NT - 07.06.1984, Síða 1
Fimmtudagur 7. júní 1984-137. tbl. 68. árg.
Skotárás á
steypubíl?
„Á enga óvini“
segir bílstjórinn
■ „Ég var að keyra niður Álafossbrekkuna,
þegar ég mætti gráum bfl og heyrði skothvell. Á
eftir þóttist ég sjá far á tengivagninum eftir
kúlu“.
Petta sagði Arnþór Hálfdán-
arson bifreiðarstjóri hjá Steypu-
stöðinni h.f. í samtli við NT í
gær, en Arnþór telur að skotið
hafi verið á sig um hádegisbilið
í gær, þar sem hann var á leið til
Reykjavíkur með malarfarm
ofan úr Esju.
„Ég fékk hellu fyrir eyrun,
því að þetta var ekkert venju-
legur hvellur, heldur eins og
hvellur sem maður heyrir þegar
maður er sjálfur að skjóta“,
sagði Arnþór.
Aðspurður sagðist hann ekki
hafa hugmynd um hver gæti
hafa gert þetta, hann ætti enga
óvini.
„Ég átti mér einskis ills von,
þegar ég mætti bílnum. Hann
var bara eins og einn af þúsund-
um bíla, sem ég mæti“.
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur fengið mál þetta til rann-
sóknar, en í gærkvöldi var allt
óvíst hvort rispa, sem kom á
skjólborð tengivagnsins hafi
orsakast af byssukúlu eða ein-
hverju öðru.
■ Arnþór Hálfdánarson við tengivagninn, sem skotið var á í gær
í Vestulandsvegi. NT-raynd Árni Bjarna.
Kaupmönnum skylt að verðmerkja vörur sínar:
„VIRKA HVETJANDI
A INNBROTSÞJÓFA“
- segja gullsmidir, sem þó er ætlað að verðmerkja eins og öðrum
■ Þó að í langflestum
verslunum í miðborg
Reykjavíkur séu verð-
merkingar í útstillingar-
gluggum eins og vera ber
þarf ekki að ganga lengi til
að finna verslun sem huns-
ar reglurnar. í NT úttekt í
dag er fjallað um verð-
merkingar og þar kemur
fram að Verðlagsstofnun
leggur nú, í kjölfar kjara-
skerðingar hjá launafólki,
minnkandi verðbólgu og
aukins frjálsræðis í verð-
lagsmálum, mun meira
upp úr því að þeir sem
selja vöru og þjónustu til
neytenda standi sig í stykk-
ingu hvað verðmerkingar
varðar. Einnig kemur
frani að pottur er víða
brotinn í þessum efnum
þó að enginn kaupmaður
sem blaðið talaði við væri
beinlínis á móti verðmerk-
ingum. Sumir, til dæmis
gullsmiðir, eru tregir til að
fara að settum reglum þar
sem þeir telja verðmerk-
ingar í búðargluggum hvetja
til innbrota og merkingar
innanbúðar hjálpa inn-
brotsþjófum að velja það
dýrasta úr versluninni..
Enda sér Verðlagsstofnun
í gegnum fingur sér. við
skartgripasala, sem í ýms-
um löndum eru undan-
þegnir ákvæðum um verð-
merkingar.
NT-úttekt
í opnunni
ómasson fékk
Bjartsýni-
verðlaunin
■ Helgi Tómasson tók í
gær við Bjartsýniverð-
launum Bröstesjóðsins
danska. Verðlaunin eru að
upphæð 25.000 danskar
krónur eins og reyndar má
sjá á ávísuninni hér á mynd-
inni, sem tekin var við þetta
tækifæri. Það er forstjóri
Tívolís í Kaupmannahöfn,
Niels Jörgen Kaiser, sem
hér afhendir Helga verð-
launin en eiginkona Helga,
Marlen, stendur við hlið
hans.
Þetta er í fjórða sinn sem
Bjartsýniverðlaunin eru
veitt en til þeirra var stofn-
að 1980, þegar Vigdís Finn-
bogadóttir fór í fyrstu opin-
beru heimsókn sína til Dan-
merkur. Símamynd-POLFOTO
Vilja Frakkar
reisa álver
hérálandi?
■ Könnunarviðræður íslensku stóriðju-
nefndarinnar og fulltrúa franska fyrirtækis-
ins Pechney, sem er þriðji stærsti álfram-
leiðandi í heimi, um að fyrirtækið reisti
álver hér á landi fóru fram í Reykjavík í
gær. Eftir því sem næst verður komist er
erfítt að segja nokkuð um raunverulegan
áhuga fyrirtækisins, en viðræðurnar fóru
fram að frumkvæði íslendinga og ekkert
hefur verið ákveðið um framhald þeirra.
Eins og komið hefur fram
í fréttum hefur nokkrum
stórum fyrirtækjum í áliðn-
aði verið skrifað bréf þar
sem stóriðjunefnd hefur fal-
ast eftir viðræðum við þau
um hugsanlega byggingu ál-
vers hér á landi. I því sam-
bandi hefur fyrst og fremst
verið rætt um Eyjafjörð en
einnig Reykjanes og Þorláks-
höfn. Ekki hefur staðið á
svörum því að ákveðnar hafa
verið könnunarviðræður við
þrjú stærstu fyrirtækin í áliðn-
aði nú í júní og júlí. Fvrir-
tækin eru, Alcan, Alcoa og
Pechney. Einnig eru væntan-
legir hingað til lands fulltrúar
frá þýsku álfyrirtæki.
■ Viðar sveiflar sér í dansinn með Svanhildi Sigurðardóttur
danskennara. NT-mynd: Árni Bjarna.
■ Viðar Völundarson lauk
nýlega danskennaraprófi Dans-
kennarasambands íslands með
hæstueinkunnirsemgefnar hafa
verið hér á landi. Á síðustu
prófunum, nú í vor fék Viðar 10
í munnlegu prófi í grein sem
kallast „tekník" og 9.8 í dansi.
Viðar er frá Alftanesi, rétt
fyrir utan Húsavík. Hann er
nítján ára gamall og hefur lagt
stund á dansnám í fjögur ár hjá
dansskóla Heiðars Astvaldsson-
ar.
Viðar er nú á förum til Banda-
ríkjanna þar sem hann mun
dvelja í sumar sem skiptinemi en
hyggst kenna dans hjádansskóla
Heiðars næsta vetur. Nánar
verður greint frá Viðari og námi
hans í helgarblaði NT nú um
helgina.