NT - 07.06.1984, Síða 8
Var með tæp 14% af
heildarútflutningi
og rúman fimmtung af útfluttum sjávarafurðum
i;v
Aukning hjá Sjávarafurðadeild Sambandsins:
■ Volvo vörubflar sækja á á öllum markaðssvæðum um þessar mundir.
Volvo vörubílar:
Markaðshlutdeildin
tvöfaldast á 5 árum
■ Á fimm árum hafa Volvo-
verksmiðjurnartvöfaldað hlut-
deild sína á vörubílamörkuð-
um, farið úr 4% í 8%, sem
þýðir að tólfti hver vörubíll
sem nú selst er af Volvogerð.
Hyggja verksmiðjurnar á enn
frekari landvinninga og var
nýlega ákveðið að bæta 100
starfsmönnum við í verksmiðj-
unni í Gautaborg.
Áætlað er að framleiða á
þessu ári um 40 þúsund vöru-
bíla en í fyrra voru framleiddir
34.300 bílar. Einnig hefur
Volvo ákveðið að fjárfesta gíf-
urlega í framleiðslunýjungum
á þessu ári, eða um 1.200
miiljónir sænskra króna.
Um áramótin var Volvo
þriðji stærsti framleiðandi
vörubíla í heiminum. Aðeins
Renault samsteypan og Daiml-
er Bens framleiddu fleiri vöru-
bíla í fyrra.
Fimmtudagur 7. júní 1984 8
■ Heildarútflutningur Sjáv-
arafurðadeildar Sambandsins
í fyrra var að verðmæti 2.834,1
milljónir króna og heildarsala
umbúða- og veiðarfæradeildar
nam 189,2 milljónum. Vclta
deildarinnar varð því samtals
3.023,3 milljónir, sem er
133,8% aukning frá árinu á
undan. Hlutdeildin í heildarút-
flutningi landsmanna varð
13,7% á móti 13,0% 1982, en
hlutdeild hennar í heildarút-
llutningi sjávarafurða varð
20,1% samanborið við 17,3%
1982. Á árinu endurgreiddi
deildin Sambandfrystihúsun-
um 34,6 milljónir króna í
tekjuafgang, vexti af sjóðum
og afslátt.
Þessar upplýsingar komu
fram á aðalfundi Félags Sam-
bandsfiskframleiðenda, sem
haldinn var fyrir skömniu. Á
fundinum kom ennfremur
fram, að Sambandsfrystihúsin
Wé
w
<m*r
•f ■
■ í tilefni aldarfjórðungsafmælis Hafskips fékk félagið Eirík
Smith, listmálara til að myndskreyta ársskýrslu sína.
Eddantók
helming
hagnaðar
Hafskips
■ Heildarhagnaðurafrekstri
Hafskips hf. í fyrra var 41.5
milljónir króna. Hlutdeild fé-
lagsins í taprekstri Farskips hf,
sem í fyrrasumar rak ms.
Eddu, reyndist rösklega 19
milljónir, sem leiddi til þess að
hreinn hagnaður skipafélags-
ins varð 22,2 milljónir króna.
Rekstrartekjur Hafskips
1983 námu rúmlega 580 millj-
ónum króna og jukust um 76,1
af hundraði frá 1982 meðan
rekstrargjöld jukust um
framleiddu samtals 39.780
tonn af öllum tegundum frystra
sjávarafurða, sern var 11%
meira en árið áður. Utflutning-
ur frystra sjávarafurða hjá
Sjávarafurðadeildinni varð
39.610 tonn, sem var 15%
meira en árið 1982.
Þá áttu bæði sölufyrirtækin,
Icelan.d Seafood Corporation
og Iceland Seafood Limited,
áfram vaxandi gengi að fagna,
hvort á sínu markaðssvæði.
Báðum fyrirtækjunum tókst að
ná fram söluaukningu og
styrkja stöðu sína. Hjá sölu-
skrifstofu Sambandsins í
Hamborg tvöfaldaðist salan
frá fyrra ári.
67,5%. Varð hagnaðurinn af
rekstrinum fyrir afskriftir og
fjármagnsgjöid varð 128 millj-
ónir. sem jafngildir 22% af
rekstrartekjum rniðað við árið
1982.
Flutningamagn félagsins til
landsins minnkaði í tonnum
talið um 7,3% frá 1982, en
flutningamagn frá landinu
jókst hins vegar . um
3,2%.Minnkaði því heildarút-
^flutningurinn um 4%
Samvinnii'
tryggingar:
Hagnað'
urinn á
tíundu
milljón
■ Hagnaöur Sam-
vinnutrygginga var 9,3
milljónir króna í fyrra.
Fjórar deildir félagsins
skiluðu tekjuafgangi en
tvær voru reknar með
tapi, bifreiðadeild og
innlendar endurtrygg-
ingar.
Mestur varð hagnað-
urinn á ábyrgða - og
slysadeild, rúmlega 8,8
milljónir króna, sjó-
deild skilaði 6,8 ntill-
jóna hagnaði, bruna-
deild 6,6 milljónum og
erlendar endurtrygg-
ingum rúmlega 600 þús-
und krónum. Tapið á
bifreiðadeildinni var
tæplega 10.1 milljónir
og tap á innlendum
endurtryggingum varð
2,3 milljónir.
Hagnaður af rekstri
Líftryggingafélagsins
Andvöku, sent nú er
rekið af Samvinnutrygg-
ingum, var um 3,2 mill-
jónir króna. Varð hann
aföllum tryggingagrein-
urn, nemaafinnlendum
endurtryggingum
Athygli vakti. að
reksturskostnaðurAnd-
vöku varð 27% af ið-
gjöldum, en hann var
um 60% árið áður.
„Þessi ánægjulega þró-
un er ? framhaldi af
þeim skipulagsbreyting-
urn, sent gerðar voru á
rekstrarárinu, en Sam-
vinnutryggingar tóku
þá að sér að sjá um
rekstur félagsins rneð
sínum eigin rekstri.
Með því móti var hægt
að ná fram aukinni hag-
ræðingu og lækkarekst-
urskostnað“, segir í
frétt frá Samvinnu-
tryggingum.
■ Mikill uppgangur hefur verið hjá BMW undanfarin ár en nú er hætt við nokkrum afturkipp
vegna verkfalla í stáliðnaði
„Rétt einu sinni
besta árið hjá BMW“
- hagnaður samsteypunnar jókst um helming
■ Hjá BMW bílaverksmiðj-
unum þýsku varð árið 1983
„rétt einu sinni besta árið í
sögu verksmiðjanna" eins og
Volker Doppelfeld, fjármála-
stjóri BMW orðaði það. Hann
sagði að vöxturinn hefði aldrei
verið rneiri og framundan væri
bjart nema að verkfall í þýsk-
um stáliðnaði setti þeini mun
stærra strik í reikninginn.
Velta móðurfyriftækisins jókst
unt 22.5 af hundraði frá árinu
áður, í 11.5 ntilljarða þýskra
marka og hagnaðaraukningin
nam 44 af hundraði frá fyrra
ári, en hann varð 288 milljón-
ir þýskra marka. Hjá allri sam-
steypunni jókst veltan um 21
af hundraði í um 14 milljarða
marka og heildarhagnaðurinn
var um 292 milljónir rnarka,
sent er aukning um 54 af
hundraði. Vöxtur samsteyp-
unnar kemur einnig frani í því
að á síðasta rekstrarári fjölgaði
starfsfólki um 6 af hundraði,
en það var 43.200 í lok
rekstrarins.