NT - 05.06.1984, Side 6
Sjálfsbjörg á Norðfirði:
Verndaður vinnustað-
ur helsta áhugamálið
■ „Ég álít að það hljóti að
hafa heilmikla þýðingu fyrir fé-
lagið og starfsemi þess að það
skuli nú hafa eignast eigið hús-
næði og við vonumst til að með
því getum við aukið og eflt
félagsstarfsemina. M.a. stendur
til hjá okkur að koma upp
vinnustofu í húsinu í framtíð-
inni, þar sem félagsmenn fái
aðstöðu til að koma og vinna
muni, sem síðan verða seldir
þar á staðnum", sagði Unnur
Jóhannsdóttir, formaður Sjálfs-
bjargar á Norðfirði, en nýlega
réðst félagið í það stórvirki að
kaupa hús undir starfsemi sína.
Félagið Sjálfsbjörg á Norð-
firði sagði Unnur stofnað 28.
nóv. 1974 og standi til að halda
upp á 10 ára afmælið með
heilmikilli hátíð í haust.
Varðandi fjármögnun hús-
kaupanna sagði Unnurað Norð-
firðingar hafi alltaf vérið félag-
inu mjög hjálplegir og tekið
fjáröflunaraðferðum þess vel.
Pær hafi m.a. falist í happ-
drættismiðasölu, árlegum köku-
og munabösurum svo og blóma-
og kaffisölu á alþjóðadegi fatl-
aðra. Ogennerþörfátöluverðu
fé. Að sögn Unnar er nú eftir að
breyta húsinu töluvert til að
gera það aðgengilegra fyrir fatl-
aða bæði innan dyra og utan,
m.a. með lagningu skábrautar
að húsinu.
Félagsstarfið kvað Unnur að
sjálfsögðu töluvert felast í hinni
hefðbundnu fundastarfsemi.
Mikill tími færi líka í að vinna
fyrir basarana. Til þess væri
komið saman annað hvert
þriðjudagskvöld frá áramótum
og fram á vor. Undanfarna
vetur hafi félagið síðan gengist
fyrir opnu húsi annan hvern
laugardag. Aðstöðu til þessarar
félagsstarfsemi sagði hún félag-
ið hafa fengið í barnaskólanum.
„Við kunnum skólastjóranum
þar miklar þakkir fyrir hvað
hann hefur verið lipur við
okkur", sagði Unnur. Félagið
kvað hún opið öllum. Þeir sem
ófatlaðir eru geti gengið í það
sem styrktarfélagar. Með því
geti fólk bæði aukið baráttuna
fyrir hagsmunamálum hinna
fötluðu og jafnframt unnið að
því að eyða margskonar for-
dómum sem lengi hafi verið
landlægir hér gagnvart fötluðu
fólki.
Spurð um áætlanir félagsins í
nánustu framtíð sagði Unnur:
„Við höfum mikinnn áhuga á
Þriðjudagur 5. júní 1984 6
■ Stjórn Sjálfsbjargar á Norðfirði. Sitjandi frá vinstri: Sigrún Dagbjartsdóttir, Unnur Jóhannsdóttir
og Helga Axelsdóttir. Standandi: Björg Helgadóttir, Anna Sigurjónsdóttir, Sigurlaug Bjarnadóttir,
Kagnheiður Stefánsdóttir og Guðni Þorleifsson. Á myndina vantar Róslaugu Þórðardóttur og Vilhjálm
Sigurðsson. Mynd Svanfríður
ferlimálum og vonumst til þess
að geta með tímanum staðið að
því að fatlaðir eigi greiðari að-
gang að stofnunum hér á
staðnum. Hvað húsið snertir
höfum við hugsað okkur að
leigja það út sem orlofsheimili í
sumar. En eitt helsta áhugamál
okkar í framtíðinni er það að
hér verði komið upp vernduð-
um vinnustað. Hér er töluvert
af fólki sem gæti unnið létta
hálfsdags vinnu og mundi hafa
gott af því bæði andlega og
líkamlega."
Norðlendingar lagð-
ir af stað suður
búseturöskun svarar til íbúafjölda á Hofsósi og Raufarhöfn
■ Norðlendingar fiytja nú í síauknum mæli til höfuðborgarsvæðisins.
NT mynd Róbert
vantar á að landssvæðin náðu
meðaltalsfólksfjölgun á land-
inu.
Þessar upplýsingar koma
fram í Fréttabréfi Fjórðungs-
sambands Norðlendinga. Þar
kemur einnig fram að Norð-
lendinga skorti 146 milljónir til
þess að ná meðaltekjum lands-
ins alls miðað við fjölda íbúa
árið 1982. Þannig voru meðal-
laun á Norðurlandi vestra 40
þúsund krónum lægri á ársverk,
en meðallaun á Reýkjanesi og á
Norðurlandi eystra vantaði 22
þúsund krónur á ársverk miðað
við Reykjanes.
í fréttabréfinu kemurfram að
atvinnuleysi ér meira á Norður-
landi en í öðrum landshlutum.
Samdráttur er í byggingastarf-
semi vegna fækkandi íbúða-
bygginga og hlutfallslega
minnkandi framkvæmda við op-
inber verkefni.
Norðlendingar eru greinilega
lagðir af stað suður.
■ Búseturöskun á Norður-
landi vestra 1981-1983 svarar til
þess að Hofsós væri lagður í
eyði. Á sama tíma svarar bú-
seturöskun á Norðurlandi
eystra til þess að Raufarhöfn
félli úr byggð. Þetta eru alls 840
manns, 333 á Norðurlandi
eystra og 507 á vestra, sem
■ Nýfædd lömb hafa löngum verið eftirsóttir leikfélagar íslenskra krakka. Þetta unga fólk í
Vestmannaeyjum er þar engin undantekning. NT-mynd Inga
Sparisjóður
Svarfdæla
hundrað ára
- gefur út merkisrit
um sögu byggðarlagsins
■ Á þessu ári fagnar Spari-
sjóður Svarfdæla á Dalvík 100
ára afmæli og hefur af því tilefni
gefið út myndarlegt rit þar sem
rakin er þróun bankamála í
landinu og saga sparisjöðsins.
Inn í síðarnefnda kaflarin sem
er meginuppistaða ritsins flétt-
ast margvíslegur fróðleikur um
byggð Svarfaðardals, fyrr og nú,
landbúnaðarsögu og ættfræði.
Ritið er prýtt fjölda mynda, af
Svarfdælingum fyrr og nú og er
allt hið vandaðasta að gerð.
Ritstjóri afmælisritsins er
Hjörtur Þórarinsson en aðrir
höfundar efnis eru Harald-
ur Hannesson og Jóhannes
Heilbrigðis-
ráðherra:
Fundaher-
ferð um
landið
■ Matthías Bjarnason
heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra mun fara í
fundaherferð um landið í
sumar og gera grein fyrir
ýmsum þáttum heilbrigð-
is- og almannatrygginga-
mála. Mun ráðherra flytja
inngangserindi á hverjum
fundi, en auk þess verða
2-3 aðrir frummælendur.
Fyrstu fundirnir verða
haldnir á ísafirði 7. júní
og Patreksfirði 8. júní. f
Olafsvík og á Akranesi
verður fundað 14. og 15.
júní, en síðar í öðrum
kjördæmum.
■ Þórarinn Þórarinsson,
fyrrv. skólastjóri, er átt-
ræður í dag, 5. júní. Þórar-
inn er staddur austur á Eið-
um.
Nordal sem skrifar stutta kveðj u
til stofnunarinnar.