heim á sunnudags- kvöld. Fargjaldið báðar leið- ir hljóðar upp á 6800 krónur. Aðgangseyririnn að listvið- burðum helgarinnar nernur 3600 krónum og skiptist hann þannig: Á föstudagskvöld fara hjónin í Þjóðleikhúsið til að sjá nýtt leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar og kostar að- göngumiðinn 250 kr. stykkið fyrir sæti í sal. Sama kvöld fara börnin að sjá írska þjóðlagahópinn Chieftains, þar sem miðinn kostar 400 kr. stykkið. Á íaugardag fcr fjölskyld- an síðdegis í Árbæjarsafn til að sjá Borgar Garðarsson flytja einleiksþátt Árna Björnssonar Hvaðan komum við? Aðgöngumiðinn kostar 200 kr. Um kvöldið fara hjónin á tónleika Fílharmón- íusveitar Lundúna og kostar það þau 1000 krónur. Á sunnudag síðdegis hlýða hiónin á sænsku söngkonuna Netanelu og kosta það sam- tals 500 krónur. Börnin fara al'tur á móti niður á Lækjar- torg, þar sem leikhópurinn Svart og sykurlaust skemmtir vegfarendunt. Pyngja borgarbúans getur lika fengið að kenna á þvt, ef hann ætlar að sjá allt, sem hugurinn girnist. Aðgöngu- miðar að atriðum Listahátíð- ar kosta frá 200 og upp í 500 krónur. Eða sem svarar frá einni rauðvínsflösku upp í algenga tegund af vodka, og tæplega þó. Hvort er betra? ■ Ólafur Jóhannsson ritstjóri tímaritsins Á veiðum. Nýtt tímarit: Á veiðum ■ Nýtt tímarit um vciðiskap er nú að hefja göngu sína. Tímaritið ber nafnið „Á veið- um“ og er gefíð út af Frjálsu framtaki í samvinnu við tvö áhugainannafélög um veiði- skap: Ármenn og Skotveiðifé- lag Reykjavikur. Ritstjóri tíma- ritsins er Olafur Jóhannsson sem in.a. ritaði um stangveiði í Morgunblaðið um nokkurra ára skeið. í frétt frá Frjálsu framtaki segir að Á veiðum ntuni fjalla almennt unt veiðiskap, bæði stangveiði og skotveiði en í fyrsta tölublaðinu, sem kemur út um miðjan júní verður eink- um fjallað um stangveiði. Lögð verður áhersla á fjölbreytt efni í blaðinu, og verður það mjög myndskreytt. Tímaritið Á veiðum verður um 100 blaðsíður að stærð og verður fyrsta eintakinu dreyft til flest allra veiðimanna sem félagsbundnir eru í einhverjum félögum stang- eða skotveiði- manna, en talið er að fjöldi þeirra sé nú um 5000. Einnig verður tímaritið selt í lausasölu. Lunsí heim- sókn ■ Dr. Joseph Luns, fram- kvæmdastjóri Atlantshafs- bandalagsins, og eiginkona hans, koma í opinbera heim- sókn til Islands í dag og dvelja hér fram á fimmtudag. FRUMKVÆÐI OG FORYSTA í FÓÐURVÖRUMÁLUM FÓÐURBLÖNDUNARSTÖÐ SAMBANDSINS Sundahöfn Reykjavik HVERGI BETRI GREIÐSLUKJÖR. 3ára ábyrgð. ELDHÚSINNRÉTTINGAR fáanlegum efnum. Sérþurrkað efni fyrir íslenskar aðstæður. Framleiddar úr gegnheilu beyki, eik eða lakkaðar. GT HÚSGÖGN H.F. Smiðjuvegi 6 • 200 Kópavogi • Simi 74666

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.