NT - 05.06.1984, Qupperneq 7
Þriðjudagur 5. júní 1984 7
Fundu nýbornar útiga
ær yst í Stigahlíðinni
Frá Finnbuga Kristjánssyni,
frénaritara NT á Isafirdi:
■ Fyrir skömmu sáu grá-
sleppukarlar frá Bolungar-
vík, sem voru á veiðum undir
Stigahlíð við ísafjarðardjúp,
nokkrar kindur á Lægri-
Kamb, ékki langt frá flaki
Hafrúnar ÍS. Þegar farið var
að athuga málið kom í ljós
að þarna voru á ferð tvær
nýbornar ær og veturgamall
hrútur.
Fjórir menn úr björgunar-
sveitinni Erni frá Bolungar-
vík fóru á slöngubát út með
Stigahlíð og stigu á land
undir Lægri - Kamb. Feir
voru ekki lengi að finna
útigangsféð, sem voru tvær
ær, og veturgamall lamb-
hrútur. Báðar ærnar voru
nýbornar, önnur hafði misst
lönbin undan sér, en hin var
með tvo lambhrúta. Hrútur-
inn er undan sömu á, sem er
frá Hafhóli í Bolungarvík.
Að sögn Jóhanns Hanni-
balssonar bónda á Hafhóli
var gróður á þessum slóðum
kominn vel á veg. Sagði
hann að kindurnar hefðu
auðveldlega getað gengið í
fjörur og verið í þokkalegum
holdum. Einnig hefðu lömb-
in verið eðlilega stór.
Kindurnar voru reknar í
Skálavík og þaðan fluttar á
vélsleðum að Hafhóli.
■ Féð komið heim að Hafhóii eftir útiganginn í vetur.
Hrúturinn er unrian ánni með lömbin.
NT-mynd Firtnhogi krístjánsson
■ Ef mönnum leiðist að sjá ekki í kringum sig í húsaþyrpingum er tilvalið að bregða
sér upp á háar stultur. Sigurður A. Jónsson nýtur útsýnisins yfir húsþökin ágætlega.
NT mynd Finnbogi Kristjánsson á ísafirði
VINNUEFTIRUT RIKISINS
Síðumúla 13,105 Reykjavík, Sími 82970
Tilkynning til atvinnurekenda
um vinnu
barna og ungmenna
Um þessar mundir kemur á vinnumarkaðinn mikill fjöldi ungs fólks. Á
undanförnum árum hefur tíðni alvarlegra vinnuslysa verið mun hærri hjá ungu
fólki en þeim sem eldri eru. Vegna þessa vekur Vinnueftirlit ríkisins athygli
atvinnurekenda á eftirtöldum ákvæðum laga nr. 46/1980 um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum:
★ Atvinnurekandi skal gera starfsmönnum sínum Ijósa slysa- og sjúkdóms-
hættu sem kann að vera bundin við starf þeirra. Atvinnurekandi skal þar
að auki sjá um að starfsmenn fái nauðsynlega kennslu og þjálfun í að
framkvæma störf sín á þann hátt, að ekki stafi hætta af (14.gr.)
★ Börn (einstaklinga innan 14 ára aldurs) má ekki ráða nema til léttra
hættulítilla starfa (59. og 60. gr.). Þau störf sem ekki má ráða börn til eru
t.d. uppskipun, vinna við hættulegar kringumstæður eða vélar sem valdið
geta slysi, meðferö hættulegra efna eða þau störf er hafa í för með sér slíkt
andlegt og /eða líkamlegt álag að hamlað geti vexti þeirra og þroska, sbr.
ennfremur lög nr. 53/1966 um vernd barna og ungmenna.
★ Unglingar, 14 og 15 ára, mega ekki vinna lengur en 10 klst á dag og skal
vinnutíminn vera samfelldur. Þeir, sem eru 16 og 17 ára, skulu hafa minnst
12 tíma hvíld á sólarhring og skal hvíldartíminn að jafnaði vera á tímabilinu
milli kl. 19 og 7.
Öryggistrúnaðarmenn starfsmanna eða félagslegir trúnaðarmenn skulu
fylgjast með því að farið sé að ofangreindum ákvæðum.
Reykjavík 1. júní 1984
Geymið auglýsinguna og festið upp á vinnustöðum